Erlent

Skipar hernum að tæma Rafa fyrir innrás
Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur skipað ísraelska hernum að gera áætlun um brottflutning allra íbúa frá Rafah. Það á að gera áður en gerð verður allsherjar innrás í borgina en þangað hafa fjölmargir íbúar Gasastrandarinnar flúið á undanförnum mánuðum.

Vill morðingja fyrir blaðamann
Vladimír Pútin, forseti Rússlands, segist mögulega tilbúinn í fangaskipti vegna bandarísks blaðamanns sem haldið hefur verið í rússnesku fangelsi í tæpt ár vegna ásakana um njósnir. Í staðinn vill hann fá rússneskan njósnara sem situr í fangelsi í Þýskalandi fyrir morð.

Biden brást reiður við skýrslu um leyniskjöl
Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem rannsakað hefur opinber og leynileg skjöl sem fundust í vörslu Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, frá þeim tíma er hann var óbreyttur borgari, birti í gær skýrslu um rannsókn sína. Þar sagði hann ekki tilefni til að ákæra Biden en sagði hann hafa vísvitandi haldið eftir leynilegum gögnum og jafnvel sýnt öðrum þau.

Gíslatökumaður skotinn til bana í Sviss
Lögregluþjónar í Sviss skutu í gærkvöldi 32 ára mann frá Íran eftir að hann tók fimmtán manns í gíslingu í lest. Maðurinn var vopnaður hníf og öxi og hélt fólkinu í gíslingu í tæpar fjórar klukkustundir.

Pútín segir Musk óstöðvandi
Erfðatækni, gervigreind og Elon Musk var á meðal þess sem bar á góma í viðtali bandaríska sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem var birt á samfélagsmiðlinum X í nótt.

Fékk þrjátíu mínútna sögukennslu í tveggja tíma viðtali
Fyrstu þrjátíu mínútur tveggja klukkustunda langs viðtals sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladimir Pútín Rússlandsforseta fóru í yfirferð forsetans yfir sögu Rússlands, frá 9. öld og fram til valdatíma Leníns.

Rúmur helmingur allra mannvirkja í Gasa eyðilagður
Rúmur helmingur allra mannvirkja á Gasasvæðinu hafa orðið fyrir skemmdum eða eyðilagst aljgörlega síðan innrás Ísraela hófst þann 7. október á síðasta ári.

Selenskí vék yfirherforingja úr starfi
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur vikið Valerí Salúsjní yfirmanni úkraínska hersins úr starfi.

Kjörgengi Trumps rætt í Hæstarétti
Málflutningur um það hvort ríki Bandaríkjanna hafi rétt til að meina Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að vera á kjörseðlum þar í forsetakosningunum sem haldnar verða í nóvember, stendur nú yfir fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna.

Tusk segir Repúblikönum að skammast sín
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Repúblikönum í öldungadeild Bandaríkjaþings að skammast sín. Er það í kjölfar að þingmennirnir felldu frumvarp sem þeir höfðu sjálfir beðið um og komið að því að semja. Það frumvarp sneri meðal annars að hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum.

Felldu einn af leiðtogum Kataib Hezbollah í drónaárás
Einn af æðstu leiðtogum vígahópsins Kataib Hezbollah var felldur í drónaárás Bandaríkjamanna í Bagdad í Írak í gær. Hann er sagður hafa komið með beinum hætti að skipulagningu og framkvæmd árása á bandaríska hermenn í Írak, Sýrlandi og Jórdaníu.

Hafnar kröfum um vopnahlé og spáir fullnaðarsigri
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael hafnaði í dag vopnahléstillögu Hamas. Þá sagði hann fullnaðarsigur á Gasa væntanlegan á næstu mánuðum.

Segir alþjóðasamfélagið gleyma Súdan og vill 570 milljarða í aðstoð
Yfirmaður hjálparsamtaka sameinuðu þjóðanna biðlaði í dag til a að gleyma ekki því neyðarástandi sem nú stendur yfir í Súdan, en þar hefur stríð geisað í landinu í tíu mánuði.

Sár árásarmannsins gætu reynst banvæn
Maðurinn sem skvetti sýru framan í 31 árs gamla konu og tvær dætur hennar í Lundúnum síðasta miðvikudag áður en hann lagði á flótta, er enn ófundinn. Sár hans gætu að sögn lögreglu reynst banvæn komist hann ekki undir læknishendur.

Leitin hefur ekki borið árangur
Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Færeyjum í gær hefur ekki skilað árangri í dag. Leitað hefur verið úr lofti og á sjó en einn neyðarsendir úr skipinu hefur fundist.

Hlakkar í Rússum vegna heimsóknar Carlson
Tucker Carlson, fyrrverandi sjónvarpsmaður Fox News, hefur tekið viðtal við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Þetta er fyrsta viðtal forsetans af þessu tagi frá því Rússar hófu innrásina í Úkraínu í febrúar 2022.

Höfðar mál gegn Disney og Lucasfilm með stuðningi Musks
Leikkonan Gina Carano hefur höfðað mál gegn Walt Disney og Lucasfilm, með stuðningi auðjöfursins Elons Musk. Carano heldur því fram að hún hafi ranglega verið rekin frá þáttunum Mandalorian árið 2021 vegna þess að hún hafi dreift íhaldssömum stjórnmálaskoðunum sínum á samfélagsmiðlum.

Óreiðan á þingi nær nýjum hæðum
Óreiðan á bandaríska þinginu náði nýjum hæðum í gær. Á meðan Repúblikanar í öldungadeildinni gerðu útaf við samkomulag um hernaðaraðstoð og aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, samkomulag sem þeir höfðu krafist um mánaða skeið, guldu Repúblikanar afhroð í tveimur atkvæðagreiðslum í fulltrúadeildinni.

Leit haldið áfram við Færeyjar í dag
Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Suðurey í Færeyjum í gær verður haldið áfram í dag. Sextán manns voru um borð í skipinu þegar það fékk á sig brotsjó í gærmorgun og mikil slagsíða kom á það.

Tucker Carlson í Moskvu til að taka viðtal við Vladimir Pútín
Hinn umdeildi sjónvarpsmaður Tucker Carlson er staddur í Moskvu, að eigin sögn til að taka viðtal við Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Hann segir nauðsynlegt að upplýsa Bandaríkjamenn um stríð sem þeir eru að fjármagna en vita fátt eitt um.

Móðir dæmd samsek fyrir skotárás sem sonurinn framdi í skóla
Kviðdómur í Michigan í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að kona á fimmtugsaldri væri sek um manndráp af gáleysi, fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir það þegar sonur hennar skaut fjóra samnemendur sína til bana í gagnfræðaskóla í bæ þeirra.

Laut í lægra haldi fyrir valkostinum „Enginn af þessum frambjóðendum“
Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, mátti þola mikla niðurlægingu í gær þegar forval fyrir forsetakosningarnar fór fram í Nevada í gær.

Umfangsmiklar loftárásir á borgir Úkraínu í morgunsárið
Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði í morgun eftir að Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á höfuðborgina og aðrar borgir í Úkraínu.

Fyrrverandi forseti Síle lést í þyrluslysi
Sebastian Pinera, fyrrverandi forseti Síle, lést í dag þegar þyrla sem hann ferðaðist með féll ofan í stöðuvatn í suðurhluta Síle. Pinera var 74 ára gamall.

Úkraínskir sérsveitarmenn sagðir berjast gegn Wagner í Súdan
Úkraínskir sérsveitarmenn eru sagðir hafa um nokkuð skeið barist gegn málaliðum Wagner-Group. Nýtt myndband sem úkraínskur fjölmiðill hefur birt er sagt sýna rússneskan málaliða og meðlimi sveita sem kallast RSF í haldi úkraínskra sérsveitarmanna á vegum leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR).

Trump nýtur ekki friðhelgi, í bili
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er ekki með friðhelgi gegn ákærum. Þetta er úrskurður áfrýjunardómstóls í Washington DC en málið fer líklega fyrir hæstarétt Bandaríkjanna.

Mótmæla líkt og franskir starfsbræður sínir
Spænskir bændur hafa nú bæst í hóp þeirra fjölmörgu úr starfsstéttinni sem hafa mótmælt undanfarið víða um Evrópu.

Tveggja saknað eftir að færeyskt línuskip sökk
Tveggja manna er saknað eftir að færeyska línuskipið Kambur fékk á sig brot í morgun. Mikil slagsíða kom á skipið og sendi áhöfn þess út neyðarkall um klukkan sjö í morgun.

Snerist hugur nokkrum tímum eftir að hann sagði aðgerðir nauðsynlegar
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ráðlagði meðlimum þingflokks síns í gærkvöldi að greiða atkvæði gegn nýju frumvarpi um aukna gæslu og hertar aðgerðir á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og Ísraelum, auk annars.

Fyrrverandi forsætisráðherra Írlands látinn
John Bruton, fyrrverandi forsætisráðherra Írlands, er látinn, 76 ára að aldri. Hann gegndi embætti forsætisráðherra (Taoiseach) á árunum 1994 til 1997.