Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 19. október 2026 14:03 Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir, verkefnastjóri við Háskóla Íslands telur dómara í Landsrétti í mótsögn við sjálfan sig í nýlegum dómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu. Vísir Undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Verkefnastjóri við Háskóla Íslands segir dómarana tvo sem sýknuðu manninn í mótsögn við eigin rökstuðning og hafi varpað ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konuna.
Maður sem sýknaður var af nauðgun í Landsrétti í síðustu viku hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan í málinu hlaut alvarlega áverka, meðal annars rifbeinsbrot og heyrnartap. Meirihluti Landsréttar, tveir dómarar af þremur, taldi ósannað að maðurinn hefði af ásetningi gengið lengra en hann hafði réttmæta ástæðu til að ætla að konan samþykkti. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði og vildi staðfesta sakfellinguna. Undirskriftarsöfnun hafin Við meðferð málsins í héraði kom fram að maðurinn ætti að baki dóm frá árinu 2020 fyrir nauðgun, kynferðislega áreitni og ofbeldi í nánu sambandi. Í kjölfar sýknudómsins, sem féll á fimmtudag, hófst í morgun undirskriftasöfnun á Ísland.is, þar sem krafist er úttektar á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála. Tæplega tvö þúsund manns höfðu skrifað undir fyrir hádegi. Segir dómarana í mótsögn við eigin rökstuðning Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir, verkefnastjóri við Háskóla Íslands og fyrrverandi talskona samtakanna Líf án ofbeldis, gagnrýnir sýknudóminn harðlega. Hún segir dómarana tvo viðurkenna í forsendum sínum að þolendur nauðgana geti frosið af hræðslu en telji engu að síður að konan hafi ekki gert nóg til að stöðva manninn.Að hennar mati byggist sýknan á því að ekki hafi tekist að sanna að maðurinn hafi af ásetningi farið út fyrir mörk samþykkis konunnar, þrátt fyrir að alvarlegir áverkar hennar séu óumdeildir. Með þessu sé ábyrgðinni á að stöðva ofbeldið varpað yfir á konuna. Þetta kallar hún „lögfræðilegan gervivafa“. „Þessi dómur er mjög sláandi. Það er farið rækilega yfir í dómsorðunum hvað felst í samþykki, lögum samkvæmt og hvað felst ekki í samþykki. Það er auk þess viðurkennd þekking á viðbrögðum þolenda nauðgana sem eru lífeðlisleg viðbrögð þannig að viðkomandi getur frosið. Samt komast þeir að þeirri niðurstöðu að konan hafi í þessu máli ekki gert nóg til að stoppa manninn. Þeir leggja alla ábyrgðina á konuna þó að hún hafi ekki getað andað, þó að hún hafi í rauninni afturkallað samþykki sitt með nægilegum hætti með því að segja umsamið öryggisorð sem talað er um í dómnum líka. Þannig að dómararnir tveir eru að mínu mati í mótsögn við sjálfa sig í dómnum,“ segir Sigrún Sif. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu Sigrún segir niðurstöðuna senda hættuleg skilaboð um að samþykki fyrir harkalegu kynlífi geti réttlætt alvarlegt ofbeldi. Hún telur mikilvægt að málið fari fyrir Hæstarétt og að niðurstaða Landsréttar verði ekki fordæmisgefandi í kynferðisbrotamálum. „Ég myndi náttúrulega vilja að ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar,“ segir hún. Ríkissaksóknari kannar nú hvort leita eigi leyfis til að áfrýja sýknudóminum til Hæstaréttar, samkvæmt svari embættisins við fyrirspurn fréttastofu. Sigrún leggur jafnframt til að Alþingi skoði hvort gera eigi nauðgun af gáleysi refsiverða í tilvikum þar sem sýnt sé fram á að ofbeldið hafi valdið alvarlegu líkamlegu eða andlegu tjóni. „Við viljum ekki hafa svona,“ segir hún að lokum.
Kynferðisofbeldi Dómstólar Lögreglumál Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Sjá meira