Stj.mál

Fréttamynd

Kostnaðarsamar kosningar

Kostnaður vegna sameiningakosninga í ár nemur nærri hundrað og þrjátíu milljónum króna. Þrátt fyrir fjárútlátin var árangurinn magur: í aðeins einu tilfelli var sameiningin samþykkt.

Innlent
Fréttamynd

Kom ekkert út úr fundi ASÍ með ráðherrum

Það kom ekkert út úr fundi leiðtoga ASÍ með forsætis- og utanríkisráðherra í dag: Engar tillögur, engin úrræði. Fundarmenn voru þó ánægðir með „jákvæðan fund", eins og það var orðað.

Innlent
Fréttamynd

Óttast fjöldauppsagnir í rækjuiðnaði

Ef ekkert verður að gert er hætt við að aðeins tvær til fjórar rækjuverksmiðjur verði enn starfandi eftir næstu áramót sagði Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar, á Alþingi í dag. Rækjuverksmiðjur voru tuttugu og tvær þegar þær voru flestar.

Innlent
Fréttamynd

Tugir kennara mótmæltu við þinghúsið

Tugir framhaldsskólakennara söfnuðust saman fyrir utan Alþingishúsið skömmu áður en þingfundur hófst í dag, til að mótmæla áformum um stytta nám til framhaldsskólaprófs úr fjórum árum í þrjú.

Innlent
Fréttamynd

Kannar hvort fækka eigi vistmönnum

Kanna á hvort fækka eigi vistmönnum á Sólvangi í fimmtíu og fimm til sextíu á næstu vikum svo draga megi úr þrengslum þar sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í utandagskrárumræðu um dvalarheimili aldraðra á Alþingi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Stefán Jóhann sækist eftir 3. sæti hjá Samfylkingunni

Stefán Jóhann Stefánsson, sem verið hefur í borgarstjórnarflokki Reykjavíkurlistans á yfirstandandi kjörtímabili, sækist eftir þriðja sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninga, en prófkjörið fer fram í febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Kristrún í stað Ingibjargar Sólrúnar í stjórnarskrárnefnd

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur að ósk Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur alþingismanns leyst hana undan störfum í stjórnarskrárnefnd. Í hennar stað hefur forsætisráðherra, að tillögu Samfylkingarinnar, skipað Kristrúnu Heimisdóttur lögfræðing í nefndina.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæla styttingu á stúdentsprófi

Kennarar við fimm menntaskóla, sem allir kenna eftir bekkjarkerfum, ætla að leggja niður störf í klukkutíma í dag til að mótmæla áformum ríkisins um að stytta nám á framhaldsskólastigi.

Innlent
Fréttamynd

Ræða við ríkisstjórnina um aðgerðir

Forystumenn Alþýðusambands Íslands ganga á fund helstu ráðherra ríkisstjórnarinnar klukkan þrjú í dag til að ræða hvaða aðgerða ríkið geti gripið til svo ekki þurfi að segja upp kjarasamningum.

Innlent
Fréttamynd

Hlutafélagavæðing dulbúin einkavæðing

Kristinn H. Gunnarsson segir að hægt sé að ná fram nauðsynlegum breytingum hjá RÚV án þess að breyta rekstrarfyrirkomulagi, eins og menntamálaráðherra hefur boðað. Hann segir hlutafélagavæðingu RÚV ekkert annað en dulbúna einkavæðingu.

Innlent
Fréttamynd

Vil ekki með Samfylkinguni

"Samfylkingin er varla fýsilegur samstarfsflokkur fyrir okkur í Frjálslynda flokknum eftir þessa u-beygju í sjávarútvegsmálunum," segir Sigurjón Þórðarson þingmaður.

Innlent
Fréttamynd

Mörður snuprar Stefán Jón

"Þetta gerir maður nú eiginlega ekki, Stefán Jón", segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, í pistli á heimasíðu sinni og á þar við auglýsingu samflokksmanns síns, Stefáns Jóns Hafstein, í Fréttablaðinu í dag. Mörður vitnar meðal annars í línur í Passíusálmunum þar sem talað er um hræsni.

Innlent
Fréttamynd

Könnun Gallup mjög nálægt niðurstöðum prófkjörsins

Vegna umræðu um áreiðanleika kannana fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sendi IMG Gallup frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem segir að niðurstöður könnunar fyrirtækisins á fylgi frambjóðendanna sem sóttust eftir efsta sætinu, hafi verið mjög nálægt úrslitum prófkjörsins.

Innlent
Fréttamynd

Fyrstur að hefja prófkjörsbaráttuna

Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi er fyrstur til að hefja prófkjörsbaráttu Samfylkingarinnar í borginni með auglýsingu sem birtist í blöðunum í morgun. Stefán Jón býst við að eyða einni til tveimur milljónum í auglýsingar.

Innlent
Fréttamynd

Vatnsleysuströnd verður að bæ

Hreppum landsins fækkar um einn á næstunni, verði hreppsstjórn Vatnsleysustrandarhrepps að ósk sinni. Hreppsstjórnin hefur ákveðið að óska eftir því við félagsmálaráðuneytið að Vatnsleysuströnd og Vogar verði hér eftir bær en ekki hreppur.

Innlent
Fréttamynd

Byrjaður að auglýsa

Prófkjörsbaráttan er hafin hjá Samfylkingunni í Reykjavík þrátt fyrir að prófkjörið sjálft fari ekki fram fyrr en í febrúar á næsta ári. Stefán Jón Hafstein er með heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem birtast myndir af 46 einstaklingum sem segjast vilja fá Stefán Jón sem næsta borgarstjóra.

Innlent
Fréttamynd

Hanna Birna með flest atkvæði

Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur fengið flest atkvæði í prófkjöri sjálfstæðismanna en röð efstu manna helst áfram óbreytt. Þegar talin hafa verið 8.458 atkvæði. Hanna Birna hefur fengið flest atkvæði alls, 7.289 af 8.458 eða 86,2% allra greiddra atkvæða.

Innlent
Fréttamynd

Vilhjálmur sigurstranglegur

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur unnið sigur yfir Gísla Marteini Baldurssyni í baráttunni um fyrsta sætið á lista Sjálfstæðimanna í Reykjavík, samkvæmt fyrstu tölum.

Innlent
Fréttamynd

Búið að telja 2.077 atkvæði

Staða í prófkjöri Sjálfstæðismanna er á þann veg að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson heldur áfram fyrsta sætinu með 1.162 atkvæði, þegar 2.077 atkvæði höfðu verið talin fyrir stuttu. Hanna Birna Kristjánsdóttir er í 1.-2. sæti og Gísli Marteinn Baldursson er í 1.-3. sæti.

Innlent
Fréttamynd

Vilhjálmur áfram í 1. sæti

Klukkan 19 var búið að telja 1.342 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er áfram í fyrsta sætinu.

Innlent
Fréttamynd

Hægt að refsa hér á landi

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur sent Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra bréf þar sem farið er fram á að hann fyrirskipi opinbera rannsókn á meintum flutningum fanga um íslenska lofthelgi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar.

Innlent
Fréttamynd

Um 4.000 greitt atkvæði hjá Sjálfstæðismönnum

Tæplega fjögur þúsund sjálfstæðismenn höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík þegar kjörfundi lauk klukkan níu í kvöld. Þar af höfðu um 1.200 greitt atkvæði utan kjörfundar.

Innlent
Fréttamynd

Segir kaupmátt í sögulegu hámarki

Sérstök forsendunefnd Alþýðusambandsins og atvinnurekenda hefur ellefu daga til að úrskurða hvort grundvöllur kjarasamninga sé brostinn - vegna meiri verðbólgu en ráð var fyrir gert. Uppsögn kjarasamninga nú hefði skelfilegar afleiðingar fyrir allan vinnumarkaðinn, segir Ari Edwald og bendir á að kaupmáttur sé í sögulegu hámarki.

Innlent
Fréttamynd

Örykjum hafi fjölgað um þrjá hvern virkan dag frá áramótum

Bílastyrkur til hreyfihamlaðra og aldraðra verður ekki afnuminn. Þetta tilkynnti Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag þegar hann svaraði spurningum Helga Hjörvars við utandagskrárumræðu um fjölgun öryrkja og kjör þeirra. Ráðherra sagðist aldrei hafa haldið því fram að fólk færi á örorkubætur að gamni sínu, en benti á að öryrkjum hafi fjölgað um þrjá hvern virkan dag frá áramótum til 1. október og við því yrði að bregðast með einhverjum hætti.

Innlent