
Ítalski boltinn

Cassano: Það er ekki búið að jarða Inter
Ítalski farandframherjinn Antonio Cassano segir að það sé allt of snemmt að afskrifa lið hans, Inter, úr baráttunni á Ítalíu.

Zeman rekinn frá Roma
Hinn reyndi tékkneski þjálfari, Zdenek Zeman, er í leit að nýrri vinnu eftir að hann var rekinn frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Roma um helgina.

Balotelli er frábær gaur
Hinn ungi leikmaður AC Milan, M'Baye Niang, er afar ánægður með að hafa fengið Mario Balotelli til félagsins og talar fallega um óstýriláta Ítalann.

Balotelli skoraði tvö en segist ekki vera í formi
Mario Balotelli var ekki lengi að stimpla sig inn í ítalska boltann en hann skoraði bæði mörk AC Milan í 2-1 sigri á Udinese í gær.

Balotelli skoraði bæði í 2-1 sigri Milan
Mario Balotelli byrjaði ferilinn hjá AC Milan með stæl. Hann var óvænt í byrjunarliðinu gegn Udinese og skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri.

Inter tapaði fyrir botnliðinu á Ítalíu
Inter tapaði óvænt fyrir botnliði Siena, 3-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Liðið hefur því unnið aðeins einn af síðustu sjö deildarleikjum sínum.

Juventus endurheimti þriggja stiga forystu
Juventus situr aftur eitt á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á Chievo í dag.

Emil átti þátt í marki en Verona tapaði stigum
Emil Hallfreðsson átti þátt í marki Hellas Verona þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Reggina á útivelli í ítölsku b-deildinni í fótbolta í kvöld.

Það versta við árin í Englandi: Pressan, veðrið og maturinn
Mario Balotelli var kynntur sem nýr leikmaður AC Milan á blaðamannafundi í kvöld en ítalska félagið keypti hann frá Manchester City fyrir 19 milljónir punda.

Maradona sýknaður eftir 30 ára baráttu eða hvað?
Diego Maradona getur nú snúið aftur til Ítalíu á ný án þess að eiga það á hættu að lenda í klónum á skattalögreglunni. Maradona vann í dag mál sem ítalski skatturinn hafði höfðað gegn kappanum. Svo segir lögfræðingur hans en ítalski skatturinn er ekki á sama máli.

Balotelli orðinn leikmaður AC Milan
Mario Balotelli er formlega genginn til liðs við AC Milan frá Englandsmeisturum Manchester City.

Birkir lék er Pescara steinlá
Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir Pescara sem steinlá á útvelli gegn Sampdoria 6-0 í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Sampdoria var 2-0 yfir í hálfleik.

Anelka með Juventus næstu fimm mánuðina
Franski framherjinn Nicolas Anelka er orðinn leikmaður ítalska liðsins Juventus og mun klára tímabilið með ítölsku meisturunum. Anelka kemur á láni frá kínverska félaginu Shanghai Shenhua.

Emil lagði upp sigurmark Hellas Verona
Emil Hallfreðsson lagði upp sigurmark Hellas Verona þegar liðið vann 1-0 útisigur á Spezia í ítölsku b-deildinni í fótbolta í dag. Sigurmarkið kom níu mínútum fyrir leikslok.

AC Milan fær Mario Balotelli ekki á láni
Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport segir frá því í morgun að Manchester City hafi hafnað beiðni AC Milan um að fá ítalska framherjann Mario Balotelli á láni fram á vor.

Llorente fer í Juventus á næsta tímabili
Juventus tilkynnti það á heimasíðu sinni í dag að Fernando Llorente, framherji Athletic Bilbao og spænska landsliðsins, verði leikmaður félagsins frá og með næsta tímabili.

Real Madrid og Barcelona tekjuhæstu félög heims
Áttunda árið í röð er spænska félagið Real Madrid það fótboltafélag í heiminum sem aflaði mestra heildartekna. Efstu sex félögin á lista Deloitte eru þau sömu og fyrir ári síðan en af þeim var það aðeins Manchester United (3. sæti) sem skilaði minni tekjum milli ára. Tvö efstu félögin koma frá Spáni en England á fimm félög inn á topp tíu listanum.

AC Milan mistókst að fá Kaka frá Real Madrid
Adriano Galliani, varaformaður AC Milan, hefur staðfest að félagið hafi ekki efni á því að fá Brasilíumanninn Kaka frá Real Madrid. Real Madrid keypti Kaka frá AC Milan árið 2009 en leikmaðurinn hefur ekki staðið sig vel á Santiago Bernabeu þau þrjú tímabil sem hann hefur spilað þar.

Þessi vildi ekki vera hjá Manchester United
Paul Pogba var maður helgarinnar í ítalska boltanum en þessi fyrrum leikmaður Manchester United átti magnaðan leik með Juventus þegar liðið vann 4-0 sigur á Udinese á laugardagskvöldið.

Gullskór Evrópu: Alfreð og Aron jafnir - Messi langefstur
Lionel Messi hjá Barcelona hefur 22 stiga forskot á þríeykið Radamel Falcao, Robin van Persie og Cristiano Ronaldo í baráttunni um Gullskó Evrópu en danska Tipsblaðið fór yfir stöðuna í baráttunni um Gullskóinn eftirsótta.

Birkir og félagar í Pescara töpuðu | Milan á sigurbraut
Sex leikir fóru fram í ítölsku seríu A-deildinni í knattspyrnu í dag en Birkir Bjarnason og félagar í Pescara töpuðu illa fyrir Torino 2-0 á heimavelli.

Milan bara á eftir Kaká
Forsvarsmenn AC Milan hafa dregið til baka þær vangaveltur um að félagið sé að reyna að ná í Mario Balotelli, leikmann Manchester City. Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport var með frétt um að Kaka og Balotelli væru báðir á leiðinni til Milan en Adriano Galliani, varaforseti Milan, segir svo ekki vera.

Milan vill fá Kaká lánaðan
AC Milan tilkynnti í dag að félagið hefði hafið viðræður við Real Madrid um að fá Brasilíumanninn Kaká að láni.

Internazionale í undanúrslit ítalska bikarsins
Miðvörðurinn Andrea Ranocchia tryggði Internazionale sæti í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar í kvöld þegar hann skoraði sigurmark liðsins í framlengingu. Internazionale vann þá 3-2 heimasigur á Bologna.

Berlusconi biður Balotelli afsökunar
Hinn litríki eigandi AC Milan, Silvio Berlusconi, fór ekki fögrum orðum um landa sinn, Mario Balotelli, á kjöri knattspyrnumanns ársins hjá FIFA.

Birkir og félagar töpuðu fyrir Inter
Inter skaust upp í þriðja sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar þegar að liðið vann 2-0 sigur á Pescara á heimavelli.

Inter tók tilboði Galatasaray í Sneijder
Massimo Moratti, forseti Inter á Ítalíu, staðfesti í gærkvöldi að félagið hefði samþykkt tilboð tyrkneska félagsins Galatasaray í Wesley Sneijder.

Vucinic skaut Juve í undanúrslit bikarsins
Juventus er komið í undanúrslit ítölsku bikarkeppninnar eftir dramatískan sigur, 2-1, á AC Milan eftir framlengdan leik.

Umboðsmaður Drogba staðfestir áhuga Juventus
Thierno Seydi, umboðsmaður Didier Drogba, hefur staðfest að hann hafi verið í sambandi við ítalska stórliðið Juventus vegna áhuga þess á skjólstæðingi sínum.

City hefur augastað á Cavani
Angelo Gregucci, aðstoðarþjálfari hjá Manchester City, segir að félagið hefði áhuga á sóknarmanninum Edinson Cavani hjá Napoli - ef hann væri til sölu.