Eldgos og jarðhræringar
1 2 3 4 5 6 7 8 … 141 ›
Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, eru í útsýnisflugi um Ísland með þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar. Innlent 17.7.2025 10:29
Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum „Það er svolítið erfitt að sjá heildarmyndina,“ segir Bjarki Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, um þróun gossins á Reykjanesskaga í nótt. Ekkert hafi verið flogið yfir gosið og þá setji leiðinlegt veður strik í reikninginn. Innlent 17.7.2025 06:59
Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Mengun frá eldgosinu sem stendur yfir á Reykjanesskaga hefur náð alla leið til Vestfjarða og hugsanlega líka í Skagafjörð. Myndir þaðan sýna hvernig dökkblátt mengunarský vofir yfir landslaginu. Innlent 16.7.2025 22:47
Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Opnað hefur verið fyrir aðgang íbúa Grindavíkur að bænum. Gróðureldar eru nú mesta hættan í byggð. Unnið er að hækkun varnargarða. Innlent 16.7.2025 21:00
„Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Fagstjóri náttúruvár á Veðurstofu Íslands segir að stofnunin þurfi að fara vel yfir það hvers vegna eldgos hófst talsvert fyrr en Veðurstofan hafði gert ráð fyrir. Innlent 16.7.2025 19:44
Kort: Sprungan lengist til norðurs Sprungan á gossvæðinu við Grndavík hefur lengst til norður og hefur sprugna í raun aldrei náð eins langt í eldgosahrinunni sem hófst við Sundhnúk um lok árs 2023. Aftur á móti er tekið að draga úr virkni gossins. Innlent 16.7.2025 19:20
Grænt ljós á golfmótið þrátt fyrir gos Grindvískir kylfingar eru að sögn orðnir öllu vanir þegar kemur að glímunni við náttúruöflin. Þeir urðu að vísu að játa sig sigraða í dag og fresta fyrirhuguðu meistaramóti en ætla ekki að láta deigan síga og hefja leik á morgun. Golf 16.7.2025 19:18
Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Tveir erlendir ferðamenn gengu upp að gosstöðvunum, til baka og síðan inn í Grindavík án þess að vera stöðvaðir af lögreglu. Fréttamaður á svæðinu hefur hitt fleiri ferðamenn í Grindavík í dag sem voru ekki stöðvaðir af lögreglu á leið inn í bæinn. Innlent 16.7.2025 14:41
Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Þrátt fyrir að rauðglóandi hraun renni við Stóra-Skógfell er margt um manninn á Grindavíkurhöfn og nóg að gera. Fréttamaður náði tali af framkvæmdastjóra löndunarþjónustunnar Klafa sem var í óðaönn við að landa. Innlent 16.7.2025 13:27
Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur segir svekkjandi að þurfa að aflýsa fyrsta degi Meistaramóts klúbbsins sem átti að átti að hefjast í dag. Grindvíkingar séu þó allir vanir og stefni á að hefja leik á morgun. Golf 16.7.2025 13:25
Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn á ný gýs á Reykjanesi og það vekur alltaf mikla athygli utan landsteinanna. Flestar þjóðir heimsins eru ekki jafnvanar því og við að jörðin brotni, skjálfi og rjúki með tilheyrandi sjónarspili. Innlent 16.7.2025 11:43
Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að eldgosið í nótt hafi ekki komið á óvart þar sem mælingar á landrisi hafi sýnt að gos gæti hafist um þetta leyti. Hann spáir því að verulega muni draga úr eldgosinu á næstu klukkstundum og telur að það geti orðið það síðasta á Sundhnúkareininni. Innlent 16.7.2025 11:31
Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Til skoðunar er hvort eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni sem hófst í nótt hafi áhrif á Íslandsheimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hún kemur til landsins í kvöld. Innlent 16.7.2025 10:19
Fallegt og ekkert smágos Sérfræðingur Veðurstofunnar sem flaug með þyrlu Landhelgisgæslunnar yfir gosið í morgun segir gosið ekki stórt en þó alls ekkert smágos. Það sé fallegt og á heppilegum stað. Innlent 16.7.2025 06:39
Vaktin: Enn eitt eldgosið hafið á Reykjanesskaga Eldgos stendur yfir á Sundhnúksgígaröðinni. Áköf skjálftahrina hófst rétt fyrir miðnætti og kvikuhlaup skömmu síðar. Gosið hófst rétt fyrir klukkan fjögur. Tvær gossprungur eru virkar. Sú fyrri og stærri á upptök sín suðaustan við Litla-Skógfell. Sú nýrri og minni er vestar við Fagradalsfjall. Gosið er ekki talið ógna innviðum. Innlent 16.7.2025 01:22
Enn rís land í Svartsengi Landris og jarðskjálftavirkni í Svartsengi halda áfram og hafa verið stöðug síðustu vikur. Ef kvikusöfnun heldur áfram má gera ráð fyrir að líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi aukist þegar líða fer á haustið. Innlent 15.7.2025 15:47
Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Stór skjálfti fannst á Akureyri í kvöld en hann mældist suðaustur við Grímsey klukkan 23.30. Hann var um 3,9 að stærð. Innlent 14.7.2025 23:53
Elsku Íslendingar, styðjum saman Grindavík Það eru margir sem hafa haft orð á því hversu mikið þeim langar að styðja fyrirtæki í Grindavík, bæ sem hefur gengið í gegnum afar erfiða tíma síðustu misseri. Sjálf á ég rekstur í bænum og hef, líkt og fleiri, þurft að bregðast við breyttum aðstæðum. Með þessum breytingum hef ég líka fengið tækifæri til að kynnast öðrum fyrirtækjum á svæðinu og ég verð að deila með ykkur einni sérstakri upplifun. Skoðun 9.7.2025 15:00
Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga vill að við gerð svæðisskipulags Suðurnesja fyrir tímabilið 2024 til 2040 verði tekið jákvætt í tillögu starfshóps innviðaráðuneytis um að svæði í Hvassahrauni verði tekið frá undir framtíðarflugvallarstæði. Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs síðastliðinn miðvikudag. Innlent 8.7.2025 11:22
Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Eldgos hófst í morgun í eldfjallinu Lewotobi Laki Laki í Indónesíu. Gosmökkurinn fór í allt að 18 kílómetra hæð og kastaðist yfir nærliggjandi þorp. Ekki hefur verið greint frá dauðsföllum. Erlent 7.7.2025 08:59
Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Skjálfti af stærðinni 3,4 mældist snemma í morgun um 11,1 kílómetra austsuðaustur af Árnesi, nálægt Leirubakka í Landsveit. Skjálftinn mældist þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í fimm. Innlent 7.7.2025 07:35
Skjálfti að stærð 3,6 í Bárðarbungu Jarðskjálfti að stærð 3,6 mældist í Bárðarbungu í hádeginu, klukkan 12:42. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að skjálftar af svipaðri stærð séu nokkuð algengir á svæðinu. Innlent 4.7.2025 12:59
Landris heldur áfram í Svartsengi Landris og jarðskjálftavirkni halda áfram í Svartsengi og hefur virkni verið stöðug síðustu vikur. Kvikusöfnun í hólfinu undir Svartsengi hefur haldið áfram, en ekki hafa orðið breytingar sem gefa tilefni til endurskoðunar á hættumati. Innlent 1.7.2025 13:00
Grindavík sigursæl erlendis Þættirnir Grindavík hafa farið sigurför um heiminn en serían var í fjórða sinn að vinna til verðlauna í síðustu viku á hátíðinni Cannes Film Awards. Bíó og sjónvarp 30.6.2025 17:02
Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Stór skjálfti mældist í Kötlu í morgun og jarðfræðingar fylgjast með því hvort breytingar hafi orðið á rafleiðni á jarðhitasvæðinu. Innlent 30.6.2025 10:08
Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði Ofurtölva í eigu Háskóla Íslands gerir Veðurstofu Íslands kleift að herma eftir hraunflæði og áhrifum jökulhlaupa á nákvæmari hátt. Forstjóri Veðurstofunnar segir samstarfið við Háskóla Íslands gríðarlega mikilvægt og að það hafi verið mikið gæfuspor að samnýta mikilvæga reikniinnviði. Innlent 29.6.2025 12:58
Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Tveir skjálftar mældust úti á Reykjaneshrygg í gærkvöldi, klukkan 23.49 og 23.51. Fyrri skjálftinn var 2,8 að stærð og seinni 2,5. Innlent 26.6.2025 06:20
Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Atvinnuvegaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar um að sekta sauðfjárbónda í Grindavík um 240 þúsund krónur fyrir að hafa haldið sauðfé í bænum og brotið gegn reglugerðum um velferð dýra. Kindurnar gengu lausar um sprungusvæði og fóru um tún sem almannavarnir höfðu flokkað hættulegt vegna stórrar sprungu. Innlent 24.6.2025 10:58
Áframhaldandi landris í Svartsengi Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi en það hefur hins vegar hægt á sér. Líkur á eldgosi munu aukast með haustinu, ef kvikusöfnun heldur áfram. Aðeins rúmur helmingur þess kvikumagns sem var í hólfinu undir Svartsengi í apríl hefur safnast aftur. Innlent 19.6.2025 07:57
Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Náttúruvársérfræðingur er að skoða málið en enn er verið að vinna úr gögnum. Hann var 3,4 að stærð. Innlent 18.6.2025 22:35