Hryðjuverkastarfsemi

Fréttamynd

Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn

Ríkissaksóknari segir ómögulegt að segja til um það hversu lengi þarf að bíða eftir niðurstöðu Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða, sem Hæstiréttur sendi aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar í dag. Sakborningarnir tveir voru fyrst handteknir fyrir þremur og hálfu ári. Þá segir hann erfitt að setja fram kröfu um þyngd refsingar, þar sem ekkert fordæmi sé fyrir ákæru fyrir hryðjuverk hér á landi. Hryðjuverk varða allt að ævilöngu fangelsi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta þýðir ein­fald­lega lengri bið­tími“

Einar Oddur Sigurðsson, verjandi annars sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða, segir ómerkingardóm Hæstaréttar hafa verið umbjóðanda sínum vonbrigði.  „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími eftir efnislegri niðurstöðu sem báðir sakborningar og verjendur bjuggust við að kæmi í dag og þessu sakarefni yrði þá lokið í eitt skipti fyrir öll.“

Innlent
Fréttamynd

Til skoðunar hvort um hryðju­verk sé að ræða

Enginn hefur enn verið handtekinn vegna sprengingar við sendiráð Bandaríkjanna í Osló í nótt. Lögregla segir sprenginguna hafa verið ætlaða sendiráðinu og að það sé til skoðunar hvort að um hryðjuverk sé að ræða, og hvort tengsl séu við stríð Bandaríkjanna og Ísraela í Íran. Norskir ráðherrar hafa verið í sambandi við sendiherrann en sendiráðið hefur ekkert gefið út um sprenginguna.

Erlent
Fréttamynd

Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Ís­landi

Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í. Boðað hafði verið til mótmæla við utanríkismálaráðuneytið á morgun til að kalla eftir því að íslensk stjórnvöld myndu skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök.

Erlent
Fréttamynd

Banda­rískir her­menn í Nígeríu

Um hundrað bandarískir hermenn hafa verið sendir til Nígeríu, þar sem þeir munu þjálfa þarlenda hermenn og hjálpa þeim í átökum við uppreisnar-, víga- og glæpahópa. Þeim er ekki ætlað að taka þátt í átökum með hermönnunum sem þeir munu þjálfa.

Erlent
Fréttamynd

Tugir látnir eftir sprengju­á­rás í Islamabad

Að minnsta kosti 31 er látinn og 169 eru særðir eftir stóra sprengingu í mosku sjíta í höfuðborg Pakistan í dag. Fjölmargir voru við bænir í moskunni þegar sprengingin varð og leikur grunur á um að maður hafi sprengt sig í loft upp þar inni, eða rétt fyrir utan. Einhver vitni segjast hafa heyrt skothríð fyrir sprenginguna.

Erlent
Fréttamynd

Vara við upp­gangi Íslamska ríkisins

Sameinuðu þjóðirnar segja Íslamska ríkið vera í töluverðum vexti í Afríku, Mið-Austurlöndum og víðar í heiminum. Margar deildir hryðjuverkasamtakanna hafa aukið umsvif sín og fjölgað árásum. Á fundi Sameinuðu þjóðanna um baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem haldin var í gær, sagði Alexandre Zouev, einn yfirmanna gagn-hryðjuverkaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, að ógnin frá Íslamska ríkinu hefði aukist jafnt og þétt.

Erlent
Fréttamynd

Þrír lög­reglu­þjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir á­tök í Tyrk­landi

Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og sex vígamenn Íslamska ríkisins liggja í valnum eftir bardaga þeirra á milli í Tyrklandi í morgun. Átta lögregluþjónar og öryggisvörður eru særðir eftir átökin, sem áttu sér stað í Elmali, suður af Istanbul. Lögregluþjónar eru sagðir hafa gert áhlaup á hús þar sem vígamennirnir héldu til.

Erlent
Fréttamynd

Níu hand­teknir fyrir að safna pening fyrir Hamas

Níu hafa verið handteknir í Ítalíu fyrir að safna rúmlega milljarði íslenskra króna fyrir Hamas-samtökin á Gasa. Fjármununum var safnað undir því yfirskyni að þeir myndu renna til mannúðaraðstoðar í Palestínu.

Erlent
Fréttamynd

Rann­saka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filipps­eyjum

Svo virðist sem feðgarnir sem stóðu fyrir árásinni á Bondi-strönd um helgina og myrtu fimmtán, hafi fundið innblástur í Ríki íslam. Tveir heimagerðir Ríki íslam fánar fundust í bifreið þeirra og þá hefur verið staðfest að þeir hafi ferðast til Filippseyja, mögulega til að fá herþjálfun.

Erlent
Fréttamynd

Sprengdi sig í loft upp við dómshús

Að minnsta kosti tólf eru látnir eftir að maður sprengdi sig í loft upp fyrir utan dómshús í Islamabad í Pakistan í morgun. Þá særðust að minnsta kosti 27 í árásinni en enginn hópur hefur lýst yfir ábyrgð á henni enn sem komið er.

Erlent
Fréttamynd

Einn hinna látnu skotinn af lög­reglu og annar særður

Annar þeirra sem létu lífið í hnífaárás við bænahús gyðinga í Manchester í gær var skotinn til bana og annar til viðbótar særður. Árásarmaðurinn var ekki með byssu og virðist sem fólkið hafi verið skotið af lögregluþjóni eða -þjónum.

Erlent
Fréttamynd

„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst.

Erlent
Fréttamynd

Heimila hernum að hefna fyrir á­rásirnar í gær

Yfirvöld í Pakistan saka Indverja um að hafa vísvitandi gert árásir á moskur og önnur borgaraleg skotmörk í Pakistan í gærkvöldi. Þeir segja 26 óbreytta borgara hafa fallið í þessum árásum, sem hafi verið gerðar á „ímyndaðar búðir hryðjuverkamanna“.

Erlent
Fréttamynd

Komu naum­lega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bret­landi

Breskir sérsveitarmenn og lögregluþjónar eru sagðir hafa í naumindum komið í veg fyrir hryðjuverkaárás á breskri grundu. Farið var í nokkur áhlaup um Bretland í um helgina, vegna tveggja mismunandi rannsókna, og voru átta menn handteknir. Þar af eru sjö frá Íran.

Erlent
Fréttamynd

Sam­fé­lagið á sögu­lega erfiðum stað

Afbrotafræðingur segir samfélagið á mjög erfiðum stað í sögulegu samhengi. Áföll sem ekki er unnið úr geti verið einn helsti áhættuþátturinn fyrir því að ungmenni leiti í ofbeldisfulla öfgahyggju. 

Innlent