Enski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast

Crystal Palace hefur ekki byrjað tímabilið frábærlega og situr liðið í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið tapaði 5-0 gegn erkifjendunum í Brighton um helgina og virðist aukinn þrýstingur vera á Pierre Sage, þjálfara liðsins.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ýmis­legt fyrir stuðnings­menn Tottenham til að fagna

Eftir erfiða byrjun á tímabilinu náði Tottenham að sækja fyrsta sigur tímabilsins í gær með 3-1 sigri á nýliðum Coventry. Það var þó meira sem Tottenham gat fagnað þar sem James Maddison snéri aftur í byrjunarliðið í 18 mánuði og Dejan Kulusevski kom inn á eftir að hafa verið meiddur í yfir 500 daga.

Enski boltinn
Fréttamynd

Manzambi reyndist hetja Aston Villa

Aston Villa gerði góða ferð norður í land á Bretlandseyjum þegar liðið hafði betur gegn Newcastle United, 1-0, er liðin mættust í Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 

Enski boltinn
Fréttamynd

Aftur vand­ræða­gangur hjá Manchester United fyrir úti­leik gegn Leeds

Manchester United heimsækir Elland Road á sunnudaginn þar sem liðið mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni. Sagan virðist ætla að endurtaka sig þar en síðast þegar liðið heimsótti Leeds varð dramatík þegar Jason Wilcox, knattspyrnustjóri Manchester United, var gagnrýndur af þáverandi þjálfara Manchester United, Ruben Amorim. Nú er aftur verið að gagnrýna Wilcox en varnarmaðurinn Lisandro Martinez gagnrýndi aðgerðaleysi stjórnar félagsins eftir að félagið tapaði fyrir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni.

Enski boltinn
Fréttamynd

Fyrir­liði Chelsea undir hnífinn

Reece James, fyrir­liði enska úr­vals­deildar­félagsins Chelsea, hefur gengist undir minni­háttar að­gerð á hné sökum meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu með liði sínu.

Enski boltinn
Fréttamynd

Slátrarinn baðst af­sökunar en fær sekt

Lisandro Martínez fundaði með stjórnendum Manchester United og þjálfaranum Michael Carrick í dag og bað þá afsökunar á ummælum sínum eftir tapið gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í fyrrakvöld.

Enski boltinn
Fréttamynd

Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn

Louis Van Gaal var þjálfari Manchester United á árunum 2014-2016 en var látinn fara eftir að gengi liðsins var ekki nægilega gott. Hann segir svindl Manchester City hafa leitt til þess að hann hafi ekki náð Meistaradeildarsæti með Manchester United sem er ástæðan fyrir því að hann var rekinn frá félaginu á sínum tíma.

Enski boltinn
Fréttamynd

Mamdani skaut á Man City

Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, segir Manchester City ekki eiga heima í ensku úrvalsdeildinni. Hann skaut á félagið á viðburði vestanhafs í gær.

Enski boltinn