Mansal

Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra
Dómsmálaráðherra gefur lítið fyrir gagnrýni lögmanns á meinta vanþekkingu hennar á eigin málaflokki. Starfshópur sem hún skipaði til að yfirfara reglur um dvalarleyfi sé mannaður af sérfræðingum í málaflokknum.

Stefnir í annað metár í frávísunum
Fimmfalt fleiri tilkynningar vegna gruns um mansal hafa borist til ríkislögreglustjóra síðustu þrjú ár en árin þrjú á undan. Þá hafa frávísanir á landamærum margfaldast á sama tímabili. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vonar að auknar aðgerðir lögreglu og tolls á landamærunum hafi varnaðaráhrif.

Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkar verulega
Umsóknum um alþjóðlega vernd hefur fækkað verulega frá því í fyrra. Tilkynningum vegna gruns um mansal hefur farið fjölgandi síðustu þrjú ár. Þetta, og fleira, kemur fram í nýju fréttabréfi ríkislögreglustjóra um stöðuna á landamærunum. Einnig er fjallað um komur skemmtiferðaskipa og fiskiskipa til landsins í fréttabréfinu.

Tvær unglingsstúlkur í haldi: „Þetta er fólkið sem verið er að hagnýta“
Tvær unglingsstúlkur eru í gæsluvarðhaldi vegna innflutnings á tuttugu þúsund töflum af gerviópíóðum. Önnur er á barnsaldri. Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands telur stúlkurnar í viðkvæmri stöðu, oftast sé um að ræða fórnarlömb mansals í málum sem þessum.

Má bera eiganda Gríska hússins út
Leigusali húsnæðis á Laugavegi má bera út eiganda veitingastaðarins Gríska hússins en staðurinn hefur verið til húsa í umræddu húsnæði um nokkurra ára skeið. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þessari niðurstöðu og hefur Landsréttur staðfest hana.

„Við segjum kynlífsvinna því það er okkar upplifun“
Rauða regnhlífin segir ný lög í Belgíu bæta stöðu kynlífsverkafólks verulega. Það séu gallar á löggjöfinni en lögin séu fordæmi sem vert sé að fylgjast með. Samtökin telja margt hægt að gera betur á Íslandi fyrir þolendur vændis og fólk í ýmiss konar kynlífsvinnu. Sem dæmi þurfi styrkari fjárhagsaðstoð og betri fræðslu fyrir fagaðila.

30 ætlaðir þolendur Quang Lé lifi við óvissu og óöryggi
Um 30 ætlaðir þolendur mansals Quang Lé búa nú við mikla óvissu þegar einungis nokkrir mánuðir eru eftir af gildistíma dvalarleyfa þeirra hér á landi. Sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum segir mikilvægt að stjórnvöld stígi inn í.

Stjórnvöld verða að standa með þolendum mansals – níu mánuðum síðar
Í sumarbyrjun tókst að koma öllum ætluðum þolendum Quang Lé í (tímabundið) var. Með dugnaði þeirra sjálfra, ásamt samstilltu átaki verkalýðshreyfingarinnar, Vinnumálastofnunar, velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Bjarkarhlíðar, tókst að grípa hópinn, finna störf fyrir þau og tryggja þannig grundvöll fyrir dvöl þeirra í landinu til eins árs.

Mansalsmál Gríska hússins: Vann sjö daga í viku hverri og svaf í kjallaranum
Brotaþoli í mansalsmáli, sem lögregla hefur til rannsóknar og tengist veitingastaðnum Gríska húsinu, sagði í skýrslutöku að hann hafi verið látinn vinna sjö daga í hverri viku, stundum 30 daga í mánuði. Hann, ásamt öðrum manni, fannst sofandi á dýnu í kjallara hússins þegar lögregla réðist þar í húsleit.

Ekkert mansal á Íslandi í 15 ár?
Árið 2009 er mörgum eftirminnilegt. Þá var hægt að halda skemmtilegt Eurovisionpartí, svínaflensan herjaði á heiminn, íslenskur almenningur lærði að lifa með gjaldeyrishöftum og efnahagshrunið var í algleymingi.

Íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði
Samfylkingin gerir kröfu um íslensk kjör á íslenskum vinnumarkaði. Verðmætasköpun í landinu þarf að standa undir þeim kjörum sem samið er um í kjarasamningum og réttindi og aðstæður vinnandi fólks verða að samræmast íslenskum lögum. Þessi krafa gildir jafnt um Íslendinga og útlendinga sem hér vinna.

Hvar er fótspor stjórnvalda gegn vinnumansali?
Tugir ef ekki hundruð erlendra starfsmanna eru lokkuð til landsins á fölskum forsendum. Síðan er þetta fólk svikið um umsamin og boðleg laun. Það býr í óboðlegu húsnæði en borgar fyrir það himinháa leigu.

Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy
Arnar Eggert Thoroddsen aðjúnkt í félagsfræði við háskóla Íslands og doktor í tónlist segir líklegt að lögregla eigi eftir að fletta ofan af fleirum í rannsókn sinni á Sean Diddy Combs. Combs hefur verið sakaður um mansal, skipulagða glæpastarfsemi, mútugreiðslur auk kynferðisbrota. Rætt var við Arnar Eggert í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum
Finnskur sérfræðingur í hvernig taka eigi á vinnumansali segir Íslendinga verða að skerpa á því hvernig taka eigi á mansali. Mikilvægt sé að hamra járnið á meðan það er heitt líkt og nú eftir mál Quang Le.

Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar
Sérfræðingur hjá ASÍ vill skoða hvort takmarka eigi starfsemi starfsmannaleiga. Starfsmenn leiganna séu of útsettir fyrir mansali þótt að alls ekki allar starfsmannaleigur gerist sekar um vinnumansal.

Er padda í vaskinum?
Íslenskt samfélag er stundum svo „öðruvísi“. Undanfarið hafa verið fluttar fréttir af skorti á eftirliti til dæmis á vinnusvæðum og nú síðast berast fréttir af hræðilegu vinnumansali. Hvernig má það vera?

Bein útsending: Ráðstefna ASÍ og SA um vinnumansal á Íslandi
Ráðstefna Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands um vinnumansal á Íslandi fer nú fram í Hörpu en dagskráin hefst klukkan tíu og stendur til klukkan fjögur seinnipartinn.

Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir
Ekki var talin ástæða til þess að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa ætlað sér að hagnýta tvær stúlkur sem komu til landsins í mansali. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim rann út í gær og þeir ganga því lausir.

Reyndist ekki faðir stúlknanna
Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa ætlað sér að hagnýta tvær stúlkur sem komu til landsins í mansali. Annar mannanna var skráður faðir stúlknanna í kerfum íslenskra stjórnvalda en rannsókn á lífsýnum leiddi í ljós að það var ekki rétt.

Berjaforkólfar fyrir dóm vegna mansals
Réttarhöld yfir forstjóra stærsta berjafyrirtækis Finnlands og taílenskum viðskiptafélaga hans vegna mansals á berjatínslufólki hófust í Lapplandi í dag. Slæmur aðbúnaður farandverkamanna í finnska berjaiðnaðinum hefur verið í brennidepli síðustu ár.

Ráðuneyti tína til milljónir fyrir nýjum starfsmanni
Tvö ráðuneyti hafa sameinast um að veita Bjarkarhlíð 28 milljóna króna styrk til þess að sinna verkefnum tengdum mansali.

Grunuðu nánast fjörutíu staði um mansal og vændisstarfsemi
Dagana 3. - 9. júní fóru íslensk lögregluyfirvöld um níutíu eftirlitsferðir á tæplega fjörutíu staði þar sem vændi, betl og önnur brotastarfsemi var talin þrífast. Lögreglan var með þessu að taka þátt í alþjóðlegum aðgerðadögum Europol, Frontex og Interpol gegn mansali. Höfð voru afskipti af 221 einstaklingi á landamærum og á höfuðborgarsvæðinu.

Heilsaði upp á meint fórnarlömb sín
Síðan veitingamaðurinn Quang Le var látinn laus úr gæsluvarðhaldi hefur hann heimsótt fyrrverandi starfsfólk sitt og meint mansalsfórnarlömb á nýja vinnustaði þeirra. Sérfræðingur í mansalsmálum segir um dæmigerða vendingu í mansalsmálum að ræða.

Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur
Verkefnastjóri hjá ASÍ óttast að Quang Le muni reyna að hafa samband við meinta mansalsþolendur í máli hans. Ábendingum þeirra til lögreglu um mansal á Íslandi fjölgar ört.

Quang Lé laus úr gæsluvarðhaldi en í farbanni
Quang Lé og tveir aðrir sem grunaðir eru um mansal og fleiri glæpi eru laus úr gæsluvarðhaldi. Um er að ræða tvo karla og eina konu. Þau hafa verið úrskurðuð í tólf vikna farbann. Þau hafa öll verið í gæsluvarðhaldi frá því í mars. Rannsókn miðar vel að sögn lögreglu.

Gríska húsinu lokað
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lokaði veitingastaðnum Gríska húsinu í kjölfar aðgerða lögreglu í gær.

Eigandi Gríska hússins: „Erum við einhver mafía?“
Eigandi Gríska hússins, Zakaria Handawi, segist ávallt hafa starfað innan laganna ramma. Hann er sjálfur staddur erlendis og botnar ekkert í aðgerðum lögreglu.

Grunur um mansal á Gríska húsinu
Þrír voru handteknir í aðgerð lögreglunnar við Gríska húsið á Laugavegi fyrr í dag. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn hjá miðlægri deild lögreglunnar segir aðgerðir lögreglunnar tengjast gruni um vinnumansal á staðnum. Með lögreglu var starfsmaður Skattsins.

Ræddu við 26 einstaklinga varðandi vændi og mansal
„Við förum annað slagið og höfum samband við þá einstaklinga, sem eru langmest konur, sem auglýsa vændi. Það er í þeim tilgangi að kanna hvort að þær séu í einhvers konar þvingun eða hvort það sé einhver grunur um mansal.“

Tveir handteknir vegna gruns um mansal á nuddstofu í Reykjavík
Tveir starfsmenn á nuddstofu í Reykjavík voru handteknir í síðustu viku, grunaðir um mansal. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta í samtali við Vísi.