
Golf

Masters hefst í kvöld: Allra augu á Rory McIlroy
Fyrsta risamót ársins, Masters, hefst á Augusta golfvellinum í kvöld. Biðinni er loksins lokið. Það verður klárlega hart barist um græna jakkann í ár.

McIlroy segist aldrei hafa verið í jafn góðum gír fyrir Masters
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy segist aldrei hafa verið í jafn góðum gír fyrir Masters og núna.

„Ég get algjörlega unnið Masters-mótið“
Xander Schauffele segist klár í slaginn fyrir komandi Masters-mót í golfi sem fram fer um helgina. Eftir frábært síðasta ár hefur hann átt í meiðslavandræðum á nýju ári.

Skítaveður og æfingum frestað á Augusta
Æfingum kylfinga fyrir komandi Masters-mót á Augusta National-vellinum í Georgíu-fylki hefur verið frestað vegna þrumuveðurs. Búast má við slæmu veðri í allan dag.

Vann fyrsta mótið eftir að hafa losnað úr fangelsi
Argentínski kylfingurinn Ángel Cabrera vann mót á vegum PGA um helgina. Það var hans fyrsti sigur eftir að hann losnaði úr fangelsi.

„Hugsaði að þetta myndi fá mig til að halda kjafti“
Íþróttamenn sýna oft á tíðum tilfinningar sínar á vellinum, bæði þegar vel og illa gengur. Golfarinn Ryan McCormick er þar engin undantekning en hann hefur nú gripið til örþrifaráða til að halda sjálfum sér réttu megin við línuna.

Tiger hringdi í Trump til að segja honum frá sambandinu
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnar nýju ástarsambandi Tiger Woods og Vanessu Trump. Vanessa er fyrrum tengdadóttir Trumps.

McIlroy meiddur í aðdraganda Masters
Norður-Írinn Rory McIlroy glímir við meiðsli eftir mót helgarinnar þegar styttist í fyrsta risamót ársins. Tæpar tvær vikur eru í Masters-mótið á Augusta.

McIlroy annar til að þéna hundrað milljónir á PGA-mótaröðinni
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlory er annar kylfingurinn sem þénar hundrað milljónir Bandaríkjadala á PGA-mótaröðinni í golfi.

Gunnlaugur Árni í hóp fjörutíu bestu í heimi
Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að gera það gott og er nú kominn upp í 38. sæti heimslista áhugamanna sem er langbesta staða sem Íslendingur hefur náð á þeim lista.

Tiger og Trump staðfesta sambandið
Tiger Woods hefur staðfest að hann sé í sambandi með fyrrum tengdadóttur Donalds Trump, Vanessu.

Gunnlaugur Árni fagnaði og fer í hóp fimmtíu bestu
Gunnlaugur Árni Sveinsson fagnaði sigri með liði sínu LSU og hafnaði sjálfur í 3. sæti í einstaklingskeppninni á afar sterku móti í bandaríska háskólagolfinu í gær.

McIlroy vann einvígið en Spaun fór í vatnið
Norður-Írinn Rory McIlroy hélt upp á St. Patricks Day, eða dag heilags Patreks, með ógleymanlegum hætti í dag. Hann vann nefnilega JJ Spaun af miklu öryggi í þriggja holna framlengingu á Players meistaramótinu.

Players endar í einvígi: „Halda allir að hann vinni“
Úrslitin á Players meistaramótinu, sem stundum er kallað fimmta risamótið í golfi, ráðast í þriggja holu framlengingu í dag og þar eigast við tveir kylfingar með afar ólíka ferilskrá.

Spaun með naumt forskot á Players en McIlroy á enn möguleika
Bandaríski kylfingurinn JJ Spaun er með eins höggs forskot fyrir lokahringinn á Players meistaramótinu sem margir kalla fimmta risamótið en mótið fer fram á Sawgrass golfvellinum í Flórída.

Justin Thomas jafnaði vallarmetið á öðrum degi Players
Bandaríski kylfingurinn Justin Thomas lék á 62 höggum á öðrum degi Players meistaramótsins sem fer fram i Flórída þessa dagana.

Gjammandi áhorfandinn biður McIlroy afsökunar
Áhorfandinn sem kallaði í átt að Rory McIlroy á TBC Sawgrass vellinum í Flórída hefur beðist afsökunar á framferði sínu.

McIlroy tók síma af gjammandi áhorfanda
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy tók síma af áhorfanda sem lét full mikið í sér heyra á æfingahring fyrir Players meistaramótið sem hefst í dag.

Tiger Woods sleit hásin
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods sagði frá því í kvöld að hann hafi slitið hásin á æfingu á dögunum.

Tiger syrgir móður sína og sleppir Players
Nú er orðið ljóst að Tiger Woods verður ekki á meðal keppenda á Players meistaramótinu sem hefst næsta fimmtudag á TPC Sawgrass vellinum. Hann hefur undanfarið syrgt móður sína sem lést í síðasta mánuði.

Enn að jafna sig á fráfalli móður sinnar og óviss hvort hann keppir á Players
Tiger Woods er óviss hvort hann keppir á Players meistaramótinu sem hefst í næstu viku. Hann er enn að jafna sig á fráfalli móður sinnar.

Ryder Cup snýr aftur á Stöð 2 Sport
Sýn hf. og European Tour Productions hafa undirritað samning um að Stöð 2 Sport verði heimili DP World Tour næstu árin.

Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska
Ástralinn Ryan Peake tryggði sér sæti á Opna breska meistaramótinu í golfi með því að vinna Opna nýsjálenska meistaramótið. Hann sat í fangelsi á sínum yngri árum.

Fór tvisvar sinnum holu í höggi á sama hringnum
Enski kylfingurinn Dale Whitnell fór tvisvar sinnum holu í höggi á sama hringnum á Investec South African Open Championship í dag.

Hlógu að Tiger: Eitt það vandræðalegasta á ferlinum
Hlutirnir gengu ekki alveg nógu vel hjá Tiger Woods í nýju golfhermisdeildinni hans í nótt. Liðsfélagar hans í Jupiter Links gátu ekki bjargað honum því þeir áttuðu sig of seint að eitthvað var að.

Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti
Bandaríski atvinnukylfingurinn Tiger Woods hefur hætt við að taka þátt í golfmótinu á Torrey Pines en þetta mót hans er hluti af PGA mótaröðinni.

Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina
Tiger Woods, einn besti kylfingur sögunnar, ætlar sér að snúa aftur á PGA-mótaröðina í golfi þegar Genesis Invitational mótið fer fram um næstu helgi.

Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV
Opna bandaríska risamótið í golfi mun taka inn kylfinga af LIV mótaröðinni þegar mótið fer fram í ár.

Tiger syrgir móður sína
Tiger Woods, einn besti kylfingur allra tíma, greindi frá því í gær að móðir hans hefði fallið frá. Í hjartnæmri færslu á samfélagsmiðlum segir Tiger að móðir sín hafi verið sinn stærsti aðdáandi og mesti stuðningsmaður.

Gunnlaugur í besta sæti Íslendings
Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að rita nýja kafla í íslenska golfsögu, etir að hafa fyrstur íslenskra kylfinga verið valinn í úrvalslið Evrópu fyrir Bonallack-bikarinn sem fram fór í þessum mánuði.