

Umræður um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis bera þess eðlilega merki að hún hafði ekki að geyma ný sannindi um orsakir fyrir hruni krónunnar og bankanna. Á hinn bóginn skýrir skýrslan býsna vel samhengi og baksvið þess sem gerðist.
Bandaríkin eru óskorað réttarríki. Bandaríkjamenn eru jafnir fyrir lögum. Fyrrum ríkisstjóri Illinois, Milorad Blagojevich, er á leiðinni í fangelsi fyrir glæp, sem hann framdi í embætti.
Atli Gíslason, þingmaður VG, segir að Alþingi verði að stíga varlega til jarðar þegar kemur að ákvörðun um hvort að lagðar verði fram ákærur á hendur þeim þremur fyrrverandi ráðherrum sem rannsóknarnefnd Alþingis segir að sýnt hafi vanrækslu í störfum sínum. Atli er formaður þingmannanefndar sem hefur það hlutverk að ákveða hvað gert verði með niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að fundur þingmannanefndar sem fjallar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis í morgun hafi verið fróðlegur. Hann vill ekki gefa upp hvort að rætt hafi verið um sérstaklega um landsdóm á fundinum.
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, er einn þriggja stjórnmálamanna sem rannsóknarnefndin telur hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi.
Það er of snemmt að segja til um hvort ráðherrarnir sem sakaðir eru um vanrækslu í starfi verði kærðir til landsdóms fyrir vanrækslu í starfi. Þetta segir Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar sem hefur það hlutverk að
Ef landsdómur verður kallaður saman vegna þeirra niðurstaðna sem finna má í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis verður það í fyrsta sinn sem slikt gerist í sögu lýðveldisins, segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur.
Frestur til að sækja ráðherra til saka vegna vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins rennur út í lok þessa árs.
Þurfi að kalla saman landsdóm til að fjalla um hugsanleg brot ráðherra, í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, verður það gert samkvæmt núgildandi reglum um skipan dómsins.
Alþingi kýs á morgun nýjan varamann í landsdóm í stað Unnar Brár Konráðsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Unnur var kjörin varamaður fyrir fjórum árum en tók sæti Alþingi eftir kosningarnar í apríl.