Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Sjá sér með engu móti fært að ná björgunar­flugi

Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu.

Innlent
Fréttamynd

Sökktu skipi með tundur­skeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði

Bandaríkjaher sökkti írönsku freigátunni Iris Dena með tundurskeyti, sem skotið var úr kafbáti, á Indlandshafi í morgun. Að sögn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna er þetta í fyrsta sinn frá lokum seinni heimsstyrjaldar sem Bandaríkjamenn sökkva skipi óvinveitts ríkis með tundurskeyti.

Erlent
Fréttamynd

Gæti Ís­land dregist inn í á­tökin?: Eld­flaug frá Íran skotin niður í loft­helgi Tyrk­lands

Tyrkneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins hefðu skotið niður eldflaug sem skotið var frá Íran og var á leið inn í lofthelgi Tyrklands. Sérfræðingur í varnarmálum segir líklega meira þurfa til að 5. grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð og að Ísland dragist inn í þau átök sem nú standa yfir.

Erlent
Fréttamynd

Iceland and USA Sitting in a Tree

"Iceland and USA, sitting in a tree, K.I.S.S.I.N.G." So went the sing-song nursery rhyme about two kids being teased about being in love. The next verse traditionally went, "First comes love, then comes marriage, here comes Iceland with a baby carriage," but the appropriate modern ending would be, "here comes Iceland with blood and carnage."

Skoðun
Fréttamynd

Flóttinn frá Dúbaí gengur vel

Kærustu­parið Davíð Guðlaugs­son og Lovísa Ósk Davíðs­dóttir lentu í Jedda í Sádi-Arabíu í gærkvöld. Þaðan áttu þau svo bókað flug til London í morgun og því allt út­lit fyrir að áætlun þeirra um að forða sér frá Dúbaí á eigin vegum ætli að ganga upp.

Innlent
Fréttamynd

Gefur lítið fyrir hótanir Trumps

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, dregur ekkert úr andstöðu sinni við árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran, þrátt fyrir að Bandaríkjaforseti hafi hótað að skera á viðskiptatengsli við Spán vegna hennar.

Erlent
Fréttamynd

Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hag­kerfinu

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að Íslendingar ættu ekki að verða mjög varir við áhrif stríðsins sem nú geysar í Mið-Austurlöndum á allra næstu dögum. Hins vegar reiði verðmætasköpun bæði hér og annars staðar sig mjög á ólíu og því gætu áhrif til lengri tíma verið meiri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vaktin: Á­tökin breiðast enn út

Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. 

Erlent
Fréttamynd

Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein

Guðlaug Sigfúsdóttir hefur verið búsett í Barein í Miðausturlöndum í fjórtán ár. Hún segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir, landið sé svo friðsælt. Fjölskyldan hefur lítið sofið fyrir sprengjum og sírenum síðustu nætur og heldur sig bara heima.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum

„Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum.

Innlent
Fréttamynd

Skipta al­þjóða­lög máli eða ekki?

Árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran um helgina voru skýlaust brot á alþjóðalögum en hvorki íslenskir né evrópskir ráðamenn hafa treyst sér til þess að fordæma þær frekar en mannrán á forseta Venesúela í vetur. Prófessor í stjórnmálafræði ræðir við Vísi um hvort alþjóðalög skipti máli eða ekki.

Innlent
Fréttamynd

Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengju­á­rás

Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Sprengjum rignir enn

Bandaríkjamenn og Ísraelar gera enn árásir á Írana, sem svara fyrir sig með eigin eldflaugum og drónum á nágrannaríki sín. Árásirnar hófust á laugardaginn og verið nánast linnulausar síðan þá. Ísraelar hafa einnig gert árásir á skotmörk í Líbanon og segja þær beinast gegn bandamönnum Íran í Hezbollah, sem skutu eldflaugum að Ísrael í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Hundruð þúsunda far­þega stranda­glópar vegna stríðs í Íran

Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að grípa til hernaðar­að­gerða gegn Íran

Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna.

Erlent