Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Smári Jökull Jónsson og Samúel Karl Ólason skrifa 22. september 2026 07:17 Frá mótmælum gegn hótunum Bandaríkjamanna í garð Grænlands í vetur. AP/Evgeniy Maloletka Bandaríkjamenn, Grænlendingar og Danir munu í dag skrifa undir samning um varnarmál á Grænlandi en undirritunin fer fram í New York. Samkvæmt danska ríkisútvarpinu hyggjast Bandaríkjamenn reisa tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi.
Skrifað verður undir samninginn klukkan 14:30 í dag að íslenskum tíma og fer athöfnin fram í byggingu Sameinuðu þjóðanna í New York. Mette Fredriksen forsætisráðherra Dana, Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku heimastjórnarinnar og Donald Trump munu skrifa undir. Óljóst er hvar nýju herstöðvarnar munu rísa. Bandaríkjamenn reka þegar herstöð í Pituffik og hafa áður sýnt flugvellinum í Narsarsuaq á Suður-Grænlandi áhuga. Þar gætir nokkurri tortryggni gagnvart hugsanlegri viðveru Bandaríkjahers. „Ég held við getum ekki hugsað okkur að búa hér samhliða Bandaríkjamönnum,“ segir Ole Guldager sem rekur safn í Narsarsuaq og bætir við að hús í byggðinni standi þétt upp við flugbrautina og hann óttast að lítið pláss verði fyrir íbúa staðarins ef Bandaríkjamenn ákveða að koma sér þar fyrir til frambúðar. Ursula von der Leyen, forseti Framkvæmdastjórnar ESB, heimsótti Grænland fyrr í september. Hér sést hún ásamt þeim Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og Jens-Frederik Nielsen, formanni landsstjórnar Grænlands.AP/Mads Claus Rasmussen, Ritzau Scanpix Samkvæmt heimildum Reuters á önnur nýja herstöðin að vera í Narsarsuaq og hin í Mestersvig. Þaðan starfar dönsk sérsveit sem notast gjarnan við hundasleða. Þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um samkomulagið á föstudag sagði hann að hann vildi eiga samstarf við íbúa Grænlands þegar Bandaríkjamenn hæfu uppbyggingu sína þar í landi. Traust Grænlendinga til hans er þó lítið, ekki síst vegna óútreiknanlegrar hegðunar forsetans undanfarin misseri. Samkomulegið hefur ekki verið birt enn og er óljóst hvort það byggir á varnarsáttmála Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur frá 1951 eða er algerlega nýtt plagg. Trump hefur haldið því fram að samkomulagið veiti Bandaríkjunum varanlega stjórn á öryggismálum Grænlands og „öllum öðru nauðsynlegu“. Ríkisstjórn Danmerkur hefur ekki enn tjáð sig um þau orð forsetans en þaðan hefur heyrst að samkomulagið virði fullveldi Danmerkur og sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga.
Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Donald Trump Danmörk Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira