Erlent

Danskar F-35 lentu á Græn­landi í fyrsta sinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Dönsk F-35 Lightning herþota á Kangerlussuaq-flugvellinum í Grænlandi. Tvær slíkar flugvélar hafa að undanförnu verið gerðar út frá Íslandi til að vakta lofthelgi Grænlands.
Dönsk F-35 Lightning herþota á Kangerlussuaq-flugvellinum í Grænlandi. Tvær slíkar flugvélar hafa að undanförnu verið gerðar út frá Íslandi til að vakta lofthelgi Grænlands. Rune Dyrholm/Danski herinn

Dönskum herþotum af gerðinni F-35 var á miðvikudaginn lent á Grænlandi í fyrsta sinn. Þar tóku flugmenn þeirra þátt í æfingum með flugmönnum frá Bandaríkjunum á F-16 og Kanada á F-18. Flugvélarnar eru gerðar út frá Keflavík um þessar mundir.

Þegar F-35 þotunum var flogið frá Íslandi til Grænlands fengu þær eldsneyti úr franskri eldsneytisvél yfir Íslandi, samkvæmt frétt á vef danska varnarmálaráðuneytisins. Áhöfn eftirlitsflugvélar Atlantshafsbandalagsins fylgdist svo með flugferðinni en herþotunum var einnig fylgt eftir af danskri Challenger-eftirlitsflugvél.

Bandarísku og kanadísku þotunum var flogið til Grænlands frá Goose Bay í Kanada.

Hér má sjá nokkr af þotunum. Í forgrunni er Dönsk F-35 Lightning herþota og fyrir aftan hana má sjá kanadíska F/A-18 Superhornet. Tvær kanadískar F-18 voru notaðar á æfinguum og fjórar bandarískar F-16.Rune Dyrholm/Danski herinn

Þó þetta hafi verið í fyrsta sinn sem dönskum F-35 herþotum var lent á Grænlandi hafa Danir oft gert F-16 þotur út frá Grænlandi í gegnum árin.

Varnarmálaráðuneytið danska birti í morgun myndband þar sem rætt var við einn af flugmönnum F-35 þotnanna, þar sem hann sagði frá æfingunum og hvernig þær voru framkvæmdar. Myndbandinu fylgir mikið af myndefni af flugvélunum á flugi.

Æfingarnar, sem kallast Operation Vanguard í Bandaríkjunum, eru liður í Arctic Sentry verkefni NATO, sem gengur út á að auka og bæta varnir bandalagsins á norðurslóðum. Verkefni þetta var sett á laggirnar eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, krafðist þess að NATO tæki aukna ábyrgð á vörnum norðurslóða.

Var það eftir að hann byrjaði að krefjast þess að Bandaríkin eignuðust Grænland á grunni þjóðaröryggis Bandaríkjanna og vegna meintrar ógnar frá Rússlandi og Kína.

Bandarískar F-16 herþotur á flugi yfir Grænlandi í fylgd KC-135 eldsneytisflugvélar fyrr í vikunni.Maj. David Brown/Flugher Bandaríkjanna

Undanfarnar tvær vikur hafa rúmlega fjögur hundruð hermenn frá ellefu aðildarríkjum NATO einnig tekið þátt í æfingum á jörðu niðri í suðurhluta Grænlands. Þær æfingar bera nafnið Arctic Shield og er ætlað að þjálfa hermenn við erfiðar aðstæður á norðurslóðum.

Hermenn frá ellefu aðildarríkjum NATO hafa átt í æfingum á sunnanverðu Grænlandi undanfarnar tvær vikur.Simon Elbeck/Danski herinn

Helsta markmið æfinganna er, samkvæmt danska varnarmálaráðuneytinu, að láta hermenn upplifa hversu erfitt það er að lifa af á norðurslóðum, við þessar erfiðu aðstæður.


Tengdar fréttir

Danir auka vígbúnað í Færeyjum

Dönsk stjórnvöld ætla að auka viðveru hersins í Færeyjum. Danski varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus og færeyskur strafsbróðir hans, Bárður á Steig Nielsen, sem fer fyrir utanríkis- og sjávarútvegsmálum í Færeyjum, hafa gert samkomuag um þetta.

Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum

Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að.

Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi

Þegar danskir hermenn voru fluttir til Grænlands í janúar höfðu þeir með sér sprengiefni. Þau átti að nota til að sprengja flugbrautir í Nuuk og Kangerslussuaq, til að gera Bandaríkjamönnum erfiðara um vik með að senda hermenn til Grænlands. Þetta var ef Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, myndi reyna að taka Grænland með hervaldi, eins og hann hafði gefið til kynna að kæmi til greina.

Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi

Danskir flugmenn flugu í gær fjórum F-35 herþotum hingað til lands og var þotunum lent í Keflavík. Flugmennirnir munu standa í æfingum með sænsku flugsveitinni sem sinnir loftrýmisgæslu hér á landi, auk þess sem þýskar herþotur verða hér einnig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×