
Veður

Víðast hvar rólegt en viðvörun á Vesturlandi
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun vegna sunnan storms á norðanverðu Snæfellsnesi. Viðvörunin gildir til klukkan 11.

Bætir smám saman í vind
Dálítill hæðarhryggur er nú yfir landinu og eru vindar því hægir og úrkoma lítil. Suður og suðaustur af Hvarfi er þó alldjúpt lægðasvæði, sem nálgast og bætir því smám saman í vind.

Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi
Gular og appelsínugular viðvaranir Veðurstofunnar renna út á næstu klukkutímunum. Veðurfræðingur á vakt segir að þó stutt sé í að veðrið gangi niður geti það enn valdið vandræðum síðustu klukkutímana á til dæmis Norðausturlandi.

Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi
Veðurfræðingar vara við enn verra veðri í dag heldur en gert var ráð fyrir í fyrstu spám í gær. Kröpp og dýpkandi lægð, skammt suðvestur af Reykjanesi, hreyfist norður á bóginn og gengur þá á með hvassri sunnanátt eða stormi, rigningu og hlýindum, en þurrt að kalla á Norður - og Austurlandi. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi um mestallt land.

Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar hefur varað við enn verra veðri á morgun, heldur en gert var ráð fyrir í spá dagsins. Á norðanverðum Vestfjörðum má búast við ofsaveðri eða fárviðri og hviðum um og yfir 50 m/s.

Lægir en næsta lægð nálgast úr suðri
Það er suðvestanátt á landinu, hvasst norðantil fram eftir morgni en lægir síðan. Næsta lægð nálgast úr suðri í kvöld með vaxandi austanátt og rigningu, fyrst sunnanlands.

Ekki lægri meðalhiti frá árinu 1997
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir meðalhita á landinu ekki hafa verið minni frá árinu 1997. Það verði líklega hlýtt fram á miðjan mánuð en þá gæti veðrið breyst. Meðalhiti síðustu 12 mánaða er 4,4°C í Reykjavík.

Víða hvasst og gul viðvörun vegna vinds á Snæfellsnesi
Veðurstofan gerir ráð fyrir hlýrri sunnanátt á landinu í dag þar sem verði fremur hvasst og rigning eða súld en að mestu þurrt á Norður- og Norðausturlandi.

Spá stormi á Snæfellsnesi á morgun
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna suðaustan hvassviðris eða storms á morgun.

Dregur smám saman úr vindi og úrkomu
Hæðarhryggur fer austur yfir landið í dag og dregur smám saman úr vindi og úrkomu.

Rigning eða súld um mest allt land
Það verður suðaustanátt í dag, víða tíu til átján metrar á sekúndu, hvassast norðvestanlands. Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar.

Búist við austlægri átt
Búist er við austlægri átt, sem verður þrír til átta metrar á sekúndu, og dálítilli rigningu eða slyddu á sunnanverðu landinu í dag, en þó mun létta síðdegis. Talið er að það verði nokkuð bjart á norðanverðu landinu. Hiti tvö til sex stig sunnanlands en um eða undir frostmarki fyrir norðan.

Fimmtán stiga frost á Grímsstöðum á Fjöllum í nótt
Kalt loft barst úr norðvestri yfir landið og það snjóaði í mörgum landshlutum í gær. Það létti svo til og lægði og þá getur frostið náð sér á strik og mældist þannig 15 stiga frost á Grímsstöðum á Fjöllum, 13,4 stiga frost á Mývatnsöræfum og 13,2 stiga frost við Dettifoss.

Élja- og snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri
Útlit er fyrir vestan- og norðvestanátt í dag, víða á bilinu átta til þrettán metra á sekúndu. Élja- eða snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri og þeir sem sækja norðan að eru efnismeiri.

Vestan- og suðvestanátt með skúrum eða éljum
Smálægð á Grænlandshafi beinir fremur hægri vestan- og suðvestanátt til landsins með skúrum eða éljum, en yfirleitt úrkomulaust fyrir austan.

Lægð nálgast úr suðvestri
Lægð nálgast nú úr suðvestri og gengur því í sunnan átta til fimmtán metra á sekúndu í dag með rigningu eða slyddu, en þurrt að kalla austanlands fram eftir degi.

Stormur og talsvert vatnsveður á vestanverðu landinu
Mikill lægðagangur hefur verið að undanförnu og svo er að sjá að það verði áfram, þótt heldur minni hlýindi fylgi lægðunum sem koma um og eftir helgi.

Styttir upp með kvöldinu og frystir um mest allt land
Kröpp lægð sem kom upp að ausatanverð landinu í nótt fer nú hratt til norðurs og má gera ráð fyrir að veðrið í dag verði ansi breytilegt. Lengst af verði úrkoma vestantil í formi rigningar eða skúra, em fyrir norðan færist hins vegar rigningin smám saman yfir í slyddu á láglendi en snjókomu inn til landsins.

Rigning sunnantil og víða snjókoma norðanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt og að vindur nái sér ekki á strik og verði á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu.

Tvískipt veður á landinu
Lægð sem stödd er norðaustur af landinu veldur allhvassri eða hvassri norðvestanátt á norðaustan- og austanverðu landinu í dag og mun þar snjóa með vindinum. Akstursskilyrði geta því verið erfið á þessum slóðum, sérstaklega á fjallvegum og er ferðalöngum bent á að kanna aðstæður hjá Vegagerðinni áður en lagt er af stað.

Skúrir um allt land
Austur af landinu er nú víðáttumikil lægð sem veldur norðvestlægum áttum með skúrum um allt land. Þegar líður á daginn kólnar norðantil með snjókomu eða él.

Lægð yfir Vesturlandi stjórnar veðrinu
Þaulsetin lægð yfir Vesturlandi stjórnar veðrinu í dag. Staðsetning lægðarinnar veldur suðlægum áttum en á Breiðarfirði og Vestfjörðum er fremur hæg breytileg átt. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.

Rigning og súld í dag
Lægð yfir Vesturlandi veldur suðlægum áttum á landinu í dag. Lægðin fer hægt norður og grynnist. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að hún fari svo í norðaustanátt fram eftir degi. Það verður því rigning og súld í dag en bjart með köflum á Norðausturlandi. Hiti verður líklega á bilinu 2 til 8 stig.

Vaxandi norðaustanátt og gular viðvaranir taka gildi
Veðurstofan gerir ráð fyrir vaxandi norðaustanátt í dag þar sem verður skýjað og sums staðar dálítil rigning eða slydda. Gular viðvaranir taka gildi síðar í dag.

Dálítil rigning sunnan- og vestanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu og skýjuðu, en átta til þrettán metrum á norðvestanverðu landinu.

Skýjað og sums staðar rigning eða slydda
Veðurstofan gerir ráð fyrir breytilegri átt í dag, víða þrjá til tíu metra á sekúndu í dag. Spáð er skýjuðu veðri og sums staðar dálítilli rigningu eða jafnvel slyddu, einkum á Austurlandi.

Allt að átta stiga frost
Í dag verður rólegt í veðri og kalt víðast hvar en þó norðvestan strekkingur austast fram eftir degi. Frost verður á bilinu núll til átta stig.

Hálka á vegum á suðvesturhorninu
Eftir vætu í nótt hefur létt til og kólnar því á suðvesturhorni landsins. Vegna þess eru líkur á hálku á vegum á því svæði og er vegfarendum því bent á að fara varlega.

Snjókoma og hálka á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudag
Á fimmtudagsmorgun er líklegt að íbúar á Suður- og Vesturhluta landsins, þar með talið höfuðborgarbúar, muni vakna með nokkurra sentímetra snjó á götunum. Á Norður- og Norðausturlandi verða él þannig meira og minna allt landið verður hvítt að einhverju leyti. Það byrjar að snjóa aðfaranótt fimmtudags og verður líklega allt farið um kvöldið eða daginn eftir.

Dálítil rigning eða slydda suðvestantil
Veðurstofan spáir breytilegri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, en að smám saman snúist í norðaustanátt. Skýjað verður að mestu og dálítil él eða slydduél fyrir norðan og austan.