

Lokaundirbúningur fyrir útför Frans páfa mun fara fram í Páfagarði í dag. Almenningur hefur til klukkan 20 í dag, að staðartíma, til að kveðja páfann í Péturskirkjunni. Útförin er svo á morgun. Fjöldi erlendra ráðamanna ferðast í dag og á morgun til að vera viðstaddir útförina.
Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna er sagður hafa notast við nettengingu sem gerði honum kleift að nota samskiptaforritið Signal á einkatölvu hans í ráðuneytinu, í trássi við öryggisstaðla Pentagon.
Ísraelsher viðurkennir að hafa drepið starfsmann Sameinuðu þjóðanna í skriðdrekaárás á Gasa í mars. Herinn hafði áður neitað sök.
Nemandinn sem grunaður er um að hafa stungið skólasystur sína til bana í Nantes í Frakklandi í dag er sagður hafa lýst yfir dýrkun á hugmyndum Adolfs Hitler. Hann sendi samnemendum sínum tölvupóst skömmu fyrir árásina þar sem hann segir hnattvæðingu spilla mannkyninu.
Giovanni Angelo Becciu kardínáli sem hefur verið sakfelldur fyrir fjárdrátt vill meina að hann eigi atkvæðisrétt í komandi páfakjöri.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist mjög óánægður með loftárásir Rússa á Kænugarð í nótt og biður Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að hætta árásunum.
Nemandi er látinn eftir stunguárás í skóla í borginni Nantes í Frakklandi. Ársármaðurinn er sagður vera fimmtán ára gamall, en hann mun hafa verið yfirbugaður af kennurum eftir að hafa stungið að minnsta kosti fjóra táninga.
Indversk stjórnvöld hafa afturkallað gildi allra vegabréfsáritana pakistanskra ríkisborgara í kjölfar árásar í Kasmír-héraði í Indlandi á þriðjudag þar sem 26 létu lífið. Pakistan neitar aðild að árásinni og hefur svarað aðgerðum Indlands í sömu mynt.
Sífellt fleiri íbúar á Gasa lýsa yfir andstöðu sinni gegn yfirráðum Hamas samtakanna sem hafa ráðið ríkjum á svæðinu í tæp tuttugu ár. Fjölmenn mótmæli gegn Hamas voru haldin víða um Gasa í mars.
Níu eru látnir og rúmlega sjötíu særðir eftir stórfellda eldflaugaárás á Kænugarð sem Rússar gerðu í nótt. Volodomír Selenskí Úkraínuforseti hefur aflýst fundum sem voru á dagskrá hjá honum í Suður-Afríku og ætlar að halda heim á leið.
Allt að tólf ára fangelsisdómur vofir yfir sænskum blaðamanni ef hann verður sakfelldur fyrir að móðga Recep Erdogan, forseta Tyrklands, og hryðjuverkabrot. Blaðamaðurinn var handtekinn í lok mars þegar hann ætlaði að fjalla um mótmæli gegn forsetanum.
Úkraínumenn segjast ekki ætla að ræða það að gefa landsvæði eftir fyrir frið fyrr en eftir að búið verði að koma á almennu vopnahléi. Þetta gerðu úkraínskir erindrekar Bandaríkjamönnum ljóst í gær og leiddi það til þess að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Steve Witkoff, sérstakur erindreki Donalds Trump, hættu við að mæta á viðræðufund í Lundúnum í dag.
Fjarreikistjarna sem er að gufa upp og skilur eftir sig hala utan um móðurstjörnu sína er sögð gefa vísindamönnum einstakt tækifæri til þess að rannsaka efnasamsetningu bergreikistjarna. Aðeins örfáar deyjandi reikistjörnur af þessu tagi hafa fundist til þessa.
Valdimír Pútín, forseti Rússlands, segir að auka þurfi hergagnaframleiðslu ríkisins enn frekar og undirbúa Rússlandi fyrir frekari stríð í framtíðinni. Hergagnaframleiðsla í Rússlandi rúmlega tvöfaldaðist á síðasta ári en Pútín segir það ekki duga til, því framtíðin nálgist óðfluga.
Langflest kóralrif jarðar verða nú fyrir skaðlegri fölnun vegna hitabylgju í höfunum. Fölnunaratburðurinn er sá umfangsmesti í mælingasögunni en ekki sér enn fyrir endann á honum.
Mikið hefur gustað um Pete Hegseth, fyrrverandi sjónvarpsmann og varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, undanfarið. Mikil óreiða er sögð hafa ríkt innan veggja ráðuneytisins, sem gengur iðulega undir nafninu Pentagon, og vantraust hefur aukist milli borgaralegra starfsmanna ráðuneytisins og hermanna sem starfa þar.
Brotthvarf framleiðanda bandaríska fréttaskýringarþáttarins 60 mínútna í vikunni kom í kjölfar þess að eigandi Paramount, móðurfélags CBS-sjónvarpsstöðvarinnar, hnýsaðist um umfjöllun þáttarins um Bandaríkjaforseta. Framleiðandinn sagðist ekki lengur hafa ritstjórnarlegt sjálfstæði í kveðjubréfi til samstarfsmanna sinna.
Rúmlega sjö milljónir kanadískra kjósenda hafa nú kosið utan kjörfundar en þingkosningar fara fram í landinu næstkomandi mánudag. Landskjörstjórn segir að aldrei hafi svo margir kosið utan kjörfundar í þingkosningum.
Friðarviðræðum sem halda átti í London vegna Úkraínustríðsins í dag var aflýst nú í morgunsárið.
Lík Frans páfa verður flutt í Péturskirkjuna í Vatíkaninu snemma í dag. Þar mun hann liggja í þrjá daga svo almenningur og trúariðkendur geti kvatt hann. Frans páfi lést á mánudag 88 ára gamall úr heilablóðfalli. Hann var páfi í tólf ár.
Mikil reiði er á meðal almennings á Indlandi eftir að byssumenn gerðu árás á hóp ferðamanna í Kasmír héraði og drápu tuttugu og sex hið minnsta.
Bill Owens, æðsti stjórnandi fréttaskýringaþáttarins vinsæla 60 Minutes eða 60 mínútur hefur sagt starfi sínu lausu og segir ástæðuna þá að hann hafi tapað sjálfstæði sínu í starfi. Stjórnendur CBS og móðurfélagsins Paramount hafi gert ljóst að hann muni ekki fá að stjórna þættinum með hag áhorfenda í huga lengur.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur stungið upp á því að hann muni stöðva innrás sína í Úkraínu og láta af kröfum sínum til afganga fjögurra héraða í Úkraínu, sem Rússar stjórna ekki að fullu. Þetta segist hann tilbúinn til að gera í skiptum fyrir viðurkenningu Bandaríkjanna á eignarrétti Rússa á Krímskaga, sem var innlimaður ólöglega árið 2014.
Eftir fráfall Frans páfa styttist nú óðfluga í að næsti páfi kaþólsku kirkjunnar er valinn. Það gera kardínálar fyrir luktum dyrum í Sixtínsku kapellunni í Páfagarði.
Lögreglan í Ísrael hefur sent líkamsleifar til rannsóknar eftir umfangsmikla leit að kafara sem virðist hafa orðið fyrir hákarlaárás undan ströndum Hadera í gær. Umræddur staður hefur verið vinsæll meðal kafara og sundmanna sem farið hafa þangað til að synda með hákörlum sem halda þar til.
Tuttugu og fjórir hið minnsta eru látnir eftir að hópur manna hóf skothríð í átt að ferðamönnum í Kasmír-héraði í Indlandi fyrr í dag.
Líklegt er að um sjötíu prósent eftirlifenda helfarar nasista á gyðingum deyi á næstu tíu árum. Sumir þeirra hafa áhyggjur af því hver muni halda minningu þeirra á lofti þegar enginn verður eftir til vitnis um einn svartasta blett mannkynssögunnar.
Stjórnendur Harvard-háskóla í Bandaríkjunum hafa stefnt alríkisstjórninni fyrir að hafa fryst fjárveitingar til skólans með ólögmætum hætti. Yfirmenn æðri menntastofnana í landinu gagnrýna harðlega „fordæmalaust ofríki og afskiptasemi“ stjórnvalda af háskólum.
Yfirmaður ísraelsku innanríkisleyniþjónustunnar segir að Benjamín Netanjahú forsætisráðherra hafi rekið sig fyrir að neita að njósna um mótmælendur og trufla réttarhöld í spillingarmáli hans. Netanjahú segir fullyrðingarnar „lygar“.
Sonja Noregsdrottning var lögð inn á spítala í Osló seint í gær vegna öndunarerfiðleika. Drottningin var útskrifuð af spítalanum í morgun og verður í veikindaleyfi út vikuna.