
Sveddi tönn handtekinn

Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna
„Hann er klókur. Og hann er rosalega bíræfinn í því sem hann ætlar sér,“ segir Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn á alþjóðasviði ríkislögreglustjóra og á þar við Sverri Þór Gunnarsson, eða Svedda tönn, sem nú bíður dóms í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot á alþjóðavísu og skipulagða glæpastarfsemi.

Sverrir Þór dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsi í Brasilíu
Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi Tönn hefur verið dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsi í Brasilíu fyrir fíkniefnabrot. Dómur féll í Ríó de Janeiro þann 23. nóvember síðastliðinn en Sverrir Þór var dæmdur fyrir að hafa í vörslu sinni 150 grömm af maríjúana og 3,6 grömm af kókaíni ætluð til sölu og dreifingar.

Barnsmóðir Svedda tannar einnig handtekin
Sverrir Þór Gunnarsson, einnig þekktur sem Sveddi tönn, sagðist vera tónlistarmaður að atvinnu þegar hann var yfirheyrður af lögreglu þann 12. apríl síðastliðinn. Hann er sem stendur vistaður í alræmdu gæsluvarðhaldsfangelsi í útjaðri Rio de Janeiro í Brasilíu.

Sveddi tönn ákærður í Brasilíu
Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn, hefur verið ákærður af ríkissaksóknara í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða glæpastarfsemi. Þann 3. júlí síðastliðinn var fyrirtaka í málinu hjá dómstól í Rio de Janeiro þar sem sönnunargögn voru lögð fram.

Framsal ekki mögulegt í tilfelli Svedda tannar
Sverrir Þór Gunnarsson hefur neitað að tjá sig í yfirheyrslum brasilísku alríkislögreglunnar í tengslum við umfangsmikla sakamálarannsókn þar í landi. Sem stendur er hann vistaður í fangelsi í Rio de Janeiro. Ekki kemur til greina að framselja Svedda til Íslands.

Strákurinn úr Breiðholti sem gerðist fíkniefnabarón
„Hinn ákærði sýnir merki um andfélagslegan persónuleika, sem endurspeglast í því að hann á erfitt með að laga sig að reglum samfélagsins. Hinn ákærði er drifinn áfram af voninni um skjótfenginn gróða.“ Þetta kemur fram í niðurstöðu dómstóls í Ríó de Janeiro árið 2012, þegar Sverrir Þór Gunnarsson var dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl. Vinur Sverris úr æsku segir hann alltaf hafa verið glæpamann.

Maðurinn sem lést í Brasilíu ekki talinn höfuðpaur
Íslenskur maður sem til stóð að handtaka í tengslum við umfangsmiklar aðgerðir brasilísku lögreglunnar lést úr krabbameini fyrr á þessu ári á meðan rannsókn málsins stóð yfir. Því er ljóst að að minnsta kosti tveir Íslendingar tengjast málinu.

Fleiri handtökur í Brasilíu í máli Svedda tannar
Maður var handtekinn síðdegis í gær í borginni Rio de Janeiro, grunaður um aðild að glæpahringnum sem Sverrir Þór Gunnarsson er sakaður um að hafa stýrt. Maðurinn var handtekinn í verslunarmiðstöðinni Barra da Tijuca, í vesturhluta borgarinnar. Brasilískir miðlar greina frá þessu.

Ætluðu að handtaka annan Íslending en hann lést í miðri rannsókn
Handtökuskipun var gefin út á hendur tveimur Íslendingum í Brasilíu í tengslum við umfangsmiklar aðgerðir brasilísku lögreglunnar í gær. Annar þeirra, Sverrir Þór Gunnarsson, var handtekinn en hinn maðurinn lést á meðan rannsókn málsins stóð yfir.

Tengsl við Afríku og tvær rótgrónar fangelsisklíkur
Fíkniefnahringirnir sem Sverrir Þór Gunnarsson og ítalskur karlmaður eru sagðir hafa stýrt í Brasilíu smygluðu ekki aðeins efnum til og frá Evrópu heldur Afríku og annarra landa Suður Ameríku einnig. Þá hafa hringirnir tengsl við tvö alræmd og rótgróin glæpasamtök í fangelsum.

Ekki hægt að útiloka að fleiri Íslendingar verði handteknir
Yfirlögregluþjónn á alþjóðasviði ríkislögreglustjóra segir ekki vera hægt að útiloka að fleiri Íslendingar verði handteknir í tengslum við rannsókn á streymi fíkniefna frá Brasilíu til Evrópu. Mun það skýrast síðar hvort farið verði fram á framsal á Íslendingi sem var handtekinn í Brasilíu í morgun.

Sveddi tönn handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum í Brasilíu
Íslenskur karlmaður var handtekinn í Brasilíu í morgun í umfangsmiklum aðgerðum brasilísku lögreglunnar í samvinnu við meðal annars íslensku lögregluna. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn.

Þvertekur fyrir tengsl við fíkniefnaheiminn og segist ekki þekkja Svedda tönn
Guðmundur Spartakus segist byggja brunna og setja upp girðingastaura í Paragvæ.

Segist vera saklaus dópisti og að fjölmiðlar beri ábyrgð á þungum dómi
Sverrir Þór Gunnarsson, eða Sveddi tönn eins og hann er að jafnaði kallaður, sakar fjölmiðla um að hafa haft áhrif á réttarkerfið i Brasilíu, en hann var dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir skömmu vegna innflutnings á 50 þúsund e-pillum til landsins.

Sverrir Þór dæmdur í 22 ára fangelsi í Brasilíu
Sverrir Þór Gunnarsson, gjarnan nefndur Sveddi tönn hefur verið dæmdur í 22 ára fangelsi í Brasilíu, að því er DV segist hafa heimildi fyrir.

Gengi Svedda tannar handtekið í Hollandi
Þrír nánir samverkamenn fíkniefnasmyglarans Sverris Þórs Gunnarssonar, Svedda tannar, voru handteknir í Amsterdam í Hollandi 18. ágúst síðastliðinn eftir að rúmlega tvítug íslensk kona sakaði þá um að ætla að selja hana í vændi í Brasilíu.

Mál Svedda eru enn í rannsókn
Mál Sverris Þórs Gunnarssonar, Svedda tannar, er enn til rannsóknar hjá lögreglunni í Rio de Janeiro í Brasilíu. Hann situr enn í varðhaldi vegna málsins og óvíst er hvort og þá hvenær hann verður framseldur til Spánar vegna eldri dóms, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Sveddi tönn var með falsað vegabréf og íslenskt sælgæti
"Við lögðum út net og náðum hákarli,“ segir yfirmaður hjá lögreglunni í Rio De Janeiro í Brasilíu um handtöku Sverris Þórs Gunnarssonar þar í landi. Sverri framvísaði fimm daga gömlu vegabréfi, útgefnu á Íslandi, þegar hann var handtekinn.

Flúði níu ára fangelsisdóm á Spáni
Sverrir Þór Gunnarsson, Sveddi tönn, er með níu ára óafplánaðan fangelsisdóm á bakinu á Spáni fyrir fíkniefnasmygl. Hann lagði á flótta eftir að dómurinn féll og síðan hefur hann verið eftirlýstur af spænskum yfirvöldum.

Óvíst um framsal Sverris
Ekki er í gildi framsalssamningur við Brasilíu og því óvíst að hægt yrði að fá Sverri Þór Gunnarsson framseldan hingað þrátt fyrir að hann sé grunaður um glæpi hér. Ekki borist formleg staðfesting á nafni hans.

Hver er þessi Sveddi tönn? Þræðir liggja víða
Það er óhætt að segja að Sverrir Þór Gunnarsson, eða Sveddi tönn, eins og hann er kallaður, sé nokkurskonar huldumaður undirheima Íslands. Eins og fram hefur komið var hann handtekinn í Ríó de Janeiro í vikunni eftir að unnusta hans var handtekinn á alþjóðaflugvelli þar í borg með hátt í 50 þúsund E töflur. Sverrir er fæddur árið 1972 en brotaferill hans hófst þegar hann var sextán ára gamall. Þá voru brot hans nokkuð hefðbundin, ef svo má að orði komast, hann var dæmdur fyrir minniháttar fíkniefnabrot og umferðalagabrot. Sverrir fékk viðurnefnið Sveddi tönn út af tannlýti.

Sveddi tönn tekinn höndum í Brasilíu
Sverrir Þór Gunnarsson, einn höfuðpauranna í stóra fíkniefnamálinu, handtekinn í Rio de Janeiro vegna smygls á 46.000 e-töflum. Gaf upp falskt nafn.

Benti á Svedda tönn
Sakborningur í stóru fíkniefnamáli bar fyrir dómi í gær að Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn, hefði lagt á ráðin um innflutning efnanna, ríflega eins og hálfs kílós af kókaíni. Annar sakborningur viðurkenndi að hafa átt samskipti að undanförnu við Sverri, sem dvelur á Spáni, og millifært á hann þrjár milljónir um síðustu jól.

Kókaínmálið: Lagði 3 milljónir inn á reikning Íslendings á Spáni
Einn af sakborningunum í kókaínmálinu staðfesti fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hann hefði haft samband við Sverri Þór Gunnarsson á Spáni. Sverrir var á upphafsstigum málsins talinn hafa staðið að kaupum efnisins á Spáni og er eftirlýstur af Europol.

Grunuðum fíkniefnakóngi stefnt vegna barnsfaðernismáls
Sverri Þór Gunnarssyni hefur verið stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í tengslum við barnsfaðernismál. Sverrir Þór hefur farið huldu höfði á Spáni síðustu ár. Hans hefur einnig verið leitað, meðal annars af Europol, í tengslum við skipulagðan innflutning á fíkniefnum frá Spáni.

Höfuðpaur í stóra fíkniefnamálinu talinn skipuleggja dópsmygl
Einn af höfuðpaurunum í stóra fíkniefnamálinu svokallaða frá árinu 1999 var búsettur í Brasilíu í mörg ár og er grunaður um að eiga aðild að skipulögðu dópsmygli frá Brasilíu til Íslands. Mörg íslensk burðardýr hafa verið tekin í landinu undanfarin ár.