Innlent

Fleiri for­eldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaða­bótum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra.
Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Vinnumálastofnun vekja athygli á því að foreldrar sem fóru í fæðingarorlof 2022 til 2025 og störfuðu í öðru EES-ríki geti átt rétt á skaðabótum. Tilefni tilkynningar er dómur Hæstaréttar frá því í september þar sem ríkinu var gert að greiða íslenskum lækni skaðabætur vegna rangrar innleiðingar á reglum EES-samningsins í tengslum við greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

Dómurinn varðaði þannig útreikning á meðaltali heildarlauna í þeim tilfellum þar sem foreldri starfaði í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Kona sem hafði starfað sem læknir í Danmörku frá 2015 til 2019 höfðaði mál gegn ríkinu þar sem hún heimtaði skaðabætur á þeim grundvelli að ríkið hefði staðið ranglega að því að leiða í lög EES-reglugerð um frjálsa för launþega og fyrirmæli Evrópuþingsins um samræmingu almannatrygginga.

Málið snýr að því að þegar hún flutti heim til Íslands haustið 2019 og átti barn í mars 2020 hafi hún aðeins hlotið lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, sem nema um 184 þúsund krónum á mánuði.

Þar sem lögin miðuðu við tekjur á íslenskum vinnumarkaði á ákveðnu tímabili fyrir fæðingu, og hún hafði engar slíkar tekjur þar sem hún hafði verið úti í Danmörku, fékk hún minna greitt en læknir í fullu starfi á Íslandi hefði annars.

Fékk tæpar þrjár milljónir í skaðabætur

Niðurstaða dómsins var sú að konan hefði fengið of lágar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði og voru konunni dæmdar 2,7 milljónir í skaðabætur. Niðurstaða dómstólsins var jafnframt sú að íslenska ríkið hefði ekki innleitt EES-lögin nógu fljótt en þeim hefur nú verið breytt.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu og Vinnumálastofnun kemur fram að þeir foreldrar sem störfuðu að hluta eða öllu leyti á 12 mánaða viðmiðunartímabili fæðingarorlofs í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og fengu greitt fæðingarorlof á tímabilinu september 2022 til og með júní 2025 kunni að eiga rétt á skaðabótum á grundvelli niðurstöðu dómsins. Það eigi þó einungis við ef viðkomandi starfaði skemur en fjóra mánuði á innlendum vinnumarkaði á 12 mánaða viðmiðunartímabili við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Foreldrar sem uppfylla öll neðangreind skilyrði kunna að eiga slíkan rétt:

  • Fengu greitt úr Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu september 2022 til og með júní 2025.
  • Störfuðu skemur en 4 mánuði á innlendum vinnumarkaði á 12 mánaða viðmiðunartímabilinu sem notað er við útreikning á meðaltali heildarlauna.
  • Störfuðu í öðru EES-ríki á viðmiðunartímabilinu.

Foreldrar sem telja sig verr setta hvað fjárhæð greiðslna úr sjóðnum varðar vegna flutnings til landsins og að þeir eigi rétt til skaðabóta á grundvelli dómsins geta beint kröfum sínum til Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun tekur á móti umsóknunum. Samkvæmt tilkynningu mun stofnunin senda allar upplýsingar til ríkislögmanns sem tekur ákvörðun um rétt til greiðslu skaðabóta fyrir hönd íslenska ríkisins.

Umræða um bókun 35

Dómurinn og málið sjálft hafa verið töluvert til umræðu í tengslum við innleiðingu á bókun 35 og málsókn ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, gegn íslenska ríkinu. Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn.

Fleiri gætu leitað réttar síns

Sérfræðingur í Evrópurétti sagði í viðtali við Vísi að fleiri gætu leitað réttar síns vegna málsins, enda skýrt fordæmi nú fyrirliggjandi.

Þorgerður Katrín sagði þegar dómurinn féll í Hæstarétti að hann væri dæmi um það af hverju bókun 35 og innleiðing hennar skiptir máli.

„Þegar upp er staðið er bókun 35 réttlætismál fyrir íslenskan almenning og íslensk fyrirtæki og við erum búin að sjá það að í sex eða sjö ár hefur þessi kona barist fyrir rétti sínum og á sama tíma hefur Alþingi Íslendinga ekki náð að klára þetta mál. Að klára þetta mál er einfaldlega að standa með EES-samningnum og að standa með réttindum Íslendinga,“ segir sagði hún um það.

Villandi málflutningur

Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa mótmælt þessum málflutningi og segja dómsmál um fæðingarorlof og skaðlegt sælgæti hafa verið notuð með villandi hætti til að rökstyðja innleiðingu bókunar 35. Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sakaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum á Alþingi fyrr í mánuðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×