
Enski boltinn

Rauðu djöflarnir á fljúgandi siglingu og skoruðu fimm gegn Bournemouth
Manchester United sigraði Bournemouth 5-2 í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu. Heldur betur fjör á Old Trafford.

Brighton með níu fingur á áframhaldandi sæti í úrvalsdeildinni
Brighton sigraði Norwich í ensku úrvalsdeildinni núna í hádeginu og með sigrinum eru þeir nánast öruggir um áframhaldandi veru í ensku úrvalsdeildinni.

City þarf ekki að leita langt eftir arftaka Sane
Manchester City seldi Leroy Sane á dögunum til stórveldisins Bayern Munchen í Þýskalandi. Einhverjir hafa eflaust velt fyrir sér hvort City muni kaupa einhvern til að fylla skarð hans, en nú beinist athyglin að hinum unga Jayden Braaf sem leikur með unglingaliði City.

Meistaradeildarbaráttan: Hverjir eiga erfiðustu leikina eftir?
Baráttan í ensku úrvalsdeildinni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð gæti ekki verið meira spennandi. Einungis þrjú stig skilja að Leicester sem eru í þriðja sæti og Wolves sem eru í því sjötta.

Manchester United væri á toppnum hefði tímabilið byrjað þegar Fernandes var keyptur | Arsenal í þriðja sæti
Planet Football birtir stöðutöfluna í ensku úrvalsdeildinni ef einungis eru tekin með stig frá því Bruno spilaði sinn fyrsta leik fyrir United. Þá væru Rauðu djöflarnir efstir á markatölu en Úlfarnir í öðru sæti með jafnmörg stig, eða 18 stig.

Frétt um meiðsli Pogba og Bruno mögulega byggð á sandi
Í gær birtist frétt víða um netheima þar sem greint var frá því að Paul Pogba og Bruno Fernandes hefðu meiðst á æfingu, þar á meðal hér á Vísi. Mögulegt er að fréttin hafi verið byggð á falsfrétt.

„Munum ekki gefa úrvalsdeildarleiki eins og jólagjafir“
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að hann muni ekki gefa ungum leikmönnum úrvalsdeildarleiki eins og „jólagjafir“ þrátt fyrir að liðið hafi þegar tryggt sér meistaratitilinn.

Jón Daði ekki í hóp þegar Millwall lagði Charlton
Millwall sigraði Charlton í eina leik kvöldsins í ensku 1. deildinni. Jón Daði var ekki í leikmannahóp Millwall sem með sigrinum færðust nær umspilssæti.

Pogba og Bruno báðir meiddir eftir samstuð á æfingu
Paul Pogba og Bruno Fernandes eru sagðir báðir hafa farið haltrandi af æfingu eftir að sá fyrrnefndi hljóp á þann síðarnefnda. Það væru skelfileg tíðindi fyrir Manchester United ef báðir þessir leikmenn verða lengi frá en þeir hafa spilað vel saman á miðjunni undanfarið.

Pogba áfram hjá Manchester United næstu árin?
Paul Pogba er sagður ánægður á Old Trafford samkvæmt heimildum ESPN. Franski heimsmeistarinn hefur stöðugt verið orðaður frá Rauðu djöflunum síðan hann sagðist vilja nýja áskorun í júní 2019. United getur framlengt samning Pogba til ársins 2022 en eru sagðir eiga eftir að gera upp við sig hvort þeir vilji halda honum.

Jóhann Berg gæti leikið fyrsta deildarleikinn frá því á nýársdag
Eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í rúmlega hálft ár gæti Jóhann Berg Guðmundsson snúið aftur í lið Burnley um helgina.

Thiago fer líklega til Liverpool
Eftir sjö ár hjá Bayern München er Thiago Alcantara tilbúinn að færa sig um set. Liverpool hefur áhuga á spænska landsliðsmanninum.

Trent rifjar upp samtalið við Klopp sem fékk mömmu hans til að gráta
Trent Alexander-Arnold, varnarmaður Liverpool, segir að hann hafi verið í áfalli er Jurgen Klopp sagði við hann þremur klukkutímum fyrir leik gegn Manchester United í janúarmánuði 2017 að hann væri í byrjunarliðinu.

Segir að markið sem tekið var af Tottenham sé ein versta ákvörðun sem hann hefur séð
Ekkert var meira rætt eftir 3-1 sigur Sheffield United á Tottenham í gærkvöldi heldur en markið sem VAR dæmdi af Tottenham í síðari hálfleik.

„Liverpool hefur drukkið marga bjóra í síðustu viku en voru með ekkert áfengi í blóðinu í gær“
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að nýkrýndir enskir meistarar í Liverpool hafi drukkið nóg af bjór um síðustu helgi en það hafi ekkert áfengi verið í blóði þeirra í leik liðanna í gær.

Klopp var ánægður með framlag leikmanna en setti spurningarmerki við blaðamanninn
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, virtist nokkuð uppstökkur í viðtali við Sky Sports eftir útreið Englandsmeistaranna gegn Manchester City á útivelli í gær.

Willian sá fyrsti í úrvalsdeildinni til að skora mark í hverjum einasta mánuði ársins
Brasilíumaðurinn Willian, leikmaður Chelsea, varð fyrsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi til að skora mark í hverjum einasta mánuði ársins þegar hann skoraði tvö mörk í leik Chelsea og West Ham á miðvikudagskvöldið.

Manchester City valtaði yfir Englandsmeistaranna
Manchester City rúllaði yfir nýkrýnda Englandsmeistara Liverpool í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Manchester City stóð heiðursvörð fyrir Liverpool
Leikmenn og þjálfarar Manchester City stóðu heiðursvörð í kringum leikmenn Liverpool þegar þeir löbbuðu inn á völlinn fyrir leik liðanna sem hófst kl. 19:15 í kvöld. Það fór varla framhjá neinum að Liverpool varð Englandsmeistari í fyrsta skipti í 30 ár síðasta fimmtudag, eftir tap City gegn Chelsea.

Jöfnunarmark tekið af Kane þegar Sheffield skellti Tottenham
Sheffield United sigraði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag með þremur mörkum gegn einu. Með sigrinum er Sheffield komið upp í 7. sæti deildarinnar en lærisveinar Mourinho sitja eftir í því níunda.

Segir að Tottenham hefði unnið Liverpool í Madríd með Dembele innanborðs
Kieran Trippier, fyrrum varnarmaður Tottenham og nú leikmaður Atletico Madrid, segir að félagið hefði unnið Meistaradeildina á síðustu leiktíð hefðu þeir haldið Mousa Dembele.

Segir Alonso vera ástæðu þess að Chelsea tapaði
Vinstri bakvörður Chelsea átti skelfilegan leik í gær og kennir Gary Neville honum um óvænt 3-2 tap liðsins gegn West Ham United.

Aftur fékk Gylfi lof fyrir frammistöðu sína
Gylfi Þór Sigurðsson hefur spilað vel í liði Everton eftir kórónuveiruna og hann fékk aftur hrós fyrir sína spilamennsku í gær.

Innkastþjálfari Liverpool rifjar upp þegar Klopp hringdi í hann
Thomas Grönnemark er frá Danmörku. Hann sérhæfir sig í að þjálfa knattspyrnulið og -fólk í að æfa sig að taka innköst og hefur m.a. starfað hjá Liverpool.

Brendan Rodgers enn vongóður um að ná Meistaradeildarsæti
Brendan Rodgers og lærisveinar í Leicester hafa verið í frjálsu falli síðan um áramót eftir frábæra byrjun á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni.

West Ham með lífsnauðsynlegan sigur
West Ham United tók á móti Chelsea í bráðskemmtilegum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag. West Ham hafði á endanum betur, 3-2, en sigurinn var lífsnauðsynlegur í fallbaráttunni þar sem Hamrarnir höfðu fyrir leikinn tapað þremur leikjum í röð.

Þriðji sigurleikur Arsenal í röð þegar liðið fór illa með Norwich
Arsenal átti ekki í vandræðum með botnlið Norwich í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 4-0 á Emirates-vellinum. Arsenal skaust upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigrinum í kvöld.

Gylfi skoraði sitt fyrsta mark í rúma átta mánuði í góðum sigri Everton
Gylfi lék allan leikinn og skoraði sitt fyrsta mark í rúma átta mánuði er Everton sigraði Leicester í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu, lokatölur 2-1.

Murphy baðst afsökunar á ummælum sínum um Liverpool
Danny Murphy, fyrrverandi leikmaður Liverpool og nú spekingur, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um heiðursvörðinn í enska boltanum.

Michael Edwards: Maðurinn á bakvið velgengni Liverpool sem enginn veit hver er
Michael Edwards er nafn sem fáir kannast við nema mögulega hörðustu stuðningsmenn Liverpool.