Hryðjuverkastarfsemi
1 2 3 … 3 ›
Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Ríkissaksóknari segir ómögulegt að segja til um það hversu lengi þarf að bíða eftir niðurstöðu Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða, sem Hæstiréttur sendi aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar í dag. Sakborningarnir tveir voru fyrst handteknir fyrir þremur og hálfu ári. Þá segir hann erfitt að setja fram kröfu um þyngd refsingar, þar sem ekkert fordæmi sé fyrir ákæru fyrir hryðjuverk hér á landi. Hryðjuverk varða allt að ævilöngu fangelsi. Innlent 11.3.2026 17:03
„Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Einar Oddur Sigurðsson, verjandi annars sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða, segir ómerkingardóm Hæstaréttar hafa verið umbjóðanda sínum vonbrigði. „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími eftir efnislegri niðurstöðu sem báðir sakborningar og verjendur bjuggust við að kæmi í dag og þessu sakarefni yrði þá lokið í eitt skipti fyrir öll.“ Innlent 11.3.2026 15:56
Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Hæstiréttur hefur ómerkt sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða. Málinu var vísað aftur til Landsréttar til meðferðar. Innlent 11.3.2026 14:01
Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Enginn hefur enn verið handtekinn vegna sprengingar við sendiráð Bandaríkjanna í Osló í nótt. Lögregla segir sprenginguna hafa verið ætlaða sendiráðinu og að það sé til skoðunar hvort að um hryðjuverk sé að ræða, og hvort tengsl séu við stríð Bandaríkjanna og Ísraela í Íran. Norskir ráðherrar hafa verið í sambandi við sendiherrann en sendiráðið hefur ekkert gefið út um sprenginguna. Erlent 8.3.2026 11:42
Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í. Boðað hafði verið til mótmæla við utanríkismálaráðuneytið á morgun til að kalla eftir því að íslensk stjórnvöld myndu skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Erlent 20.2.2026 17:24
Bandarískir hermenn í Nígeríu Um hundrað bandarískir hermenn hafa verið sendir til Nígeríu, þar sem þeir munu þjálfa þarlenda hermenn og hjálpa þeim í átökum við uppreisnar-, víga- og glæpahópa. Þeim er ekki ætlað að taka þátt í átökum með hermönnunum sem þeir munu þjálfa. Erlent 17.2.2026 16:52
Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Að minnsta kosti 31 er látinn og 169 eru særðir eftir stóra sprengingu í mosku sjíta í höfuðborg Pakistan í dag. Fjölmargir voru við bænir í moskunni þegar sprengingin varð og leikur grunur á um að maður hafi sprengt sig í loft upp þar inni, eða rétt fyrir utan. Einhver vitni segjast hafa heyrt skothríð fyrir sprenginguna. Erlent 6.2.2026 13:44
Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sameinuðu þjóðirnar segja Íslamska ríkið vera í töluverðum vexti í Afríku, Mið-Austurlöndum og víðar í heiminum. Margar deildir hryðjuverkasamtakanna hafa aukið umsvif sín og fjölgað árásum. Á fundi Sameinuðu þjóðanna um baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem haldin var í gær, sagði Alexandre Zouev, einn yfirmanna gagn-hryðjuverkaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, að ógnin frá Íslamska ríkinu hefði aukist jafnt og þétt. Erlent 5.2.2026 15:56
Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka Yfirvöld í Tyrklandi hafa handtekið 357 menn sem grunaðir eru um að tengjast Íslamska ríkinu. Var það gert í kjölfar skotbardaga milli lögregluþjóna og ISIS-liða í gærmorgun þar sem þrír lögregluþjónar, öryggisvörður og sex ISIS-liðar féllu. Erlent 30.12.2025 16:44
Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og sex vígamenn Íslamska ríkisins liggja í valnum eftir bardaga þeirra á milli í Tyrklandi í morgun. Átta lögregluþjónar og öryggisvörður eru særðir eftir átökin, sem áttu sér stað í Elmali, suður af Istanbul. Lögregluþjónar eru sagðir hafa gert áhlaup á hús þar sem vígamennirnir héldu til. Erlent 29.12.2025 11:46
Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Níu hafa verið handteknir í Ítalíu fyrir að safna rúmlega milljarði íslenskra króna fyrir Hamas-samtökin á Gasa. Fjármununum var safnað undir því yfirskyni að þeir myndu renna til mannúðaraðstoðar í Palestínu. Erlent 27.12.2025 17:59
Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Donald Trump Bandaríkjaforseti fyrirskipaði hernaðarárásir Bandaríkjahers á skotmörk hryðjuverkasamtakanna sem kennd eru við Íslamskt ríki (ISIS) í norðvesturhluta Nígeríu í gærkvöldi. Erlent 26.12.2025 07:38
Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Fjölmenni kom saman á Bondi-strönd í Ástralíu í morgun til að minnast fórnarlamba skotárásar á gyðingahátíð fyrir um viku síðan þar sem fimmtán létu lífið og tugir voru særðir. Mínútu þögn fór fram snemma í morgun. Erlent 21.12.2025 12:50
Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í gær árásir á um sjötíu skotmörk sem talin eru tengjast starfsemi Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Markmiðið var að hefna fyrir dauða tveggja bandarískra hermanna og túlks í árás í síðustu viku. Erlent 20.12.2025 09:52
Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Naveed Akram annar árásarmannanna á Bondi strönd í Ástralíu var í morgun formlega ákærður fyrir ódæðið. Erlent 17.12.2025 07:44
Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Svo virðist sem feðgarnir sem stóðu fyrir árásinni á Bondi-strönd um helgina og myrtu fimmtán, hafi fundið innblástur í Ríki íslam. Tveir heimagerðir Ríki íslam fánar fundust í bifreið þeirra og þá hefur verið staðfest að þeir hafi ferðast til Filippseyja, mögulega til að fá herþjálfun. Erlent 16.12.2025 07:21
Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Lögreglan í Bæjaralandi í Þýskalandi hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að leggja á ráðin um að fremja hryðjuverk á jólamarkaði. Erlent 14.12.2025 09:59
Átta ára fangelsi fyrir að skipuleggja fjöldamorð á Eurovision 23 ára sænskur karlmaður að nafni Alexander Holmberg hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi í Lúxemborg fyrir að leggja á ráðin um að framkvæma hryðjuverk á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í Rotterdam í Hollandi árið 2020. Erlent 27.11.2025 10:41
Sprengdi sig í loft upp við dómshús Að minnsta kosti tólf eru látnir eftir að maður sprengdi sig í loft upp fyrir utan dómshús í Islamabad í Pakistan í morgun. Þá særðust að minnsta kosti 27 í árásinni en enginn hópur hefur lýst yfir ábyrgð á henni enn sem komið er. Erlent 11.11.2025 11:18
Einn hinna látnu skotinn af lögreglu og annar særður Annar þeirra sem létu lífið í hnífaárás við bænahús gyðinga í Manchester í gær var skotinn til bana og annar til viðbótar særður. Árásarmaðurinn var ekki með byssu og virðist sem fólkið hafi verið skotið af lögregluþjóni eða -þjónum. Erlent 3.10.2025 11:05
Nafngreina árásarmanninn í Manchester Lögreglan í Manchester hefur nafngreint manninn sem réðst inn í bænahús gyðinga í Manchester í morgun og tók tvo af lífi. Erlent 2.10.2025 23:40
Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Lögreglan í Manchester borg á Bretlandi hefur skilgreint mannskæða árás í bænahúsi gyðinga þar í borg sem hryðjuverk. Þá hafa tveir verið handteknir vegna málsins. Um var að ræða hnífaárás. Erlent 2.10.2025 14:41
Ástralir vísa sendiherra Íran úr landi og loka sendiráðinu í Tehran Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að vísa sendiherra Íran í Canberra úr landi og loka sendiráði sínu í Tehran, eftir að öryggisyfirvöld komust að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld í Íran hefðu staðið að baki að minnsta kosti tveimur árásum á samfélag gyðinga í landinu. Erlent 26.8.2025 08:23
„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst. Erlent 20.8.2025 13:01
„Þetta er svona eitraður kokteill” Stjórnvöld í Pakistan heita hefndum eftir árásir Indverja á Kasmír í nótt. Óttast er að átök milli þessara kjarnorkuvelda stigmagnist. Innlent 7.5.2025 20:49
Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Yfirvöld í Pakistan saka Indverja um að hafa vísvitandi gert árásir á moskur og önnur borgaraleg skotmörk í Pakistan í gærkvöldi. Þeir segja 26 óbreytta borgara hafa fallið í þessum árásum, sem hafi verið gerðar á „ímyndaðar búðir hryðjuverkamanna“. Erlent 7.5.2025 10:46
Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Breskir sérsveitarmenn og lögregluþjónar eru sagðir hafa í naumindum komið í veg fyrir hryðjuverkaárás á breskri grundu. Farið var í nokkur áhlaup um Bretland í um helgina, vegna tveggja mismunandi rannsókna, og voru átta menn handteknir. Þar af eru sjö frá Íran. Erlent 5.5.2025 10:47
Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Fimm menn, þar af fjórir íranskir ríkisborgarar, voru handteknir í Englandi í tengslum við rannsókn á undirbúningi hryðjuverka. Erlent 4.5.2025 09:56
Samfélagið á sögulega erfiðum stað Afbrotafræðingur segir samfélagið á mjög erfiðum stað í sögulegu samhengi. Áföll sem ekki er unnið úr geti verið einn helsti áhættuþátturinn fyrir því að ungmenni leiti í ofbeldisfulla öfgahyggju. Innlent 13.4.2025 19:00
Börn hverfi inn í ofbeldisfulla öfgamenningu á netinu Aðstoðaryfirlögregluþjónn greiningardeildar ríkislögreglustjóra segir lögregluna meðvitaða um einstaklinga á táningsaldri sem taka þátt í spjallborðum um ofbeldisfulla öfgamenningu á netinu. Innlent 13.4.2025 15:28