Máttu tæma lónið Agnar Már Másson skrifar 8. október 2026 21:10 Frá því að lónið var tæmt árið 2020 hefur deila staðið yfir um það hvort Orkuveitan hafi mátt tæma það. Vísir/Egill Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms sem taldi að Orkuveita Reykjavíkur hefði verið í rétti þegar hún lét tæma Árbæjarlón til frambúðar. Rétturinn viðurkenndi þó að íbúi hefði haft lögvarða hagsmuni af tæmingunni enda byggi hann við nyrðri hluta lónsins og ásýnd svæðisins breyttist mikið.
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að Elliðaár fengju að renna nánast óheftar í sínum upprunalegu farvegum undir Árbæjarstíflu. Ákvörðunin var umdeild og margir íbúar sögðust við fréttastofu á sínum tíma miður sín yfir því að lónið hefði verið tæmt. Einn Árbæingur, Einar S. Ágústsson, kærði tæminguna til skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar og krafðist þess að Orkuveitunni yrði gert að mynda lónið að nýju. Þeirri kæru var hafnað og þegar málið rataði svo til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála komst nefndin að þeirri niðurstöðu að tæming lónsins hefði verið ólögmæt. Framkvæmdin hefði verið svo umfangsmikil að OR hefði átt að sækja um framkvæmdaleyfi til Reykjavíkurborgar og að skipulagsfulltrúa borgarinnar hefði borið að stöðva tæminguna tafarlaust. Í febrúar 2024 komst Héraðsdómur Reykjavíkur að annarri niðurstöðu, taldi tæminguna lögmæta og felldi úrskurð nefndarinnar úr gildi. Héraðsdómur féllst ekki á að það að halda lokum stíflunnar opnum hefði falið í sér meiriháttar framkvæmd í skilningi skipulagslaga enda hefði Árbæjarlón um áratugaskeið verið tæmt reglulega og fyllt á ný í þágu reksturs Elliðaárvirkjunar án þess að til þess þyrfti sérstakt framkvæmdaleyfi. Málinu var þá áfrýjað til Landsréttar sem kvað upp sinn úrskurð í dag þar sem úrskurður héraðsdóms var staðfestur. Þótt dómstólarnir tveir hafi komist að sömu niðurstöðu, að tæmingin hafi verið lögmæt, voru forsendur þeirra mismunandi. Héraðsdómur ógilti úrskurð nefndarinnar meðal annars með vísan til skorts á lögvörðum hagsmunum, en Landsréttur taldi aftur á móti að Einar hefði haft lögmæta hagsmuni þar sem hann byggi við nyrðri hluta lónsins og ásýnd svæðisins hefi breyst mikið. Landsréttur ógilti úrskurðinn þó á þeim grundvelli að aðgerðin væri ekki leyfisskyld, meðal annars vegna þess að stíflur vegna virkjana væru undanþegnar framkvæmdaleyfi.
Umhverfismál Orkumál Skipulagsmál Reykjavík Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira