
Enski boltinn

„Klikkuðum á grunnatriðinum“
„Við vorum ekki líkir sjálfum okkur í fyrri hálfleik. Við vorum mikið betri í seinni hálfleik þangað til þriðja markið sló okkur niður,“ sagði Eddie Howe eftir 4-1 tap sinna manna í Newcastle United gegn Arsenal á Emirates-vellinum í Lundúnum í ensku úrvalsdeildinni.

„Leikmenn mínir eru ofurmenni“
Pep Guardiola gat ekki annað en hrósað leikmönnum sínum eftir nauman 1-0 útisigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Skytturnar halda í við toppliðin tvö
Arsenal lagði Newcastle United 4-1 í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Meistararnir minnkuðu forskot Liverpool niður í aðeins eitt stig
Englandsmeistarar Manchester City unnu 1-0 útisigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sigurinn þýðir að forskot Liverpool á toppi deildarinnar er nú aðeins eitt stig.

Ten Hag sagði ein mistök hafa kostað Man Utd leikinn
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, sagði ein mistök hafa kostað sína menn leikinn gegn Fulham í dag er liðin mættust á Old Trafford. Gestirnir skoruðu sigurmarkið þegar lítið var eftir af annars löngum uppbótartíma en fyrir leik dagsins hafði Man Utd verið á fínu skriði í deildinni.

Markaveisla á Villa Park og Brighton bjargaði stigi í uppbótartíma
Þremur leikjum lauk rétt í þessu í ensku úrvalsdeildinni. Aston Villa vann öruggan sigur, líkt og Crystal Palace, á meðan Brighton rétt bjargaði stigi gegn Everton.

Lánlaust Man United mátti þola tap á heimavelli
Manchester United hafði unnið fimm leiki í röð í ensku úrvalsdeildinni en var hvorki fugl né fiskur er liðið tapaði 1-2 fyrir Fulham á Old Trafford í dag. Líkt og áður á leiktíðinni er Man Utd án fjölda leikmanna en það afsakar ekki hörmulega frammistöðu liðsins í dag.

Búið að bjóða Moyes samning en hann er óákveðinn um framtíðina
West Ham hefur boðið David Moyes framlengdan samning hjá félaginu en sjálfur vill hann bíða með allar ákvarðanir til enda tímabilsins.

Hinn nítján ára Forson gæti byrjað í fjarveru Højlund
Meiðslavandræði Manchester United ætla engan endi að taka en í gær, föstudag, var staðfest að danski framherjinn Rasmus Højlund verði frá næstu tvær til þrjár vikurnar. Í fjarveru Danans gæti hinn 19 ára gamli Omari Forson byrjað sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni.

Varamennirnir tryggðu Leeds sigur í toppslagnum
Leeds United gerði sér lítið fyrir og lagði Leicester City í uppgjöri toppliða ensku B-deildarinnar. Bæði lið ætla sér beint aftur upp í ensku úrvalsdeildina.

Dæmdur í árs fangelsi fyrir að höfuðkúpubrjóta mann
Ilias Chair, landsliðsmaður Marokkó og leikmaður QPR í ensku B-deildinni, hefur verið dæmdur í árs fangelsi af dómstól í Belgíu fyrir stórfellda líkamsárás. Höfuðkúpubraut hann mann með grjóti.

Segir Eið ef til vill þann fyrsta til að spila 8,5 stöðuna á Englandi
Eiður Smári Guðjohnsen gæti hafa rutt brautina fyrir leikmenn sem eru að spila „nýja“ stöðu í toppliðunum á Englandi.

Höjlund frá keppni í nokkrar vikur
Rasmus Höjlund hefur raðað inn mörkum í síðustu leikjum Manchester United en hann skorar ekki mörk á næstunni.

Nú geturðu fengið Haaland ís í Noregi
Erling Haaland, framherji Manchester City og norska landsliðsins, hefur haslað sér völl á nýjum vettvangi, nefnilega í ísbransanum.

Horfir á eigin klúður áður en hann fer að sofa
Nicolas Jackson, framherji Chelsea, er með nokkuð sérstaka rútínu fyrir svefninn. Hann horfir nefnilega á eigin klúður áður en hann leggst til hvílu.

Ferguson rifbeinsbrotnaði í fagnaðarlátum
Þrátt fyrir að vera löngu hættur að þjálfa heldur Sir Alex Ferguson áfram að fagna sigrum. Það er þó ekki alltaf sársaukalaust.

Segir að Ferdinand sé Van Dijk fátæka mannsins
Jamie Carragher skaut hressilega á fyrrverandi samherja sinn í enska landsliðinu, Rio Ferdinand, í fyrradag.

Þjálfarinn sá fjórtán ára Rooney á leið á skrallið með áfengi og sígarettur
Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United og um tíma markahæsti leikmaður enska landsliðsins, fór yfir víðan völl í viðtalsþættinum Stick to Football á dögunum.

Búinn að missa af tvö hundruð leikjum með Man. United
Manchester United óttast það að tímabili sé búið hjá enska varnarmanninum Luke Shaw.

Ratcliffe: „Ekki viss um að Sjeikinn sé til“
Sir Jim Ratcliffe grínaðist með að hann væri ekki viss um að Sjeik Jassim Bin Hamad Al Thani, sem keppti við hann um kaup á hlut í Manchester United, sé til í raun og veru.

„Völlurinn og liðið breyttu leiknum í sameiningu“
Jurgen Klopp var gríðarlega ánægður eftir sigur Liverpool á Luton Town í kvöld en toppliðið var 1-0 undir í hálfleik. Hann sagði liðið ekki vera sigurstranglegra fyrir úrslitaleik deildabikarsins gegn Chelsea á sunnudag.

Frábær síðari hálfleikur dugði Liverpool
Liverpool er með fjögurra stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 4-1 sigur á Luton Town á heimavelli í kvöld. Toppliðið var undir í hálfleik en frábær síðari hálfleikur tryggði þeim stigin þrjú.

Ætlar að henda Manchester City og Liverpool af stallinum
Jim Ratcliffe er formlega orðinn einn af eigendum Manchester United eftir að kaup hans á 27,7% hlut í félaginu voru samþykkt. Hann mun sjá um daglegan rekstur á öllu knattspyrnutengdu í félaginu og ætlar sér að skáka Manchester City og Liverpool.

Klopp um meiðslavandræðin: Vorkennum okkur ekki en vandamálin eru til staðar
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, sagðist ekki byrjaður að hugsa um úrslitaleik deildarbikarsins næsta sunnudag. Luton Town væri verðugur andstæðingur sem krefðist fullrar athygli.

Liverpool fólk svitnar: Xabi Alonso efstur á óskalista Bayern
Liverpool fær væntanlega mikla samkeppni um Xabi Alonso ef marka má nýjustu fréttir frá Bæjaralandi.

Núnez bara einu skoti frá stöngin-út metinu
Liverpool framherjinn Darwin Núnez skoraði frábært mark fyrir Liverpool um síðustu helgi og verður aftur í sviðsljósinu í kvöld. Það hefur þó ekki alltaf verið raunin að hann nýti dauðafærin sín.

Stuðningsmenn Newcastle verða fastir í Lundúnum á laugardag
Arsenal tekur á móti Newcastle í Lundúnum næsta laugardag. Leikurinn átti að hefjast klukkan 15.00 en var færður til 20.00, sem er óvenjulegur leiktími á laugardagskvöldi, svo leyfilegt sé að sýna hann í sjónvarpi.

„Ég er þjálfari, lífið mitt er betra en þitt“
Pep Guardiola spjallaði við blaðamenn eftir 1-0 sigur gegn Brentford í gærkvöldi. Þar fór hann yfir leikinn, stöðuna á lykilmönnum liðsins og grínaðist með að líf sitt væri betra en blaðamanns.

Fullgengið frá kaupum Ratcliffe
Sir Jim Ratcliffe hefur lokið kaupferli á 27,7 prósent eignarhlut í Manchester United.

Þolinmæðisverk hjá meisturunum
Englandsmeistarar Manchester City unnu mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Brentford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.