Mirko í þriðja liðið á þremur árum | Samdi við Hött Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júní 2015 16:45 Mirko Stefán Virijevic. Vísir/Vilhelm
Mirko Stefán Virijevic verður áfram í Dominos-deildinni en mun þó ekki spila áfram með Njarðvík. Mirko samdi við nýliða Hött. Þetta kemur fram á heimasíðu Hattar. Mirko Stefán Virijevic er 34 ára og 201 sentímetra miðherji sem hefur verið með íslenskt vegabréf frá júní 2004. Mirko Stefán spilaði með Breiðablik og Haukum áður en hann fór til Þýskalands þar sem hann lék í sex tímabil. Mirko Stefán kom til Íslands aftur 2012 og lék í tvö ár með KFÍ. Hann var síðan með Njarðvík á síðustu leiktíð en hefur nú aftur skipt um lið og samið við Hött. „Höttur hefur komist að samkomulagi við Mirko Stefán Virijevic um að hann leiki með liðinu í Dominosdeildinni á næstu leiktíð. Mirko lék á síðasta tímabili með Njarðvík og þar á undan KFÍ. Mirko á eftir að koma með mikla reynslu og gæði í ungt Hattarliðið," segir í frétt á heimasíðu Hattar. Mirko Stefán var með 10,7 stig og 10,5 fráköst að meðaltali með Njarðvík í Dominos-deildinni síðasta vetur en tímabilið á undan var hann með 19,5 stig og 11,3 fráköst að meðaltali með liði KFÍ í Domios-deildinni. Eysteinn Bjarni Ævarsson snýr einnig aftur til Hattar eftir eitt ár í Keflavík en hann er alinn upp fyrir austan. Eysteinn Bjarni er þessa dagana staddur í Finnlandi þar sem hann vann silfur með 20 ára landsliði Íslands í dag.
Dominos-deild karla Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sport Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið:Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Sjá meira