Enski boltinn

Porto samþykkir tilboð Arsenal í Vieira
Porto hefur samþykkt 34 milljón punda tilboð Arsenal í Fabio Vieira, 22 ára miðjumann félagsins.

Sadio Mané nálgast Bayern München
Knattspyrnumaðurinn Sadio Mané er við það að innsigla félagsskipti frá Liverpool til Bayern München, en þýsku meistararnir undirbúa nú betrumbætt tilboð í Senegalann.

Man City mætir West Ham í fyrstu umferð og Liverpool heimsækir Fulham
Leikjaniðurröðun ensku úrvalsdeildarinnar er klár. Englandsmeistarar Manchester City heimsækja West Ham United í fyrstu umferð á meðan Liverpool heimsækir nýliða Fulham.

Hlutabréf Man Utd aldrei lægri: Eigendurnir greiða sér samt arð
Segja má að Manchester United hafi náð því sem virðist vera botninn með frammistöðu sinni innan vallar sem utan á liðnu tímabili. Það er allavega staðreyndin ef horft er á hvers virði félagsins er fjárhagslega.

Liverpool staðfestir komu Núñez | Gæti orðið sá dýrasti í sögu félagsins
Darwin Núñez er orðinn leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool. Félagið greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum fyrr í kvöld.

Tottenham að fá eftirsóttan miðjumann frá Brighton
Enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur hefur samþykkt að greiða Brighton & Hove Albion 30 milljónir punda fyrir miðjumanninn Yves Bissouma.

Hinn íslensk-ættaði Tomasson tekur við Blackburn
Hinn 45 ára gamli Jon Dahl Tomasson hefur tekið við þjálfun Blackburn Rovers í ensku B-deildinni. Tomasson gerði Malmö FF í Svíþjóð að meisturum tvö ár í röð áður en hann sagði óvænt upp í desember á síðasta ári.

Man. Utd gerði Eriksen tilboð
Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur gert Dananum Christian Eriksen tilboð í von um að fá þennan þrítuga miðjumann frítt til félagsins í sumar.

Mál Greenwood enn til rannsóknar
Fyrir skemmstu fór á flug sá orðrómur á samfélagsmiðlinum Twitter að Mason Greenwood væri laus allra mála og gæti mögulega snúið aftur í leikmannahóp Manchester United á næstu leiktíð. Sá orðrómar reyndust ekki á rökum reistur.

Engir stórleikir á Englandi í aðdraganda HM
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, hefur ásamt enska knattspyrnusambandinu beðið ensku úrvalsdeildina að stilla ekki upp neinum stórleik í aðdraganda heimsmeistaramótsins í Katar.

Southgate segir að Rashford og Sancho þurfi að sanna sig fyrir HM
Gareth Southgate, landsliðseinvaldur Englands, hefur varað Marcus Rashford og Jadon Sancho, leikmenn Manchester United, við. Þurfa þeir að sýna og sanna sig ætli þeir með enska landsliðinu á HM í Katar undir lok árs.

Benfica staðfestir að Núñez sé á leið til Liverpool
Portúgalska knattspyrnuliðið Benfica hefur nú staðfest að úrúgvæski framherjinn Darwin Núñez sé á leið til Liverpool. Mun enska félagið greiða 64 milljónir punda fyrir leikmanninn en kaupverðið gæti á endanum numið 85 milljónum punda.

Spáir því að Man City sé að fá tvær stórstjörnur
Emi Martinez, markvörður Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta sem og Argentínu, hefur mikla trú á samlanda sínum Julián Alvarez. Sá mun ganga í raðir Englandsmeistara Manchester City.

Fullyrðir að Liverpool hafi náð samkomulagi við Nunez
Félagsskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano fullyrðir að Liverpool hafi náð samkomulagi við úrúgvæska framherjann Darwin Nunez.

Segja að Barcelona hafi hafnað tilboði United í De Jong
Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United hafa átt í samtali við Barcelona um möguleg kaup félagsins á miðjumanninum Frenkie de Jong.

Gylfi Þór ekki lengur leikmaður Everton
Samningur Gylfa Þórs Sigurðssonar við enska knattspyrnufélagið Everton er runninn út. Hann hefur ekki spilað fyrir liðið síðan á þar síðustu leiktíð en leikmaðurinn var handtekinn síðasta sumar vegna meints brots gegn ólögráða stúlku.

Stefndu á að þrefalda áhorfið en tókst að fjórfalda það á einu ári
Áhorf á úrvalsdeild kvenna í fótbolta á Englandi fjórfaldaðist á tímabilinu sem var að líða. Er deildin gerði nýjan sjónvarpssamning á síðasta ári var stefnt að því að þrefalda áhorf en það virðist ganga framar vonum.

Chelsea fær Evrópumeistara
Kadeisha Buchanan hefur skrifað undir þriggja ára samning við Englandsmeistara Chelsea. Hún kemur frá Frakklands- og Evrópumeisturum Lyon.

Salah og Kerr best | Son ekki í liði ársins
Leikmannasamtök Englands, PFA, völdu Mohamed Salah, leikmann Liverpool, og Sam Kerr, leikmann Chelsea, sem bestu leikmenn tímabilsins 2021/2022 á Englandi. Manchester City átti bestu ungu leikmennina og þá vakti athygli að Son Heung-Min var ekki í liði ársins.

Chelsea búið að sækja fyrsta leikmanninn eftir breytingu á eignarhaldi félagsins
Ève Périsset varð fyrsti leikmaðurinn til að semja við Chelsea eftir að salan á félaginu gekk í gegn. Kemur hún á frjálsri sölu frá Bordeaux í Frakklandi.

Segja Man Utd búið að bjóða í De Jong
Spænski fjölmiðillinn Marca fullyrðir að Manchester United sé búið að bjóða í Frenkie de Jong, hollenskan miðjumann Barcelona. Talið er að tilboðið hljómi upp á 80 milljónir evra ef allar bónusgreiðslur eru teknar með.

Van Gaal varar leikmann Ajax við því að fara til Man Utd
Louis van Gaal, þjálfari hollenska landsliðsins og fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United hefur varað Jurrien Timber, leikman Ajax, við því að fara til enska liðsins.

Cancelo bjargaði einhverfu barni
Portúgalski bakvörðurinn í liði Manchester City, Joao Cancelo, bjargaði 10 ára einhverfum strák frá því verða undir hóp stuðningsmanna á Etihad vellinum.

Í fjögurra ára bann fyrir höggið eftir sigur City
Stuðningsmaður Manchester City, sem fagnaði Englandsmeistaratitlinum í maí með því að veitast að Robin Olsen, markverði Aston Villa, var sektaður og úrskurðaður í fjögurra ára bann frá fótboltaleikjum.

Meistararnir með augastað á Bukayo Saka
Orðrómar þess efnis að Englandsmeistarar Manchester City ætli sér að festa kaup á enska vængmanninum Bukayo Saka verða hærri og hærri með hverjum deginum.

Kynþáttahatrið sé nú enn eitt atriðið sem þurfi að komast yfir
Gareth Southgate, þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta, segir að kynþáttahatur í garð hörunddökkra leikmanna liðsins eftir tapið í vítaspyrnukeppni fyrir Ítalíu í úrslitum Evrópumótsins síðasta sumar gæti haft áhrif á val á spyrnumönnum.

Southampton og Man United í sérflokki þegar kom að því að spila táningum
Á síðustu leiktíð var Southampton eina félag ensku úrvalsdeildarinnar sem spilaði leikmönnum yngri en tvítugt í samtals meira en 2000 mínútur. Á sama tíma fengu engir leikmenn undir tvítugt tækifæri hjá Chelsea, Burnley, Leicester City og Newcastle United.

Áhorfendamet slegið í ensku úrvalsdeildinni
73 ára gamalt áhorfendamet var slegið á tímabilinu sem leið á Englandi en aldrei hafa jafn margir mætt á vellina þar í landi.

Man City og Liverpool berjast um miðjumann Leeds
Það virðist sem tvö bestu lið Englands séu á höttunum á eftir enska landsliðsmanninum Kalvin Phillips sem leikur með Leeds United.

Völlurinn í tætlum eftir innbrot
Plymouth Argyle lenti í miður skemmtilegu atviki um helgina en brotist var inn á leikvang þess og gras vallarins tætt sundur og saman.