Frægir á ferð

Skælbrosandi Sofia snæddi með Lewis
Vel fór á með leikkonunni Sofiu Vergara og ökuþórnum Lewis Hamilton á stefnumóti í New York á þriðjudag.

Fjölmenni í fimmtugsafmæli Ásgeirs Kolbeins á Tenerife
Gleðin var við völd og sólin skein þegar Ásgeir Kolbeinsson fagnaði fimmtugsafmæli sínu á Adeje í Tenerife í gær. Fjöldi fólks mætti í glæsilega villu sem tekin hafði verið á leigu og meira að segja Elvis Presley kíkti í heimsókn.

Mikil stemning á lokahófi RIFF
Innlent og erlent kvikmyndargerðar- og bransafólk kom saman í vikunni á Parliament hótelinu til að fagna lokum RIFF kvikmyndahátíðarinnar.

Hollywood-leikstjóri nýtur lífsins á Íslandi
Óskarsverðlaunaleikstjórinn Ron Howard er nú á Íslandi og nýtur lífsins. Á reikningi sínum á samfélagsmiðlinum X segir hann frá því að hann sé á landinu ásamt eiginkonu sinni, Cheryl. Við færsluna setur hann myllumerkin Iceland, eða Ísland, og bucketlist, eða laupalisti. Svo spyr hann hvort fólk vilji sjá fleiri myndir.

Brad Pitt stoppaði í hamborgara í Dalakofanum
Leikarinn Brad Pitt er á landinu og fékk sér hamborgara í Dalakofanum í Laugum í Reykjadal í gær. Ingibjörg Arna Friðgeirsdóttir starfar í Dalakofanum og er ein þeirra sem afgreiddi leikarann í gær. Hún segir hann hafa verið afar kurteisan og að honum hafi þótt hamborgarinn góður.

Nathaniel Clyne á Hax og Auto
Enski knattspyrnumaðurinn Nathaniel Clyne er staddur hér á landi í fríi og tók djammsnúning í höfuðborginni um helgina.

Með lykilinn að því hvernig á að gera eftirhermu af Íslending
Leikari þekktur fyrir hlutverk sín í kvikmyndum og þáttum á borð við Anchorman, Portlandia, Wednesday, SNL, Barry og Eurotrip segir það auðvelt að gera eftirhermu af Íslendingum og að við eigum það til að tala eins og við séum að ræða leyndarmál.

Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum
Sóley Organics hélt á dögunum draumkennda gyðjusamkomu í þema Miðsumarsdraums í húsnæði fyrirtækisins á Hólmaslóð 6. Áhrifavaldar og aðrar glæsikonur borgarinnar voru meðal gesta og bauð sumarið upp á sitt allra besta veður.

Einn handritshöfunda Simpsons á Íslandi
Handritshöfundurinn og framleiðandinn Mike L. Reiss er staddur á Íslandi. Á Twitter birti hann í dag mynd af sér við regnbogagötuna á Skólavörðustíg og óskaði fólki til hamingju með hinseginmánuðinn sem haldinn er í Bandaríkjunum í júnímánuði.

Steggjun endaði á árshátíð RÚV
Nánast allir landsmenn nutu lífsins síðastliðna viku. Hækkandi sól og hærra hitastig á sama tíma og nánast allar árshátíðir landsins og önnur gleði á sama tíma. Það var allskonar í gangi.

Ragnar dillaði sér á Dillon og nýr ráðherra naut lífsins í Borgartúni
Það er ennþá fáránlega kalt í veðri jafnvel þó það eigi eiginlega að vera komið vor. Jafnvel sumar á næsta leyti. Þó er eilífðar vetur og ennþá snjór í Esjunni. Það er samt eitthvað í loftinu.

Tjúttandi tenór og rappari í Garðheimum
Það er sól á lofti svo gott sem alla daga en kalt í lofti og rok í kinnum. Það er hinsvegar hiti í blóðinu og hækkandi sól þýðir að það hefur aldrei verið eins mikið að gerast í samkvæmislífi landans.

Bjarni Ben, Inga Lind og miklu fleiri í golfi í sólinni
Páskarnir eru búnir og það þýðir bara eitt: Vorið er komið. Ekki veðurfarslega séð en að minnsta kosti þegar litið er til mannlífsins. Það hefur nefnilega verið nóg að gera hjá þekktasta og skemmtilegasta fólki landsins.

Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni
Sólin hækkar alltaf á lofti með hverjum deginum sem líður og vorjafndægur gengu loks í garð. Nú er tíminn til að tjútta, sýna sig og sjá aðra. Njóta lífsins og hafa gaman. Saman.

Vorið vaknar: Randver í Mínígarðinum og Dagur B. á Röntgen
Eftir enn annan langan íslenskan vetur er loksins vor í lofti. Það sést á mannlífinu því hlutirnir eru aftur farnir að gerast og skemmtilegt fólk skemmtir sér úti um allt land langt fram á nætur. Þannig létu sjálf forsetahjónin þau Guðni og Eliza sig meðal annars ekki vanta í Hörpunni um helgina.

Eiður Smári í karókí og Árni Oddur á skíðum
Árni Oddur Þórðarson, fyrrverandi forstjóri Marels, er á meðal þeirra sem skellti sér á skíði í Hlíðarfjalli á dögunum. Það þarf ekki að fara í alpana til að eiga draumadaga í brekkunum. Já, frægir eru víða á ferð.

Heimsfrægur grínisti staddur á landinu
Bandaríski grínistinn James Murray er staddur á Íslandi. Hann virðist ekkert vera að flækja hlutina; Gullfoss, Geysir og hellaskoðun urðu fyrir valinu.

Taílenskt hjá Kára Stef og Dorrit heitasta gellan
Forsetaframbjóðendur safna undirskriftum, leikarar fjárfesta í Crocs og Kári Stefánsson er hreinlega úti um allt. Dorrit Moussaieff er orðin 74 ára en bar af á frumsýningu þótt margar gellur væru á svæðinu. Frægir hafa sannarlega verið á ferðinni undanfarið.

Stjörnulögfræðingur í kossaflensi á rauðu ljósi
Þótt að kuldinn hafi ráðið ríkjum á landi íss undanfarna daga þá kunna Íslendingar ráð við því. Eitt er að knúsa ástina sína og jafnvel kyssa á rauðu ljósi, sem skyndilega breytist í grænt.

Píratar festast ekki bara á klósettinu
Fótboltakempur á Kaffibarnum, píratar fastir í lyftu og utanríkisráðherra á Kjarval. Já, það gengur á með meiru en frosti á okkar blessaða landi þar sem frægir eru iðullega á ferðinni.

Þarf að bæta við sig ferðatöskum til að flytja öll fötin heim
Söngfuglar sötra kokteila á Flórída, aðrir njóta sólarinnar á Tenerife á meðan náttúruvársérfræðingur gleymir sér við mínígolf. Já, það er komið víða við í Frægir á ferð þessa vikuna.

Á sjóðheitu stefnumóti í pottinum
Sundhöll Reykjavíkur er sjóðandi heitur stefnumótastaður og það vita þau Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og Erna Mist listmálari sem böðuðu sig í heitu vatninu í gær. Um er að ræða eitt nýjasta og heitasta par landsins.

Skellihló með kærastanum á rauðu ljósi
Stórleikkonan Aníta Briem hló sig máttlausa á einleik Kristínar Þóru Haraldsdóttur í Þjóðleikhúskjallaranum. Inga Lind skellti sér til Barcelona og Ólafur Ragnar sneri aftur frá Osló.