Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. júní 2026 18:07 Hópurinn átti flug frá Akureyri í morgun. Vísir/Viktor Freyr Ingólfur Samúelsson var meðlimur í sex manna hópi sem vísað var út úr flugvél Transavia í morgun vegna ölvunar. Hann neitar því að einhver í hópnum hafi verið drukkinn og hyggst leita réttar síns. „
Þetta er bara ömurlegt, ég verð að viðurkenna það,“ segir Ingólfur í samtali við fréttastofu. Hópurinn átti bókað flug frá Akureyri til Amsterdam nú í morgun. Akureyri.net greindi frá því að sex manna hópi hefði verið vísað úr flugvélinni að ósk flugfélagsins vegna ölvunar þriggja í hópnum. Ingólfur segist ekki skilja af hverju þeim var vísað út. Hann viðurkennir að hafa fengið sér tvo bjóra en ekki drukkið svo mikið áfengi að hann gæti talist drukkinn. „Þegar flugstjórinn kom aftur í flugvélina hélt ég að hann væri að tala við fólkið fyrir aftan okkur,“ segir hann. „Mér finnst þetta hryllilega lélegt, við vorum búin að spenna beltin. Ég er bara orðlaus yfir þessu.“ Sækist eftir endurgreiðslu Þegar fréttastofa náði tali af Ingólfi var hópurinn á leið til Keflavíkur til að ná flugi í kvöld til Amsterdam. Hann ætlar að sækja um endurgreiðslu þar sem hann telur flugstjórann ekki hafa haft rök fyrir því að vísa hópnum úr vélinni. Ferðalangarnir hafi ekki fengið neina viðvörun heldur hafi flugstjórinn komið aftur í og vísað þeim út án nokkurs fyrirvara. Þau yfirgáfu vélina án mótmæla. „Hvað áttum við að gera? Við stóðum upp og fórum út.“ Ingólfur segist hafa farið í fjölda ferða erlendis í gegnum árin, til að mynda til að fylgjast með bæði heimsmeistara- og Evrópukeppnum í handbolta. „Þar hefur oft verið ofsagaman en ekkert í líkingu við þetta,“ segir hann.
Flug Akureyrarflugvöllur Akureyri Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira