Spænski boltinn

Juventus á eftir Eiði Smára?
Eiður Smári Guðjohnsen hefur nú verið orðaður við enn eitt stórliðið, Juventus á Ítalíu.

Eiður fékk þungt högg á æfingu
Eiður Smári Guðjohnsen fékk þungt högg á æfingu með Barcelona og var ráðlagt að hvíla sig.

Pires: Skilnaðurinn hefur áhrif á Henry
Robert Pires, fyrrum félagi Thierry Henry frá því hjá Arsenal, segir hjónaskilnaðinn vera ástæðu þess að stuðningsmenn Barcelona hafi enn ekki fengið að sjá hinn sanna Henry.

Saviola í skýjunum með fyrsta markið
Argentínski framherjinn Javier Saviola skoraði sitt fyrsta mark fyrir Real Madrid í gær þegar liðið vann sigur á Almeria í spænsku deildinni. Saviola var keyptur til Real frá Barcelona í sumar og var ekki lengi að launa forráðamönnum félagsins traustið.

Heppnin með Valencia
Stórlið Real Madrid og Valencia á Spáni voru ekki sérstaklega sannfærandi í kvöld þegar þau unnu sigra á lægra skrifuðum andstæðingum sínum. Valenca hafði heppnina með sér þegar slysalegt mark tryggði sigurinn gegn Valladolid.

Eiður Smári: Hef enn ekki sýnt hvað í mér býr
Eiður Smári Guðjohnsen segir það aldrei hafa komið til greina fyrir sig að fara frá Barcelona fyrir lokun félagaskiptagluggans og segist ætla að gera allt sem í hans valdi stendur til að sanna sig hjá félaginu.

Laporta hótar að banna leikmönnum að spila landsleiki
Joan Laporta, forseti spænska knattspyrnufélagsins Barcelona, segir að réttast væri að landsliðin greiddu félagsliðunum fyrir afnot af leikmönnum í landsleikjum. Hann segir tíma til kominn fyrir FIFA og UEFA að bregðast við þessu.

Sneijder meiddur
Hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder hjá Real Madrid gæti misst af leik Hollendinga við Albani annað kvöld og hugsanlega leik Real gegn Almeria um helgina eftir að hann meiddist á ökkla á æfingu með landsliðinu. Snejder hefur verið í frábæru formi með Real síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar.

Navarro laus úr banni
Varnarmaðurinn David Navarro hjá Real Mallorca verður væntanlega í leikmannahópi Real Mallorca fyrir leik liðsins gegn Villarreal á sunnudaginn, en þá verður hann búinn að ljúka sex mánaða keppnisbanninu sem hann fékk fyrir slagsmál á sínum tíma. Navarro er samningsbundinn Valencia en er lánsmaður hjá Mallorca. Hann var einn aðalmaðurinn í ólátunum sem urðu á leik Valencia og Inter Milan í mars.

Oleguer gæti farið í fangelsi
Spænski knattspyrnumaðurinn Oleguer gæti átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi ef hann verður fundinn sekur um að hafa komist í kast við lögreglu í átökum sem brutust út fyrir utan krá í grennd við Barcelona fyrir tæpum þremur árum.

Vicente frá í mánuð
Spænski landsliðsmaðurinn Vicente hjá Valencia verður frá keppni í mánuð vegna meiðsla á læri. Þetta kom í ljós eftir að hann fór til sérfræðinga í Madrid í gær sem fengnir voru til að skoða hann eftir að hann hélt því fram í fjölmiðlum að læknar Valencia væru vanhæfir. Hann á yfir höfði sér sekt vegna þeirrar yfirlýsingar, en læknar Valencia höfðu áður dæmt að meiðsli hans væru af sálrænum toga.

Segir Eið Smára kominn út í kuldann hjá Barcelona
Spænska blaðið Sport í Katalóníu segir að Eiður Smári Guðjohnsen sé kominn út í kuldann hjá forráðamönnum Barcelona fyrir að neita að ganga í raðir West Ham á síðustu dögum félagaskiptagluggans í sumar.

Dos Santos er ekki á förum frá Barcelona
Faðir mexíkóska undrabarnsins Giovani Dos Santos hjá Barcelona segir ekkert til í blaðaskrifum á Englandi þar sem fullyrt hefur verið að Chelsea sé að undirbúa kauptilboð í drenginn. Dos Santos hefur náð að komast í aðallið Barcelona og þykir eitt mesta efni í Evrópu. Faðir hans segir drenginn ánægðan hjá Barcelona og bendir á að hann sé í viðræðum um nýjan samning við Katalóníufélagið.

Riquelme byrjaður að æfa með Villarreal á ný
Argentínski leikstjórnandinn Juan Roman Riquelme mætti í dag á sína fyrstu æfingu með spænska liðinu Villarreal í langan tíma. Riquelme var í sumar tjáð að krafta hans væri ekki lengur óskað hjá félaginu eftir ósætti hans við þjálfarann, en hann hefur nú snúið til æfinga á ný með liðinu eftir að hafa æft einn í tvær vikur.

Henry er enn að venjast gömlu stöðunni
Franski framherjinn Thierry Henry hefur verið látinn í sína gömlu stöðu á vinstri vængnum í fyrstu leikjum sínum með Barcelona á Spáni. Henry viðurkennir að hann sé enn að venjast stöðunni sem hann spilaði þegar hann var hjá Juventus, reyndar með misjöfnum árangri.

Schuster kannast vel við takta Sneijder
Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid, var að vonum ánægður með frábæran leik Hollendingsins Wesley Sneijder um helgina þegar Real Madrid burstaði Villarreal 5-0 á útivelli. Sneijder skoraði tvö mörk og lagði upp eitt og sagði Schuster hann hafa minnt sig á annan glókoll sem lék með Real á árum áður.

Dýr skilnaður í vændum hjá Thierry Henry
Franski framherjinn Thierry Henry skildi í dag við konu sína til fjögurra ára, fyrirsætuna Claire Merry. Gengið var frá skilnaðinum í réttarsal í Lundúnum í morgun en hvorugt þeirra hjóna var viðstatt. Talið er að skilnaðurinn gæti átt eftir að kosta markaskorara Barcelona vænar fúlgur.

Gio er leynivopn Franks Rijkaard
Átján ára mexíkóskur strákur sló í gegn á undirbúningstímabilinu hjá Barcelona og eykur enn við sóknarþunga snillinganna og samkeppnina hjá Eiði Smára Guðjohnsen í framlínu liðsins.

Verður Cannavaro seldur til AC Milan áður en glugginn lokar?
Vaxandi orðrómur er bæði á Ítalíu og á Spáni um að Fabio Cannavaro, varnarmaður Real Madrid, gæti verið seldur til AC Milan áður en leikmannaglugginn lokar á föstudaginn. Þessi 33 ára gamli Ítali hefur margoft sagt að hugur hans sé hjá Spánarmeisturunum en oðrómur er um að hann sé falur fyrir sjö milljónir evra.

Riguelme til Madríd?
Juan Roman Riquelme, miðjumaður Villareal, hefur samþykkt að skrifa undir tveggja ára samning við Atletico Madrid samkvæmt spænsku útvarpsstöðinni Cadena Ser. Engin opinber tilkynning hefur komið frá klúbbunum en útvarpsstöðin segist hafa heimildarmann sem er náinn leikmanninum.

Uppfært: Puerta er látinn
Spænski landsliðsmaðurinn Antonio Puerta lést í dag á Virgen del Rocio sjúkrahúsinu í Sevilla. Puerta, sem lék með knattspyrnuliði borgarinnar, hneig niður í leik við Getafe um helgina. Læknar segja að hann hafi fengið hjartaáfall.

Spænskur landsliðsmaður fékk hjartaáfall í miðjum leik
Jose Maria del Nido, forseti Sevilla, hefur staðfest að Antonio Puerta, leikmaður liðsins, hafi fengið hjartaáfall í miðjum leik liðsins gegn Getafé í gær. Líðan Puerta er stöðug en hann er þó ennþá undir eftirliti en leikmaðurinn féll niður í eigin teig í leiknum í gær á 35. mínútu leiksins. Spænski landsliðsmaðurinn stóð þó upp og gekk af velli, en þegar í búningsherbegið var komið féll hann aftur niður og var fluttur á sjúkrahús nálægt vellinum.

Robben og Heinze búnir að skrifa undir hjá Real Madrid
Real Madrid er búið að ganga frá kaupunum á Gabriel Heinze frá Manchester United og Arjen Robben frá Chelsea. Leikmennirnir skrifuðu báðir undir samning í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá félaginu. Madrid borgaði 24 milljónir punda fyrir Robben sem skrifaði undir fimm ára samning, en Heinze kostaði félagið átta milljónir punda og skrifaði hann undir fjögurra ára samning.

Van Nistelrooy valinn á ný
Ruud van Nistelrooy, framherji Real Madrid, hefur verið valinn í hollenska landsliðið á ný eftir að hafa verið úti í kuldanum frá því á HM í fyrra.

Eiður Smári hefur áhyggjur af meiðslum sínum
Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Eiðs Smára Guðjohnsens hjá Barcelona en þær eru allar í biðstöðu vegna hnémeiðsla hans. Eiður Smári hefur áhyggjur af meiðslunum því að bati er enginn og sprautumeðferð hefur ekki skilað neinum árangri. Eiður Smári vonast til að þurfa ekki að fara undir hnífinn.

Barcelona hafnar 40 milljón pundum frá AC Milan
Umboðsmaður Ronaldinho, Roberto Assis, sagði í viðtali við blaðið Gazzetta della Sport um helgina að Barcelona hefði hafnað 40 milljón punda tilboði í leikmanninn. Assis sem er einnig bróðir leikmannsins segir að svo virðist sem Barcelona ætli í staðinn að leggja fram nýtt samningstilboð sem haldi Ronaldinho hjá Barcelona til ferill hans er enda.

Hvetur Eið til að leita á önnur mið
Yfirmaður knattspyrnudeildar hjá Barcelona hvetur Eið Smára Guðjohnsen til að leita á önnur mið. Hann segir ákvörðun Eiðs um að vera áfram hjá félaginu, slæma ákvörðun.

Sevilla hefur hafnað tveimur tilboðum í Alves
Forráðamenn Sevilla segjast hafa hafnað tveimur tilboðum í bakvörðinn eftirsótta Daniel Alves. Ástæðuna segja þeir vera að þeir séu að bíða eftir ásættanlegu tilboði. Talið er að Chelsea standi á bakvið tilboðin sem hljómuðu upp á 21,7 milljónir punda og 23,7 milljónir punda, en Chelsea hefur verið sterklega orðað við leikmanninn.

Nicolau Casaus látinn
Nicolau Casaus, fyrrverandi varaforseti Barcelona er látinn, 94 ára að aldri. Í virðingarskyni fyrir Casaus verður öllum fánum liðsins flaggað í hálfa stöng í dag. Minningarathöfn þessa sterka persónuleika verður haldin á hádegi á morgun við Tanatorio de Les Corts í Barcelona.

Valencia að tryggja sér Zigic?
Samkvæmt breskum fjölmiðlum hefur spænska liðið Valencia náð samkomulagi um kaup á hávaxna framherjanum Nikola Zigic frá Racing Santander. Talið er að umsamið verð á leikmanninum sé um 10,1 milljón punda. Fleiri félög hafa sýnt þessum serbneska landsliðsmanni áhuga, þ.á.m. Manchester City, Werder Bermen og Fenerbache.