Fréttir

Danir hvattir til að eiga neyðarvistir, mat og lyf til þriggja daga
Danir eru hvattir til að eiga matarbirgðir, vatn, lyf og aðrar vistir til minnst þriggja daga til að vera viðbúnir mögulegu neyðarástandi. Um fjórar og hálf milljón Dana sem hafa náð átján ára aldri fá bréf frá stjórnvöldum þess efnis á næstu vikum.

Hinn grunaði ógæfumaður sem íbúar höfðu áhyggjur af
Tengsl hins grunaða við hjón á áttræðisaldri sem fundust látin í Neskaupstað á fimmtudag, voru hvorki mikil né djúp eftir því sem lögregla kemst næst þótt enn sé unnið að því að upplýsa um þann þátt málsins. Niðurstöður krufninga munu liggja fyrir fljótlega.

Sorglegt að búið hafi verið að vara við sumarferðum
Ríkisstjórnin hefur falið starfshóp að skoða slysið í Breiðamerkurjökli og mögulegar brotalamir því tengdar. Í skýrslu sem var unnin fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er varað við íshellaferðum að sumarlagi og forsætisráðherra segist hugsi yfir að ekki hafi verið tekið tillit til þess.

Starfshópi falið að skoða slysið og styttist í niðurstöður krufninga
Forsætisráðherra segist hugsi yfir því að ekki hafi verið tekið tillit til skýrslu, sem unnin var fyrir Vatnajökulsþjóðgarð 2017, þar sem varað er við íshellaferðum að sumarlagi. Starfshópi hefur verið falið að taka slysið á Breiðamerkurjökli til skoðunar.

Þyrlusveitin kölluð til fjórum sinnum síðasta sólarhringinn
Þyrlusveitir Landhelgisgæslunnar hafa sinnt fjórum útköllum síðasta sólarhringinn ofan á það að hafa sinnt viðbragði við Breiðamerkurjökli í gær. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þyrlusveitina hafa sinnt sjúkraflugi vegna bráðra veikinda á Hvammstanga, Hornbjargi og Grundarfirði og svo á skemmtiferðaskipi sem var um 150 sjómílur norður af Ísafirði.

Blöskrar myndbirting: „Er enginn fullorðinn sem vinnur þarna?“
Dagur B. Eggertsson forseti borgarráðs er verulega ósáttur við myndbirtingu af sér í Morgunblaðinu í dag. Hann sendir „aðstandendum Morgunblaðsins“ innilegustu samúðarkveðjur.

Sumarferðir ekki byrjaðar þegar skýrsla var gerð
Margskonar hættur fylgja íshellum sem eru í eðli sínu óstöðugir og síbreytilegir samkvæmt skýrslu sem var unnin um íshellaferðir í Vatnajökulsþjóðgarði fyrir sjö árum. Í henni var ekki gert ráð fyrir að farið væri með fólk í hella að sumarlagi.

Skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu áfengis
Svokölluð breiðfylking félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka skora á yfirvöld að bregðast við aukinni netsölu á áfengi. Fylkingin hefur miklar áhyggjur af fyrirhugaðri áfengissölu í Hagkaupum sem á að hefjast á næstu dögum.

Áfrýjar ákvörðun dómara um að vísa leyniskjalamáli Trump frá
Saksóknarinn Jack Smith fór þess á leit við áfrýjunardómstól í gær að hann snéri við frávísun dómarans Aileen M. Cannon á dómsmáli gegn Donald Trump, sem varðar meðferð forsetans fyrrverandi á trúnaðargögnum.

Rannsaka skipstjóra lystisnekkjunnar sem sökk
Ítalskir saksóknarar rannsaka nú skipstjóra lystisnekkjunnar Bayesian sem sökk undan ströndum Sikileyjar fyrr í þessum mánuði. Hann er grunaður um manndráp og að valda sjóslysi.

Áríðandi að slysið verði rannsakað og öllum spurningum svarað
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segist hafa verið sleginn yfir slysinu við íshellinn á Breiðamerkurjökli um helgina. Hann segist þakka fyrir það að fleiri hafi ekki lent undir ísfarginu.

Tveggja daga viðræður um myndun ríkisstjórnar engu skilað
Pattstaða ríkir enn í pólitíkinni í Frakklandi en Emmanuel Macron Frakklandsforseti neitar ennþá að útnefna forsætisráðherra úr röð vinstrihreyfingarinnar, sem fékk flest atkvæði í þingkosningunum í sumar.

Börn sofi ekki úti í vagni vegna gosmóðu
Þess má vænta að töluverð gosmóða og reykur frá gróðureldum vegna eldgossins við Sundhnúksgíga leggist yfir byggð í dag. Gosvirkni hefur verið stöðug í nótt og strókavirkni kröftug.

Lægð suðvestur af landinu og á leið austur
Minniháttar hæðarhryggur er nú yfir landinu og eru því víða hægir vindar og verður bjart með köflum. Suðvestur af landinu er hins vegar dálítil lægð á hreyfingu austur sem mun valda austanstrekkingi og smá rigningu við suðurströndina.

Fjórir látnir eftir aðra umferð loftárása Rússa í nótt og morgun
Íbúar víðsvegar um Úkraínu voru hvattir til að leita skjóls í morgun, annan daginn í röð, vegna umfagnsmikilla loftárása Rússa. Tveir létust í árás á hótel í borginni Kryvyi Rih í nótt og tveir til viðbótar í drónaárásum á Zaporizhzhia.

Segja Kínverja hafa ógnað fullveldi Japan
Japönsk stjórnvöld segja kínverska herinn hafa brotið gegn fullveldi landsins og ógnað öryggi þegar kínversk herflugvél flaug inn í lofthelgi Japan í gær.

Einn handtekinn í tengslum við stórfellda líkamsárás
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einn í gærkvöldi eða nótt í tengslum við rannsókn á stórfelldri líkamsárás og þrjá í tengslum við rannsókn á ráni.

Magakveisur ekki til þess að fólk forðist skála FÍ
Fólk hefur ekki afpantað gistingu í skálum Ferðafélags Íslands eftir að fregnir af nóróveirusmitum bárust í síðustu viku. Ólíklegt er talið að smitin megi rekja í vatnsból við skálana.

Fluttu kókaín til landsins í kaffikönnu og útvarpstæki
Þrír menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að hafa reynt að smygla kókaíni til landsins. Annars vegar voru efnin flutt í kaffikönnu frá Frakklandi, og hins vegar í útvarpstæki frá Sviss.

Sífellt fleiri ungmenni með hníf til að verja sig
Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að útköllum vegna vopnaburðar hafi fjölgað verulega á síðustu árum. Sjö prósent ungmenna frá 7. bekk að 1. ári í framhaldsskóla svöruðu því játandi að hafa borið hníf í nýlegri könnun. Flestir sögðust hafa viljað verja sig.

Fjórir strákar og tuttugu og sjö stelpur fá námsstyrk í Háskóla Íslands
Þrjátíu og einn nýnemi við Háskóla Íslands, sem náð hefur framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs, tók við styrk út Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ í dag. Styrkþegarnir samanstanda af 27 stelpum og 4 strákum.

Óvissustigi aflétt á Tröllaskaga
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra ákveðið að fara af óvissustigi Almannavarna sem sett var á 23. ágúst síðastliðinn vegna mikillar rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga.

Sýnileg gasmengun en ekki hættuleg
Gasmengun mælist í Reykjanesbæ og nágrenni vegna eldgossins sem enn mallar á Reykjanesskaga. Að sögn náttúruvársérfræðings stafar ekki hætta af menguninni.

Alsæl með meiri svefn: „Þessi hálftími gerir mjög mikið!“
Tíundu bekkingar í Hagaskóla hoppa hæð sína yfir að fá nú að sofa hálftíma lengur eftir breytingu hjá Reykjavíkurborg. Svefnsérfræðingur bindur vonir við að önnur sveitarfélög fylgi í kjölfarið.

Faðir pilts sem lenti í stunguárás hélt að sonurinn væri látinn
Faðir palestínsks drengs sem varð fyrir alvarlegri stunguárás á menningarnótt ásamt tveimur íslenskum stúlkum segist hafa talið að hann væri að bjarga lífi barnanna sinna með því að flytja til Íslands. Hann óttast nú um líf sonarins.

Fundu virka sprengju nærri gönguleið
Virk sprengja hefur fundist nærri gönguleið sunnan Voga og sunnan Reykjanesbrautar við upphaf eldgossins. Svæðið er þekkt sprengjusvæði, en þar stóð bandaríski herinn fyrir skotæfingum allt fram til ársins 1960.

Engar frekari íshellaferðir að svo stöddu
Vatnajökulsþjóðgarður hefur farið þess á leit við ferðaþjónustuaðila sem við á, að þeir fari ekki í íshellaferðir á svæði þjóðgarðsins að svo stöddu. Allir hafa brugðist vel við þeirri beiðni, að því er kemur fram í tilkynningu frá þjóðgarðinum. Þá segir að til skoðunar hafi verið að gera enn meiri kröfur til rekstraraðila sem starfa í þjóðgarðinum.

Leit hætt og rætt við föður drengs sem varð fyrir stunguárás
Björgunaraðgerðum við Breiðamerkurjökul var hætt í dag eftir að í ljós kom að enginn var undir ís sem féll á ferðamenn. Lögregla segir mikilvægt að skráning í varasamar ferðir sé skýr.

Kallar eftir aukinni menntun leiðsögumanna
Íris Ragnarsdóttir Pedersen í stjórn félags fjallaleiðsögumanna á Íslandi, segir að þau í félaginu vilji sjá að allir sem starfa á fjöllum og jöklum séu með ákveðna menntun. Því markmiði hafi ekki alveg verið náð. Hún segir samfélagið kalla eftir skýrari lagaramma og viðlögum, sé ekki farið eftir reglum þjóðgarðsins hvað menntun og leyfi varðar.

Fyrirtækið er frumkvöðull í sumaríshellaferðum
Fyrirtækið sem var með 23 ferðamenn í íshellaferð við Breiðamerkurjökul í gær heitir Ice Pic Journeys samkvæmt heimildum fréttastofu. Það hefur sérhæft sig í ævintýralegum jöklaferðum á svæðinu og verið frumkvöðull í sumarferðum á jökulinn. Fyrirtækið þjónustar meðal annars ferðaþjónusturisann Guide to Iceland.