Fréttir

Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra
Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna.

Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið
Áhöfn Boeing 747-júmbóþotu Air Atlanta flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið í kvöld og var hún yfir borginni um klukkan 18:50. Flugvélin var að koma með 240 starfsmenn félagsins og maka frá Casablanca í Marokkó og lenti í Keflavík upp úr klukkan 19.

„Þetta er ekki endanlegt frumvarp“
Dómsmálaráðherra fagnar því að umræða um drög hennar að breytingu á áfengislögum, sem myndi leyfa innlenda netverslun með áfengi, sé á þá leið að starfsemin verði frjálsari. Hún muni taka umsagnir og athugasemdir til greina áður en málið rati á borð ríkisstjórnar.

Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor
Tillaga að ályktun um að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok var samþykkt á landsfundi Vinstri grænna fyrir skömmu. Í ályktuninni segir meðal annars að ganga verði til kosninga næsta vor.

Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri
Ragnheiður Kristínardóttir vísar orðum lögreglunnar á bug um að mótmælendur hafi gengið í veg fyrir lögreglubíl sem var í forgangsakstri í gær.

Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa
Ljósmóðir sem vann á sjúkrahúsi á Gasa í sumar og hefur í þrjátíu ár starfað sem sendifulltrúi Rauða krossins víða um heim segir aðstæðurnar á Gasa að mörgu leyti þær hættulegustu sem hún hefur starfað í. Hún upplifi minni virðingu fyrir störfum heilbrigðisstarfsfólks en áður fyrr.

Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael
Nokkrir eru særðir og einn hið minnsta er látinn eftir skotárás á strætóstoppistöð í borginni Beersheba í Ísrael. BBC greinir frá þessu.

Nóg af heitu vatni á Selfossi
Selfyssingar hafa dottið í lukkupottinn þegar heitt vatn er annars vegar því mikið af heitu vatni hefur verið að finnast í nokkrum borholum í bæjarfélaginu. Vatnið kemur sér einstaklega vel þar sem íbúum fjölgar mjög hratt á Selfossi.

Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana
Talið er að hátt í þrjú þúsund Hezbollah-liðar hafi látið lífið eða verið limlestir ásamt óþekktum fjölda óbreyttra borgara þegar fjöldi símboða sprakk þann 17. september síðastliðinn. Það var Mossad, ísraelska leyniþjónustan, sem bar ábyrgð á verknaðinum sem hafði verið í undirbúningi í um tvö ár.

Glerbrot í lauginni
Stóra laugin í Sundlaug Seltjarnarness var lokuð í morgun afþví að glerbrot voru á botni hennar. Hún hefur þó verið opnuð á ný eftir tiltekt.

„Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“
Prófessor í stjórnmálafræði segir fyrstu ræðu Svandísar Svavarsdóttur sem formaður Vinstri grænna geta bent til þess að kosningar séu nær en marga gruni. VG hafi tekið efnislega ákvörðun um að halda stjórnarsamstarfinu ekki áfram, þrátt fyrir að óvíst sé hvenær kosið yrði.

Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni
Prófessor í stjórnmálafræði segir fyrstu ræðu Svandísar Svavarsdóttur sem formaður Vinstri grænna geta bent til þess að kosningar séu nær en marga gruni. VG hafi tekið efnislega ákvörðun um að halda stjórnarsamstarfinu ekki áfram.

„Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka
Ísraelsher gerði umgangsmiklar loftárásir á Beirút snemma í morgun. Árásirnar eru samkvæmt líbönskum miðlum þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Þá létu minnst nítján lífið í loftárásum Ísraela á mosku í Gasa í nótt.

Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza
Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Búast við lítilsháttar éljum á Ströndum og fyrir norðaustan
Víðáttumikil lægð vestur af Írlandi og hæð yfir Grænlandi beina til okkar norðaustlægri átt að mati Veðurstofunnar. Víða má búast við kalda eða strekkingi.

Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið
Flugáhöfn Air Atlanta á hringferð um Afríku upplifði það að sjá ljón tvívegis ráðast á og drepa dýr í þjóðgarði skammt frá hóteli sínu. Áhöfnin var í hvíldarstoppi í borginni Nairobi í Kenýa.

Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða
Lögreglan var kölluð til vegna umferðarslyss á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Einum bíl hafði verið ekið í hlið annars bíls á talsverðum hraða, en einn var talinn slasaður á vettvangi.

Sneri aftur á vettvang banatilræðisins
Donald Trump sneri aftur til Butler í Pennsýlvaníu þar sem honum var veitt banatilræði í sumar. Auðjöfurinn Elon Musk steig á svið með svarta MAGA-derhúfu á höfðinu.

Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ
Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD-samtakanna, var kjörinn varaformaður Öryrkjabandalags Íslands á aðalfundi samtakanna í Reykjavík í dag.

„Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“
Tveggja ára drengur datt ofan í vatnsbrunn í Garðabænum þegar hann gekk yfir brunnlok sem var ekki almennilega fest. Til allrar lukku var drengurinn ekki einn þegar hann datt og slapp sömuleiðis óskaddaður.

Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita
Allir bátarnir, sem fluttu Eyjamenn til landsins í eldgosinu 1973 hafa verið málaðir á vita í Vestmannaeyjum en vitinn vekur alltaf mikla athygil ferðamanna.

Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet?
Ný mállýska hefur náð fótfestu meðal ungs fólks á Íslandi. Stofnanir og fyrirtæki keppast við að gera grín að orðunum, við misgóðar undirtektir.

„Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“
Svandís Svavarsdóttir, nýkjörinn formaður Vinstri grænna, sagði flokkinn aldrei hafa verið jafnmikilvægan. Ef hægrið fengi að ráða ferðinni færi illa fyrir kerfum þjóðarinnar. VG muni aldrei samþykkja grimman niðurskurð auðvaldsins á samneyslunni og muni berjast gegn einkavæðingu heilbrigðiskerfisins.

Fagna löngu tímabærri breytingu
Formaður Samtakanna '78 fagnar mjög reglugerðarbreytingu sem mun gera samkynhneigðum körlum kleift að gefa blóð. Hún segir breytinguna löngu tímabæra en nú þegar hún sé gengin í gegn sé farsælla að horfa fram á veginn fremur en að dvelja við fortíðina.

Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins
Beirút, höfuðborg Líbanon, er líkt við stríðssvæði. Ísraelsmenn og Hezbollah samtökin hafa gert árásir á báða bóga á landamærunum í dag á sama tíma og fólk á Gasasvæðinu er hvatt til að flýja. Lögregla þurfti að hafa afskipti af mótmælendum í Reykjavík á samstöðufundi fyrir Palestínu.

Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri
Fólk í mótmælagöngu gekk í veg fyrir lögreglubíl sem var í forgangsakstri á leið á vettvang harðs áreksturs í Hlíðunum. Fólkið gerði í því að stöðva för lögreglu að sögn varðstjóra.

Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur verið kjörin formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra var kjörinn varaformaður.

Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið
Mótmælendur sem kröfðust aðgerða í málefnum Palestínu fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig skvettu málningu á vegg sendiráðsins fyrr í dag. Þá virðist hafa komið til smávægilegra átaka milli lögreglu og mótmælenda.

Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum
Matvælaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar um að hafna innflutningi á hundi til landsins. Eigandi hundsins flutti hann til landsins, en vildi meina að ekki væri um eiginlegan innflutning að ræða þar sem hann væri að koma aftur heim til Íslands.

Engum verði vísað út við myndbirtingu
Formaður dómstólsins í Avignon í Frakklandi hefur dregið til baka ákvörðun sína um að vísa fjölmiðlafólki úr dómsal þegar myndefni verður sýnt við réttarhöld í máli Dominique Pélicot. Hvorki fjölmiðlafólki né almenningi verði vísað út við myndbirtingar.