
Aðrar íþróttir

Sjáið Jón Jónsson og Frikka Dór kynna Hreyfibingó UMFÍ fyrir íslensku þjóðinni
Tónlistarmennirnir vinsælu og bræðurnir Jón Ragnar og Friðrik Dór Jónssynir hafa sett saman stutt og skemmtilegt myndband þar sem þeir kynna Hreyfibingó UMFÍ fyrir íslensku þjóðinni.

Borg syndanna að breytast í íþróttaborg
Las Vegas sem hefur verið þekkt fyrir sól, spilavíti, skemmtanalíf, og annað þvíumlíkt er skyndilega komin með íþróttalið í íshokkí í fremstu röð og fleiri á leiðinni.

Fyrrum heimsmeistari sakar sundþjálfara um kynferðislegt ofbeldi
Sundkonan fyrrverandi, Ariana Kukors Smith, er farin í mál við bandaríska sundsambandið fyrir að verja þjálfara sem braut á henni kynferðislega.

Hafnaboltastjarna í 80 leikja bann
Þegar menn falla á lyfjaprófi í bandaríska hafnaboltanum þá mega þeir gera ráð fyrir því að missa af mörgum leikjum.

Snákur svindlaði sér inn á völlinn | Myndband
Það gerist ýmislegt í bandarísku íþróttalífi en við munum ekki eftir því að hafa séð snák á vellinum áður.

Íslenska kraftlyftingavorið
Íslendingar tóku með sér sex gullverðlaun og alls níu verðlaunapeninga frá EM í kraftlyftingum í Tékklandi. Mikill meðbyr er með íþróttinni á Íslandi en aðstöðuleysi heldur aftur af afreksíþróttafólkinu okkar.

Yankees og Red Sox spila í London
Bandarísk íþróttafélög halda áfram að herja á Evrópu í von um að stækka áhugann á sinni íþrótt. Nú er komið að hafnaboltanum.

Kýldi sjálfan sig í andlitið | Myndband
Keppnisskap manna er mismikið og allur gangur á því hvernig menn taka á mótlæti. Við erum þó alltaf að sjá nýjar útgáfur.

Skautar fyrir Ungverjaland svo hann verði ekki gjaldþrota
Skautahlauparinn bandaríski, John-Henry Krueger, hefur ákveðið að keppa fyrir Ungverjaland í framtíðinni. Hann er að verða gjaldþrota á því að keppa fyrir Bandaríkin.

Badmintonspilarar í langt bann
Tveir hnitspilarar frá Malasíu fá ekki að spila badminton aftur sem atvinnumenn eftir að hafa hagrætt úrslitum.

Ein fremsta skíðakona landsins fær ekki bætur vegna fótbrots
Ein fremsta skíðakona landsins, Helga María Vilhjálmsdóttir, fær ekki bætur úr slysatryggingum almannatrygginga vegna slæms fótbrots sem hún hlaut á æfingu í ágúst á síðasta ári. Úrskurðarnefnd velferðamála komst að þeirri niðurstöðu eftir áfrýjun Helgu Maríu.

Aðgerðin gekk vel hjá Gunnari sem ætlar að berjast á þessu ári
Gunnar Nelson gekkst í dag undir aðgerð á hné vegna meiðsla sem hann varð fyrir á dögunum. Aðgerðin gekk vel að sögn Gunnars.

Gunnar Nelson um meiðslin: „Þetta er alveg ömurlegt"
Bardagamaðurinn Gunnar Nelson meiddist á hné við æfingar um síðustu helgi og mun þurfa að undirgangast aðgerð.

Armstrong greiðir ríkinu 500 milljónir króna
Hjólreiðakappinn fyrrverandi, Lance Armstrong, hefur náð sáttum í máli gegn yfirvöldum í Bandaríkjunum sem vildu fá mikla peninga frá Armstrong.

„Viðbjóður að stunda sömu íþrótt og svona hommahatari“
Landsliðsmaður Nýja-Sjálands er afar óánægður með ummæli kollega síns frá Ástralíu.

„Skilja afstöðu“ leikmanns sem sagði að hommar fari til helvítis
Ástralska ruðningssambandið refsar ekki einni af sínum skærustu stjörnum fyrir ljót orð í garð samkynhneigðra.

Svakalegar senur þegar að lærimeyjar Neville tryggðu sér sigurinn með flautukörfu
England vann sitt fyrsta gull í netbolta á Samveldisleikunum.

„Ungu fólki vantar þekkingu á lyfjamisnotkun“
Lyfjaeftirlit Íslands var stofnað formlega í dag en þar með færist allt lyfjaeftirlit í íslenskum íþróttum í sjálfstæða stofnun.

Skrópaði til að fara á völlinn | Rakst óvart á skólastjórann á vellinum
Ungur drengur í fjórða bekk í Chicago skrópaði í skólanum til þess að sjá opnunarleik Chicago Cubs. Heimurinn komst að skrópinu og hann hitti skólastjórann á vellinum.

Átta Kamerúnar nýttu Samveldisleikana til þess að strjúka
Átta íþróttamenn frá Kamerún eru horfnir í Ástralíu en þeir áttu að keppa þar á Samveldisleikunum.

Íþróttafréttamaður kýldi kollega sinn á hafnaboltaleik
Það var óvæntur hasar í stúkunni á hafnaboltaleik hjá Milwaukee Brewers um síðustu helgi.

Einn mesti tuddinn í deildinni sér nú um öryggi leikmanna
Þeir þurftu að passa sig á honum þegar hann var að spila en í dag treysta leikmenn NHL-deildarinnar honum til að passa upp á sig.

Ronda: Er svo fegin að hafa tapað gegn Holly og Amöndu
Ronda Rousey hefur lítið sem ekkert tjáð sig um tapbardaga sína hjá UFC en eftir frumraun sína hjá WWE þá opnaði hún sig loksins.

Sjáið lappirnar á þessum hjólreiðakappa: „Lítur út fyrir að lappirnar mínar séu tilbúnar“
Pólski hjólreiðakappinn Tomasz Marczynski hefur keppt í mörg ár meðal þeirra bestu og hann veit að það þarf að leggja mikið á sig á undirbúningstímabilinu til að geta gert eitthvað í keppnum sumarsins.

Sjáðu Rondu í fyrsta bardaganum hjá WWE
Rondu Rousey hóf í gær feril sinn sem leikari og bardagakona hjá skemmtanarisanum WWE.

Ætluðu að myrða maraþonhlaupara í Berlín
Þýska blaðið Die Welt segir að lögreglan í Þýskalandi hefði stöðvað yfirvofandi árás á maraþonhlaupara í Berlín um nýliðna helgi.

Margrét tvöfaldur Íslandsmeistari
Margrét Jóhannsdóttir er tvöfaldur Íslandsmeistari í badminton. Hún sigraði einliðaleik og tvíliðaleik kvenna á Meistaramóti Íslands í badminton.

Freydís og Magnús sigurvegarar í svigi
Freydís Halla Einarsdóttir og Magnús Finnsson eru Íslandsmeistarar í svigi eftir spennandi keppni í Bláfjöllum á Skíðamóti Íslands.

Elsa Guðrún þrefaldur Íslandsmeistari
Elsa Guðrún Jónsdóttir kom, sá og sigraði á Skíðamóti Íslands sem fram fer í Bláfjöllum um helgina. Ólympíufarinn sigraði allar einstaklingsgöngurnar á mótinu.

Fór fyrst í lyftingasalinn 56 ára en tekur nú 52 kíló í bekkpressu 81 árs gömul
Það er aldrei of seint að byrja í íþróttum og hin 81 árs gamla Ernestine Shepherd er frábært dæmi um það.