Fréttir
9 10 11 12 13 14 15 16 17 … 334 ›
Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Aðalmeðferð í Súlunesmálinu svokallaða fer fram við Héraðsdóm Reykjaness mánu- og þriðjudaginn 3. og 4. nóvember. Dómurinn verður fjölskipaður og þinghald í málinu lokað að beiðni ákærðu og móður hennar, brotaþola í málinu. Innlent 23.9.2025 14:49
Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Ása Berglind Hjálmasdóttir þingkona Samfylkingarinnar segir bráðnauðsynlegt að ólík börn hafi ólíka valmöguleika sem gefi þeim færi til að blómstra. Harmsaga úr fjölskyldu hennar sé alls ekkert einsdæmi. Innlent 23.9.2025 14:26
Örlög hjartanna enn óráðin Málefni hjartanna á umferðarljósunum á Akureyri eru enn til skoðunar í innviðaráðuneytinu. Innlent 23.9.2025 14:01
Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa 35 ára pólskur karlmaður, Wojciech Pawelczyk, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir innflutning á 5,2 lítrum af amfetamínbasa frá Póllandi til Íslands. Efnið var falið í barnakoju, þó að maðurinn væri barnlaus. Innlent 23.9.2025 13:52
Bein útsending: Trump ávarpar allsherjarþingið Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mun taka til máls á áttugasta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Þar er hann meðal annars sagður ætla að gagnrýna stofnunina og hnattvæðingu og saka stofnanir hnattvæðingarsinna um að valda skaða á alþjóðakerfinu. Erlent 23.9.2025 13:40
Forsetahjónin á leið til Finnlands Halla Tómasdóttir forseti fer ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni, í ríkisheimsókn til Finnlands dagana 7. og 8. október. Innlent 23.9.2025 13:38
Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræddi um mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum þegar hún ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York í gær. Hún ávarpaði þingið á sérstökum viðburði í tilefni þess að þrjátíu ár eru nú frá sögulegri kvennaráðstefnu í Peking í Kína. Þetta var fyrsta ræða Kristrúnar í sal allsherjarþingsins. Innlent 23.9.2025 13:31
Hefðu getað sett símkerfi New York á hliðina Lífvarðarsveit forseta Bandaríkjanna (Secret Service) hefur lagt hald á búnað sem gæti hafa verið notaður til að setja símkerfið í New York, þar sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fer fram, á hliðina. Hald var lagt á rúmlega hundrað þúsund SIM-kort og um þrjú hundruð vefþjóna, sem gætu hafa verið notaðir til að senda þrjátíu milljón smáskilaboð á mínútu. Erlent 23.9.2025 13:29
Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Inga Sæland segist hafa skipt um skoðun á bókun 35 eftir að hafa rakið garnirnar úr sérfræðingum við stjórnarmyndun í vetur. Um sé að ræða neytendavernd sem verndi borgarana betur. Innlent 23.9.2025 13:02
Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Yfirmaður fæðingarteymis Landspítalans segir ekkert nýtt hafa komið fram sem bendi til tengsla milli neyslu á verkjalyfinu parasetamól og einhverfu barna. Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að slæmt væri að óléttar konur tækju lyfið, og sagði læknum að hætta að láta þær hafa það. Innlent 23.9.2025 13:02
Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Bæði lögreglan á Selfossi og Brunavarnir Árnessýslu hafa áhyggjur af því að brennuvargur gangi laus í bænum en eldur hefur komið upp í sama fjölbýlishúsinu þrisvar sinnum á einni viku. Allir þrír eldsvoðarnir eru rannsakaðir sem íkveikjur. Innlent 23.9.2025 12:11
Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Starfandi forsætisráðherra lítur ólöglega drónaumferð í Evrópu grafalvarlegum augum. Hún segir Íslendinga þurfa að átta sig á gjörbreyttu landslagi og vera vel á verði. Innlent 23.9.2025 11:59
Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Netþrjótar hafa verið að senda út svikapósta í nafni Ríkisskattstjóra og varar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu við því að opna hlekki í þeim póstum. Þar er verið að reyna að plata fólk til að opna rafræn skilríki. Innlent 23.9.2025 11:39
Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Í hádegisfréttum fjöllum við um drónana dularfullu sem sáust svífa um í grennd við flugvellina í Kaupmannahöfn og í Osló í gærkvöldi. Innlent 23.9.2025 11:37
Kalla grímuklæddu mennina til yfirheyrslu Lögreglunni hafa borist upplýsingar um hverjir sex grímuklæddir menn sem réðust á einn í Breiðholti í gærkvöldi eru. Til stendur að kalla þá til yfirheyrslu vegna líkamsárásarinnar. Innlent 23.9.2025 11:08
Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Icelandair aflýsti einni ferð frá Kaupmannahöfn í gærkvöldi og einni vél snúið við aftur til Keflavíkur eftir að hafa verið lent í Álaborg þar sem Kastrup flugvöllur í Kaupmannahöfn var lokaður vegna drónaumferðar í nokkra klukkutíma í gærkvöldi. SAS hefur einnig aflýst ferðum milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur en uppákoman hefur ekki haft nein áhrif á áætlunarflug Play. Innlent 23.9.2025 10:38
Fóru með fleipur um einhverfu og bóluefni Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt blaðamannafund í gær þar sem hann tengdi notkun paracetamols á meðgöngu við einhverfu. Þá var kynnt átak sem varpa á frekara ljósi á hina flóknu taugaþroskaröskun. Erlent 23.9.2025 10:10
Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Innviðaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi með tillögum að víðtækum breytingum á sveitastjórnarlögum. Meðal tillaga er lögfesting á 250 íbúa lágmarki sveitarfélaga og er stefnt að sameiningu fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Átta sveitarfélög eru undir lágmarkinu. Innlent 23.9.2025 09:43
Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Einungis helmingur stórs hóps 36 ára Íslendingar sem tekur þátt í gagnasöfnun Heilsuferðalagsins telur sig við góða heilsu. Um helmingur þeirra er einnig í ofþyngd og fimmtungur þeirra á við offitu að stríða. Innlent 23.9.2025 09:24
Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa farið inn í hús og bifreiðar á Sauðárkróki og valdið eldsvoða í hjólhýsi. Innlent 23.9.2025 08:36
Krefur Reykjavíkurborg um frekari svör vegna fundargerðar Umboðsmaður Alþingis hefur krafið Reykjavíkurborg um frekari svör varðandi fundargerð sem var tekin út af vef borgarinnar og síðan endurbirt, með breyttri umsögn skipulagsfulltrúa. Innlent 23.9.2025 07:55
Duterte ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu Fyrrverandi forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte hefur nú verið formlega ákærður fyrir glæpi gegn mannskyninu, en hann er nú varðhaldi hjá Alþjóðaglæpadómstólnum í Haag í Hollandi. Erlent 23.9.2025 07:54
Íbúar í Kína og Hong Kong búa sig undir Ragasa Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Hong Kong og skólum og fyrirtækjum hefur verið lokað vegna ofurfellibylsins Ragasa sem er á leiðinni í átt að eyjunni. Erlent 23.9.2025 07:47
„Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Ekki liggur fyrir hver stýrði drónunum sem urðu þess valdandi að lokað var fyrir alla flugumferð á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn í fleiri klukkutíma í gærkvöldi, hvaðan þeir komu eða hvert þeir fóru. Úkraínuforseti segir Rússa bera ábyrgð en danska lögreglan segist ekki vita hvort svo sé. Það sé meðal annars til rannsóknar, en ljóst sé að „gerandi með getu“ hafi verið á ferðinni. Rússar hafna hins vegar ábyrgð. Erlent 23.9.2025 07:34
Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vindáttin verður lengst af suðlæg og strekkings vindur inn á milli í dag og næstu daga. Veður 23.9.2025 07:05
Frakkar viðurkenna Palestínu en Ísrael fordæmir „pólitískan sirkús“ Frakkland hefur bæst í hóp þeirra ríkja sem hafa lýst yfir viðurkenningu á sjálfstæðri Palestínu. Áður höfðu Bretland, Kanada og Ástralía gert slíkt hið sama. Erlent 23.9.2025 07:03
Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Íslenskur fjölskyldufaðir segir að Útlendingastofnun hafi leitt hann og eiginkonu hans í gildru með misvísandi ráðleggingum. Nú standi til að vísa henni og syni hennar úr landi og segist hann óttast það hver örlög þeirra verði muni það raungerast. Innlent 23.9.2025 07:01
Rannsaka mál sex grímuklæddra manna sem réðust á einn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál þar sem sex grímuklæddir menn eru sagðir hafa ráðist á einn með höggum og spörkum. Innlent 23.9.2025 06:24
Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Eldri hjón sem búa í fjölbýlishúsi á Selfossi segjast dauðhrædd en eldur hefur í þrígang komið upp í húsinu undanfarna viku. Lögregla segir málið til rannsóknar, grunur leiki á að um íkveikju sé að ræða. Innlent 23.9.2025 06:00
Opna í Kaupmannahöfn en loka loftrýminu yfir Osló einnig vegna dróna Flugumferð um Kastrupflugvöll í Kaupmannahöfn er hafin að nýju eftir að hún var stöðvuð fyrr í kvöld vegna óleyfilegrar umferðar dróna. Lögregla segist skorta upplýsingar um fjölda þeirra, gerð og hvaðan þeir komu. Erlent 22.9.2025 23:04
Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu Innlent