Evrópudeild karla í handbolta

Fréttamynd

Danir fjalla um niður­læginguna á Hlíðar­enda

Fjallað er um stórt tap danska úrvalsdeildarfélagsins Mors-Thy hér á landi gegn Val í dönskum miðlum. Einn helsti handboltasérfæðingur Dana segir að um mikil vonbrigði séu að ræða og um leið hrósar hann Björgvini Páli Gústavssyni.

Handbolti
Fréttamynd

„Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“

„Ég held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld. Þetta er frábært handboltalið, spilar frábæran handbolta og er mjög rútínerað. Að vinna svona lið með ellefu mörkum er ekkert grín,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, eftir sigur á heimavelli í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í Evrópudeildinni. Danska liðið Mors-Thy lá í valnum í kvöld, en um er að ræða lið sem endaði í fjórða sæti á síðasta tímabili í dönsku úrvalsdeildinni. Lokatölur 39-28 fyrir Val.

Handbolti
Fréttamynd

Á­fram þrátt fyrir tap í Íslendingaslag

Melsungen er komið áfram í undanúrslit Evrópudeildarinnar í handbolta þrátt fyrir tap gegn Porto í Íslendingaslag í kvöld. Þýska liðið far áfram á samanlögðum sigri í tveggja leikja einvígi liðanna.

Handbolti
Fréttamynd

Stórleikur Kristjáns dugði skammt

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, var markahæstur í liði AGF sem féll úr keppni í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld eftir jafntefli við þýska stórliðið Flensburg.

Handbolti
Fréttamynd

Í afar erfiðum málum eftir stórt tap

Íslendingalið Melsungen er í slæmum málum í umspili fyrir átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í handbolta eftir sex marka tap gegn danska liðinu Fredericia í fyrri leik liðanna í kvöld, lokatölur 35-29 Fredericia í vil.

Handbolti
Fréttamynd

Íslendingaliðið tapaði stórt en fer í umspil

Íslendingalið Melsungen tapaði með níu mörkum,34-25, gegn Vardar í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld og þarf því að fara í umspil um sæti í átta liða úrslitum. Á sama tíma hafði Kristianstad betur gegn Benfica í Íslendingaslag.

Handbolti
Fréttamynd

Ótrú­leg dramatík í Ís­lendinga­slag þar sem ör­lögin réðust

Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Kristján Örn Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir SAH í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld þegar að liðið glutraði niður góðri stöðu gegn Porto og mátti sætta sig við tap sem sér til þess að liðið missir af beinu sæti  í átta liða úrslit keppninnar. Lokatölur 29-30, eins marks  sigur Porto.

Handbolti
Fréttamynd

Þor­steinn Leó með sigur­mark á loka­sekúndunum

Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Þorsteinn Leó Gunnarsson, reyndist hetja Porto er hann tryggði liðinu sigur í spennutrylli gegn spænska liðinu Granollers í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 34-33 sigur Porto.

Handbolti
Fréttamynd

Einar Bragi öflugur í mikil­vægum Evrópusigri

Einar Bragi Aðalsteinsson hafði betur í Íslendingaslag gegn Arnari Frey Arnarssyni og Reyni Þór Stefánssyni þegar að lið hans Kristianstad lagði að velli Melsungen í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Lokatölur 31-30.

Handbolti
Fréttamynd

„Hlustið á leik­mennina“

Gísli Þorgeir Kristjánsson og Viktor Gísli Hallgrímsson eru hluti af hópi handboltafólks sem krefst þess að hlustað verði á leikmenn og leikjaálagið minnkað.

Handbolti
Fréttamynd

„Ég held að þetta geri okkur alla betri“

„Þetta var náttúrulega bara allt annað en leikurinn í síðustu viku,“ sagði Breki Hrafn Árnason, markvörður Fram, eftir tap liðsins gegn Kriens-Luzern í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld.

Handbolti