Fréttir

Tvö börn meðal látinna eftir skotárás á veitingastað
Að minnsta kosti tíu eru látnir, þar á meðal tvö börn, eftir skotárás á veitingastað í borginni Cetinje í vesturhluta Svartfjallalands í kvöld. Lögreglan leitar enn árásarmannsins.

Tvær heimagerðar sprengjur fundust á svæðinu
Árásarmaðurinn sem ók bifreið inn í mannfjölda í New Orleans í morgun og myrti tíu og særði um 35 manns hét Shamsud-Din Jabbar og var 42 ára bandarískur ríkisborgari. Fáni hryðjuverkasamtaka sem kennir sig við íslamskt ríki fannst í bílnum.

„Alltof mikið að gera“ hjá Dýrfinnu yfir áramótin
Tíu hundaeigendur höfðu samband við dýraverndunarsamtökin Dýrfinnu yfir áramótin til að óska eftir aðstoð við að finna hunda sem höfðu horfið sjónum. Sex þeirra hafa fundist en fjögurra hunda er enn leitað.

Hlaut stungusár í brjósthol en ekki lengur á gjörgæslu
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald vegna stunguárásar á Kjalarnesi í nótt. Einn særðist alvarlega þegar hann hlaut stungu í brjósthol en sá hefur nú verið útskrifaður af gjörgæslu en er enn á Landspítalanum. Tveir til viðbótar sem særðust í árásinni hafa verið útskrifaðir.

Stunguárás, fálkaorður og ískalt nýársbað
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar í nótt. Einn særðist alvarlega þegar hann var stunginn í brjóstkassa en sá er útskrifaður af gjörgæslu. Tveir til viðbótar sem særðust í árásinni hafa verið útskrifaðir.

Ísþoka hrímaði trjágróður á kaldasta stað landsins í dag
Ísþoka steig upp af Elliðaánum í Víðidal í dag og hrímaði trjágróður meðfram ánni. Þar mældist frostið 21,1 gráða á opinberri mælistöð Veðurstofunnar og reyndist þetta kaldasti staður á láglendi Íslands í dag.

Úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald vegna stunguárásar
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, fram til 8. janúar, vegna hnífstunguárásar á Kjalarnesi í nótt.

Eldur í Ártúnsbrekkunni
Eldur kviknaði í einni af gömlu kartöflugeymslunum á Rafstöðvarvegi við Ártúnsbrekkuna um þrjúleytið. Slökkvilið var tiltölulega fljótt að slökkva eldinn og enginn hafði meint af.

Fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi
Fjórtán Íslendingar – sjö karlar og sjö konur – voru sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag.

Engin umferðarljós og bara tvö hringtorg í Rangárþingi ytra
Sjaldan eða aldrei hefur jafn mikið af nýjum íbúðarhúsum verið byggð á Hellu og nú og ekkert lát virðist vera á slíkum framkvæmdum á nýju ári. Þá er verið að byggja við grunnskólann á Hellu og hann nýjan leikskóla á staðnum.

Árásarmaðurinn skotinn til bana
Árásarmaður sem ók bíll inn í mannfjölda í New Orleans í morgun, myrti tíu og særði um 35 manns, var skotinn til bana af lögreglu þegar hann steig út úr bíl sínum eftir árásina.

„Ég lít á það sem skref í átt til jafnréttis“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segir líta á það sem skref í átt til jafnréttis að þrjár konur hafi leitt stjórnarmyndunina að loknum þingkosningum í nóvember. Það sé einsdæmi í sögu Íslendinga og á sviði þar sem mjög hafi hallað á konur í gegnum tíðina.

Mengun margfalt yfir heilsuverndarmörkum en varði skemur en óttast var
Gildi svifryksmengunar mældis margfalt yfir heilsuverndarmörkum þegar mest var í nótt, en varði skemur en óttast hafði verið. Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort flugeldum hafi verið skotið upp í minna magni en oft áður. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvetur almenning til að hreinsa upp flugeldarusl og skila í viðeigandi grenndargáma.

Árásin á Kjalarnesi: Hinir handteknu allir á fimmtugsaldri
Þrír eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í húsi á Kjalarnesi á nýársnótt.

Stunguárás og álag á bráðamóttöku vegna ofbeldismála
Tveir eru alvarlega særðir og annar þeirra í lífshættu eftir stunguárás á Kjalarnesi í nótt. Þrír voru handteknir á vettvangi.

Álag vegna ölvunar og ofbeldis og tvö tilfelli vegna flugeldaslysa
Mikið álag var á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi á nýársnótt, sem einkum má rekja til ölvunar og áverka vegna ofbeldis. Tveir leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa í nótt sem er minna en oft áður.

Tíu látnir eftir að bíl var ekið á fólk í New Orleans
Tíu eru látnir og þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið inn í mannfjölda á Bourbon Street í bandarísku borginni New Orleans í morgun.

Auðun hættur hjá K100 eftir átta ár
Auðun Georg Ólafsson, fréttastjóri K100, er hættur hjá Morgunblaðinu eftir átta ár hjá fjölmiðlinum. Hann segist nú vera laus og liðugur.

Ástand mannsins mjög alvarlegt
Einn karlmaður var í bílnum sem fór út af bryggjunni á Ægisgarði í Reykjavík og í höfnina eftir hádegið í gær. Ástand mannsins er sagt mjög alvarlegt en hann var fluttur á Landspítalann eftir að tókst að koma honum úr bílnum.

Ungur maður lést í flugeldaslysi í Danmörku
Karlmaður á þrítugsaldri er látinn eftir að flugeldur sprakk nærri höfði hans í Óðinsvéum í Danmörku í nótt.

Kalt og rólegt veður á fyrsta degi ársins
Á þessum fyrsta degi ársins er útlit fyrir rólegt veður víðast hvar. Reikna má með hægum vindi og léttskýjuðu veðri, en norðvestan strekkingi og dálitlum éljum fyrir austan.

Efna til samráðs við almenning um hagræðingu í ríkisrekstri
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hyggst á fyrsta vinnudegi nýja ársins efna til víðtæks samráðs við almenning um hagsýni í ríkisrekstri. Heimili og fyrirtæki hafi þegar gripið til aðgerða til að hagræða og ætli ríkisstjórnin að gera það sama.

Fyrsta barn ársins 2025 komið í heiminn
Fyrsta barn ársins 2025 á Íslandi, eftir því sem fréttastofa kemst næst, kom í heiminn á fæðingardeild Landspítalans við Hringbraut í Reykjavík klukkan 1:46 í nótt.

Ógnaði fólki nærri Hallgrímskirkju
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni sem sagður var ógna fólki nærri Hallgrímskirkju. Vitni sögðu hann hafa hrint fólki og hrækt á það.

Tveir alvarlega særðir eftir stunguárás á Kjalarnesi
Tveir eru alvarlega særðir og er annar þeirra talinn vera í lífshættu eftir stunguárás á Kjalarnesi í nótt.

Hróshringur formanna: „Það liggur fyrir mér að verða markþjálfi“
Eins og hefð er fyrir lauk Kryddsíld fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísi á hróshring meðal formanna flokkanna. Þar skiptust þau á fallegum orðum í garð hvors annars og kvöddu árið með hlýju í hjarta.

„Sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir“
„Það er líka annað sem við segjum sem þið höfðuð ekki pung til að geta staðið undir í sumar og marg stunguð hausnum í sandinn með það. Við ætlum að koma því á að erlendir glæpamenn sem fremja hér mikla glæpi þrátt fyrir að hafa fengið alþjóðlega vernd, eins og þessi ágæti maður sem hefur tekið upp nafn fyrrverandi forseta, að við munum umsvifalaust senda þau úr landi.“

Kannast ekkert við ólgu innan flokksins vegna landsfundar
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi mögulega frestun landsfundar flokksins sem á að fara fram í febrúar en verður mögulega færður fram á haust í Kryddsíld Stöðvar 2 sem stendur nú yfir. Hann sagðist ekki kannast við meinta ólgu innan Sjálfstæðisflokksins vegna málsins sem hann vísaði til sem „blaðamanna blaðurs“ og lenti í orðaskaki við ríkisstjórnina.

Yazan Tamimi er maður ársins
Yazan Tamimi er maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Valið var kunngjört í beinni útsendingu í Kryddsíldinni rétt í þessu.

Kristrún ekki sein í Kryddsíld: „Ég skil ekki hvernig þetta var hægt“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra braut þá áralöngu hefð að forsætisráðherra mæti seinn í Kryddsíldina vegna upptöku á áramótaávarpi hjá Ríkisútvarpinu, í Kryddsíld ársins. Fyrrverandi forsætisráðherra skilur ekki hvernig henni tókst þetta.