

Stjórn fasteignafélagsins Regins hyggst standa við áform sín um að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar. Stjórnir fasteignafélaganna Reita og Eikar tilkynntu á föstudag að þær hafi samþykkt að ganga til samrunaviðræðna.
Stjórnir fasteignafélaganna Eikar og Reita hafa samþykkt að ganga til viðræðna um mögulega sameiningu félaganna. Fasteignafélagið Reginn gerði nýverið yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar en stærsti eigandi félagsins lagðist gegn tilboðinu. Vill stjórn Eikar kanna hvort grundvöllur sé fyrir samruna við Reiti sem væri hluthöfum hagfelldari en fyrirhugað yfirtökutilboð.
Brimgarðar, langsamlega stærsti eigandi fasteignafélagsins Eikar, leggjast gegn yfirtökutilboði Regins í félagið. Brimgarðar eru dótturfélag Langasjós, eignarhaldsfélags Mata-systkinanna svokölluðu.
Afstaða fjárfestingafélagsins Brimgarða, sem er langsamlega stærsti hluthafi Eikar fasteignafélags, til yfirtökutilboðsins sem keppinauturinn Reginn hefur lagt fram gæti ráðið úrslitum um það hvort yfirtakan nái fram að ganga.
Samruni Regins og Eikar gæti ýtt undir meiri áhuga fjárfesta á félögunum, að mati sjóðstjóra lífeyrissjóðs sem fer með stóran hlut í báðum fyrirtækjum, en markaðsvirði fasteignafélaga er langt undir upplausnarvirði þeirra. Ekki kæmi óvart ef fleiri sambærileg tíðindi myndu berast á næstu tólf mánuðum, að sögn hlutabréfagreinenda.
Hópur fjárfesta sem ræður yfir talsverðum meirihluta hlutafjár í Eik, einkum lífeyrissjóðir, hefur í markaðsþreifingum sem hófust fyrr í vikunni tekið jákvætt í yfirtökutilboð Regins en íslensku fasteignafélögin hafa átt undir högg að sækja á hlutabréfamarkaði um nokkurt skeið. Langsamlega stærsti hluthafi Eikar er fjárfestingafélagið Brimgarðar, með rúmlega fjórðungshlut, en með sameinuðu félagi er meðal annars horft til þess að ná fram hagstæðari fjármögnun og meira floti á bréfum þess.
Stjórn Regins hf. hefur ákveðið að leggja fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Eikar fasteignafélags hf. Tilboðið verður að fullu fjármagnað með útgáfu nýs hlutafjar í Regin að fenginni heimild hlutahafafundar.
Eik fasteignafélag hefur hætt við að kaupa garðyrkjustöðvarnar Lambhaga í Úlfarsdal og Lund í Mosfellsdal. Kaupverð var áætlað 4,2 milljarðar króna.
Áform eru uppi um stækkun Glerártorgs sem mun þá innihalda 500 fermetra mathöll. Stefnt er að endurskipulagningu verslunarmiðstöðvarinnar og fjölgun bílastæða.
Fasteignafélagið Eik er í þann mund að ganga frá kaupum á garðyrkjustöðvunum Lambhaga í Úlfarsárdal og Lundi í Mosfellsdal. Kaupverðið er áætlað 4,2 milljarðar króna.
Samið hefur verið um að Menntaskólinn í Reykjavík fái úthlutað rúmlega 1.500 fermetra húsnæði til afnota fyrir skólann í Austurstræti 17.
Eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði í miðbænum var dræm á síðasta ári samkvæmt nýrri ársskýrslu Eikar fasteignafélags. Forstjóri félagsins segir að tilkoma Borgarlínunnar muni breyta stöðunni til muna.
Fyrirséð er að stjórn Eikar fasteignafélags taki breytingum á næsta aðalfundi sem verður haldinn í lok mars en tveir stjórnarmenn félagsins hyggjast ekki sækjast eftir endurkjöri.
Þjóðarsjóður Kúveit, einn stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, fjárfesti í fasteignafélaginu Eik fyrir vel á þriðja hundrað milljónir króna í síðasta mánuði.
Á árinu sem er að renna sitt skeið á enda hefur Eik fasteignafélag hækkað afkomuspá sína í tvígang og nýtt lágvaxtaumhverfið til að endurfjármagna stóran hluta af skuldum félagsins. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, segir óskandi að árið 2022 verið árið sem samfélagið læri að lifa endanlega með veirunni.
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Eikar fasteignafélags um að fá leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli félagsins gegn Andra Má Ingólfsson, fjárfesti og fyrrverandi aðaleiganda Primera Air. Málið varðaði kaup félagsins á Hótel 1919 af fjárfestinum árið 2016.
Fjárfestingafélagið Kristinn, sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur útgerðarkonu, keypti hlutabréfa í fasteignafélaginu Eik fyrir meira en 200 milljónir króna í nóvember. Þetta má lesa út úr nýjum lista yfir tuttugu stærstu hluthafa Eikar.
Um er að ræða fjórðu verslun sænsku keðjunnar sem opnar hér á landi.
Sjóðstreymið öskrar: Kaupa, segir í verðmati Arion banka á fasteignafélaginu Eik.
Frá árinu 2009 hefur Lýður starfað hjá Lífsverki lífeyrissjóði.