Einvígi aldarinnar

Munir úr einvígi aldarinnar til sýnis
Stærsta einkasafn muna úr einvígi þeirra Bobby Fischers og Boris Spasskí verður sýnt um helgina á sýningu Landssambands íslenskra frímerkjasafnara.

Rannsaka hvað varð um muni úr einvígi aldarinnar
Skáksamband Íslands ætlar að skipa nefnd sem á að rannsaka hvað varð um muni, tengda svonefndu einvígi aldarinnar, þegar Boris Spassky og Bobby Fischer telfdu um heimsmeistaratitilinn í skák í Laugadalshöll árið 1972.

Þetta var sko almennilegt skákpartý
Í tilefni af útkomu skáldsögunnar Lygarinn eftir Óttar M. Norðfjörð var partý í versluninni Eymundsson á Skólavörðustíg þar sem eitt einvígisborðanna frá einvígi aldarinnar var notað hvorki meira né minna.

Harma að taflborðið hafi verið selt úr landi
Skáksamband Íslands harmar að einstakir munir úr einvígi aldarinnar 1972 gangi kaupum og sölum og séu jafnvel seldir úr landi, segir í tilkynningu frá sambandinu.

Seldi skákborðið fyrir tæpar átta milljónir
Einvígisborðið úr þriðju einvígisskák einvígis aldarinnar var selt á uppboði í dag hjá Philip Weiss samkvæmt skák.is. Borðið seldist á 67.500 dollara, eða á um 7.750.000 krónur.

Selur sögufræga taflmenn til að borga erlent lán
"Þetta eru taflmennirnir sem þeir Boris Spasskí og Bobby Fischer tefldu með í þriðju skákinni í einvíginu mikla árið 1972 ásamt skákplötu, áritaðri af þeim báðum,“ segir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og fyrrum forseti Skáksambands Íslands.

Spasský spurði um laust pláss við hlið Fischers
Skákmeistarinn Boris Spasský spurði hvort laust pláss væri við hlið Bobby Fischers í kirkjugarðinum að Laugardælum um leið og hann lagði blómsveig að leiði hans í dag.