Fréttir
147 148 149 150 151 152 153 154 155 … 334 ›
Sex handteknir í átaki gegn ólöglegri atvinnustarfsemi Sex aðilar voru handteknir í átaki lögreglunnar gegn ólöglegri atvinnustarfsemi í gær. Allir voru þau lausir að lokinni skýrslutöku. Einn var handtekinn eftir að hafa brotist inn á veitingastað og tveir fyrir ofbeldi í heimahúsi. Innlent 25.5.2024 07:15
Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Saksóknari vill meina að Enok Vatnar Jónsson, sjó- og athafnamaður, hafi hefnt sín vegna stunguárásar sem hann varð fyrir á nýársnótt 2022 um hálfu ári síðar. Hann er ákærður fyrir tvær líkamsárásir, en sá sem varð fyrir annarri þeirra, Bersi Torfason, var sakfelldur í mars fyrir að stinga Enok í umræddri hnífaárás. Innlent 25.5.2024 07:01
Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Vladímír Pútín, forseti Rússlands, er sagður tilbúinn að stöðva innrásarstríð sitt í Úkraínu með vopnahléssamkomulagi sem viðurkennir núverandi átakalínur. Utanríkisráðherra Úkraínu segir Pútín reyna að skemma fyrir áformuðum friðarfundi í næsta mánuði. Erlent 24.5.2024 22:42
Svipað og frekar róleg haustlægð Hvassviðrinu á landinu vestanverðu í dag svipar til frekar rólegrar haustlægðar, að sögn veðurfræðings. Á sama tíma er útlit fyrir steikjandi hita og sólskin norðan heiða alla helgina. Innlent 24.5.2024 21:25
Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Fyrirhuguð sala Hagkaups á áfengi er stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar. Þetta segir forvarnarsérfræðingur sem telur verslunina þverbrjóta áfengislög. Innlent 24.5.2024 20:30
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Öryggismiðstöðin hefur aukið viðbúnað í verðmætaflutningabílum sínum, eftir að tugum milljóna var stolið úr bíl fyrirtækisins í Hamraborg. Þó að þjófarnir hafi aðeins verið örfáar sekúndur að brjótast inn í bílinn segir framkvæmdastjóri bifreiðina sjálfa í raun aukaatriði í málinu. Þá telur hann að viðvörunarkerfi hefði getað stefnt starfsmönnum í hættu. Verkferlum hafi verið fylgt og erfitt að sjá hvað hægt hefði verið að gera öðruvísi. Innlent 24.5.2024 20:12
Rúta brann til kaldra kola við Sóltún Mannlaus rúta brann til kaldra kola á bílastæði í Sóltúni í Reykjavík skömmu eftir klukkan sjö í kvöld. Enginn annar skaði varð af völdum eldsins. Slökkvilið telur að rútan hafi verið númerslaus. Innlent 24.5.2024 20:05
Mikill harmleikur en skýrir farvegir Landspítalinn segir afar miður að móðir sjö vikna gamallar stúlku, sem lést skömmu eftir heimsókn á Barnaspítalann, upplifi að ekki hafi verið hlustað á áhyggjur hennar og ábendingar. Heilbrigðisráðherra segir skýra farvegi til staðar fyrir mál sem þessi en þetta sé harmleikur. Innlent 24.5.2024 19:07
Tamningakona sýknuð af bótakröfu vegna reiðslyss Landsréttur staðfesti sýknu tamningakonu af skaðabótakröfu ungrar konu sem slasaðist alvarlega í reiðslysi þegar hún var unglingur. Unga konan missti hluta af nýra og hefur glímt við aðrar líkamlegar og andlegar afleiðingar eftir slysið. Innlent 24.5.2024 19:03
Aukinn viðbúnaður í verðmætaflutningum og óveður í beinni Öryggismiðstöðin hefur aukið viðbúnað í verðmætaflutningabílum sínum, eftir að tugum milljóna var stolið úr bíl fyrirtækisins í Hamraborg. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður í fyrsta sinn frá atvikinu rætt við framkvæmdastjóra Öryggismiðstöðvarinnar sem segir að viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað stefnt starfsmönnum í hættu. Innlent 24.5.2024 18:01
Stöðvaði innbrotsþjóf sem var hálfur inni í bílnum Umráðamaður bifreiðar náði að koma í veg fyrir að innbrotsþjófur kæmist burt eftir að hann greip þjófinn glóðvolgan. Þjófurinn var hálfur inni í bílnum þegar komið var að honum. Innlent 24.5.2024 17:55
Katrín að taka afgerandi forystu Katrín Jakobsdóttir mælist með 27 prósent fylgi fyrir komandi forsetakosningar í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup. Það er talsvert meira en aðrir frambjóðendur, en enginn annar nær yfir tuttugu prósent. Innlent 24.5.2024 16:51
Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Ríkissaksóknari hefur fellt ákvörðun héraðssaksóknara í máli Alberts Guðmundssonar, leikmanns Genóa í knattspyrnu, úr gildi og lagt fyrir héraðssaksóknara að höfða sakamál á hendur honum. Hann verður því ákærður fyrir kynferðisbrot. Innlent 24.5.2024 16:27
Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Það hafa mælst um 140 skjálftar í kringum kvikuganginn síðustu tvo sólahringa, allir undir 2,0 að stærð. Skjálftarnir voru flestir á svæðunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells annars vegar og sunnan Þorbjarnar hins vegar. Innlent 24.5.2024 15:41
Telur víst að sala á Landsvirkjun komi á borð næsta forseta Halla Hrund Logadóttir hefur verið að gefa eftir í síðustu skoðanakönnunum. Hún hefur verið að slást við Katrínu Jakobsdóttur um toppsætið en í gær gerðist það að nafna hennar Tómasdóttir skaust upp fyrir hana. Innlent 24.5.2024 15:03
Segja miður að móðir hafi upplifað að ekki væri hlustað á hana Landspítalinn mun veita embætti landlæknis allar þær upplýsingar sem þörf er á til að upplýsa með fullnægjandi hætti hvað gerðist þegar sjö vikna gömul stúlka lést um hálfum sólarhring eftir útskrift af Barnaspítala hringsins í nóvember á síðasta ári. Innlent 24.5.2024 15:03
Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Íslendingurinn sem slasaðist í flugvél Singapore Airlines á leiðinni frá London til Singapúr í vikunni var í vinnuferð á vegum Marels. Hann er enn á sjúkrahúsi í Bangkok, höfuðborg Taílands. Innlent 24.5.2024 14:43
Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í dag að Ísraelsher ætti að láta af öllum hernaðarðageðrum í Rafah í suðurhluta Gasaborgar. Í úrskurðinum er ekki kveðið á um vopnahlé eins og óskað hafði verið eftir af Suður-Afríku sem kom með máli til dómstólsins. Erlent 24.5.2024 14:42
Björgólfur lýkur hópmálsókn með milljarðssátt Björgólfur Thor Björgólfsson hefur samþykkt að greiða hluthöfum Landsbankans 1.050 milljónir króna í sáttargreiðslur, í máli sem málsóknarfélög hluthafa Landsbankans höfðuðu gegn honum. Þar með er málinu, sem velkst hefur um í kerfinu í um tólf ár, lokið. Innlent 24.5.2024 14:15
Hafa níu mánuði til að svara dómi MDE í talningamálinu Íslensk stjórnvöld hafa níu mánuði til að skila áætlun til fullnustudeildar Evrópuráðsins um þær ráðstafanir sem gripið verður til vegna dóms Mannréttindadómstóls Evrópu um talningamálið svokallaða. Það kemur fram í svari ráðuneytisins til fréttastofu. Innlent 24.5.2024 13:56
Sló aðra á heimilinu ítrekað með hleðslusnúru Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot í nánu sambandi, með því að beita fyrrverandi eiginkonu hans og börn ítrekuðu ofbeldi. Fólst það meðal annars að slá þau með hleðslusnúru. Innlent 24.5.2024 13:51
Vonar að þetta dugi til Halla Tómasdóttir segir ljóst að frammistaða hennar í kappræðum hafi haft mikil áhrif á fylgi hennar. Hún mælist nú önnur í skoðanakönnunum með rúmlega 18 prósent fylgi, en mældist aðeins með um 5 prósent fylgi fyrr í mánuðinum. Innlent 24.5.2024 11:49
Hagkaup selur áfengi og Þórkatla kaupir í Grindavík Í hádegisfréttum fjöllum við um áform Hagkaups að selja áfengi í verslunum keðjunnar. Innlent 24.5.2024 11:38
„Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Nemendur í háskólum Hollands hafa undanfarna daga reist tjaldbúðir á skólalóðum til stuðnings Palestínu, og margir mætt mikilli hörku lögreglu. Íslenskur nemandi lýsir mikilli samstöðu meðal stúdenta sem fara fram á að hollenskir háskólar taki skýrari afstöðu gegn ísraelskum stjórnvöldum og slíti tengslum við ísraelska háskóla og fyrirtæki. Erlent 24.5.2024 10:58
„ÁTVR dugar“ Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir það skaðlegt samfélaginu að selja áfengi í matvöruverslunum, því áfengi sé engin venjuleg söluvara. Nú þegar sé nægt aðgengi að áfengi með rekstri ÁTVR og markaðssamkeppni óþörf. „ÁTVR dugar.“ Innlent 24.5.2024 10:54
Hækka leigu á stúdentagörðum um tvö prósent í haust Félagsstofnun stúdenta, FS, hækkar leigu á stúdentagörðunum um tvö prósent frá og með 1. september næstkomandi. Ástæða hækkunar er aukin rekstrarkostnaður og aukin viðhaldskostnaður sem ekki hefur tekist að rétta úr undanfarin ár. Innlent 24.5.2024 10:26
Safna til að koma konunum í varanlegt skjól í Nígeríu Hópur fólks stendur nú fyrir söfnun til að aðstoða þrjár nígerískar konur sem var vísað úr landi fyrr í þessum mánuði. Konurnar fengu allar endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd fyrir um ári síðan og voru fluttar á brott í þvinguðum brottflutningi. Innlent 24.5.2024 09:32
Fundur um athafnaborgina Reykjavík Opinn kynningarfundur borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur, fer fram í dag klukkan 9 til 11 þar sem verður fjallað um Reykjavík sem athafnaborg. Fundurinn fer fram í ráðhúsinu Reykjavíkur og er í beinu streymi. Innlent 24.5.2024 08:52
Kostnaður vegna uppkaupa fjórtán milljörðum meiri en áætlað var Útlit er fyrir að heildarfjárfesting Þórkötlu í húsnæði í Grindavík verði allt að 75 milljarðar í heildina eða um 14 milljörðum króna meiri en áætlað var við setningu laganna um úrræðið. Aukinn kostnaður skýrist að mestu af hækkun brunabótamats á eignum í bænum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Fasteignafélaginu Þórkötlu. Innlent 24.5.2024 08:40
Brottfall ungra karla á Íslandi úr námi hæst í Evrópu Um 16 prósent ungs fólks á aldrinum 18 til 24 á Íslandi flosnuðu upp úr námi eftir mennta- eða framhaldsskóla samkvæmt niðurstöðum nýrrar greiningar fyrir árið 20230 á vegum Hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat. Ísland er í þriðja sæti meðal Evrópuríkja. Innlent 24.5.2024 08:09