Erlent

Leita enn réttlætis áratug eftir efnavopnaárás Assads
Íbúar í Ghouta, úthverfi Damaskusar, eru gramir yfir því að enginn hafi verið látinn sæta ábyrgð á efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins sem varð á annað þúsund manns að bana árið 2013. Þvert á móti sé Bashar al-Assad, forseti, aftur boðinn velkominn í alþjóðasamfélagið.

Sagði lögregluþjónum að hunskast út degi áður en hún lést
Hin 98 ára gamla Joan Meyer var verulega ósátt við lögregluþjóna sem framkvæmdu húsleit heima hjá henni og syni hennar fyrr í mánuðinum. Myndband úr öryggismyndavél sýnir að Meyer var í uppnámi þegar lögregluþjónarnir réðust til atlögu og krafðist hún þess á einum tímapunkti að lögregluþjónarnir hunskuðu sér út en hún lést degi síðar.

Börnum bjargað úr kláfi sem festist í þrjú hundruð metra hæð
Pakistanskir sérsveitarhermenn og aðrir björgunaraðilar hafa bjargað sex börnum og tveimur kennurum úr kláfi sem hangir í um þrjú hundruð metra hæð. Fólkið festist í kláfinum þegar einn kaplanna sem heldur honum uppi slitnaði en hermennirnir björguðu þeim úr þyrlu í mjög erfiðri björgunaraðgerð.

Átján lík fundist eftir skógareldana í Grikklandi
Lík átján manna hafa fundist í skóglendi í norðurhluta Grikklands á síðustu fjórum dögum þar sem skógareldar hafa geisað síðustu daga.

Blákrabbinn ógnar afkomu þúsunda einstaklinga og fyrirtækja
Blákrabbi ógnar nú afkomu þúsunda fyrirtækja og einstaklinga sem hafa atvinnu sína og lífsviðurværi af skelfisk undan ströndum norður Ítalíu. Krabbinn sem á heimkynni við strendur norður- og suður Ameríku er sagður ógna stöðu Ítalíu sem eins helsta skelfiskframleiðanda heims og skaðinn sem hann er þegar talinn hafa valdið er sagður nema um 100 milljónum evra.

Fasteignamógúll nýr forsætisráðherra Taílands
Bundinn var enda á upplausnarástand sem ríkt hefur í taílenskum stjórnmálum frá þingkosningum í maí þegar ný ríkisstjórn undir forsæti Srettha Thavisin, þekkts fasteignamógúls, var staðfest í dag. Flokknum sem fékk flest atkvæði í kosningunum var haldið frá ríkisstjórn.

Breyta fæðingarstað Hitlers í lögreglustöð
Innanríkisráðuneyti Austurríkis hefur tilkynnt að til standi að breyta húsinu þar sem Adolf Hitler fæddist í lögreglustöð. Gagnrýnendur hafa sagt einræðisherrann hafa dreymt um að fæðingarstaðnum yrði breytt í stjórnsýsluhús og yfirvöld séu því að uppfylla óskir hans.

Átta af hverjum þúsund innrituðum töskum týndist árið 2022
Tuttugu og sex milljónir taska eða annars konar farangur týndist hjá flugfélögunum árið 2022. Þetta jafngildir átta töskum af hverjum þúsund innrituðum töskum.

Rekja gróðureldana á Tenerife til vísvitandi íkveikju
Lögreglan á Tenerife telur að vísvitandi íkveikja hafi komið stjórnlausum gróðureldum sem geisa enn á eyjunni af stað. Þúsundir manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín og dvalarstaði vegna eldanna.

Mæðrum haldið föngnum ef þær geta ekki borgað sjúkrahúsreikninginn
Mannréttindasamtök og aðgerðasinnar í Úganda vonast til þess að dómsmál sem tekið verður fyrir nú í ágúst verði til þess að binda enda á það verklag sjúkrahúsa að halda einstaklingum föngum sem ekki hafa gert upp reikninginn vegna dvalar sinnar.

Elleman-Jensen og Lund Poulsen hafa stólaskipti
Jakob Ellemann Jensen, leiðtogi danska stjórnarflokksins Venstre, verður nýr ráðherra efnahagsmála í dönsku ríkisstjórninni og Troels Lund Poulsen, samflokksmaður hans, verður nýr varnarmálaráðherra.

Sneri aftur eftir fimmtán ára útlegð og fór beint í steininn
Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, sneri aftur til landsins eftir að hafa varið síðustu fimmtán árum í sjálfskipaðri útlegð. Eftir að hafa verið fagnað sem þjóðhetju á flugvelli við komu var hann færður í hæstarétt Taílands þar sem hann var dæmdur í átta ára fangelsi.

Fimm látnir eftir bílslys í Svíþjóð
Fimm létust þegar vörubíll og fólksbíll rákust saman á vegi milli Falköping og Skara í Svíþjóð í gær. Fólksbíllinn varð alelda eftir áreksturinn en allir fimm sem létust voru í honum.

Hleypa geislavirku vatni út í sjó
Japanir munu byrja að hleypa vatni úr Fukushima-kjarnorkuverinu út í sjó á fimmtudag. Vatnið var notað til þess að kæla kjarnaofna versins þegar þeir bráðnuðu eftir gríðarlegan jarðskjálfta árið 2011.

Hilary lék Kaliforníu grátt
Óveðrið Hilary sem skall á Kaliforníu og Mexíkó í morgun lék svæðið grátt. Gífurleg rigning fylgdi óveðrinu sem leiddi til flóða og aurskriða. Hilary stefnir nú til norðurs en þrátt fyrir að óveðið hafi misst mikinn kraft er enn óttast að því geti fylgt hættuleg og mannskæð flóð.

Segja klasasprengjurnar nýtast vel gegn Rússum
Úkraínskir hermenn segja klasasprengjur hafa nýst vel gegn Rússum á undanförnum vikum. Þær nýtist sérstaklega vel til að stöðva árásir Rússa í austurhluta landsins, á meðan Úkraínumenn reyna að sækja fram í suðri.

Gert að greiða tuttugu og sex milljónir króna í tryggingu
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, mun þurfa að greiða tvö hundruð þúsund dali í tryggingu til að komast hjá því að sitja í fangelsi vegna ákæra gegn honum í Fulton-sýslu í Georgíu. Hann var ákærður í Georgíu í síðustu viku vegna tilrauna hans til að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu en það var í fjórða sinn á þessu ári sem Trump var ákærður.

Daníel grunaður um að hafa stungið kærustu sína til bana með ísnál
Réttarhöld í máli Daníels Gunnarssonar hófust í Kaliforníu í seinustu viku. Íslendingurinn er ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu og limlestingu á líki. Hann er grunaður um að hafa orðið fyrrum bekkjarsystur sinni, hinni 21 árs gömlu Katie Pham, að bana á hrottalegan hátt. Vikurnar fyrir morðið höfðu þau átt í stuttu ástarsambandi.

Fleiri hundraða enn saknað eftir gróðureldana á Maui
Sveitarstjóri á Maui á Havaíeyjum segir að 850 manns sé enn saknað eftir gróðureldana sem ollu hörmungum á eyjunni í síðustu viku. Joe Biden Bandaríkjaforseti og eingkona hans ætla að kynna sér hamfarasvæðið í dag.

Húsleit gerð hjá stuðningsfólki Rússa vegna stríðsvopna
Þýskir saksóknarar greindu frá því að þeir hefðu gert húsleit hjá pari sem hefur staðið fyrir mótmælum gegn stuðningi þýskra stjórnvalda við Úkraínu í dag. Rannsóknin á parinu er sögð snúast um brot á lögum um framleiðslu og flutnings á stríðsvopnum.

Bananaerfingi og bandamaður spillts forseta í aðra umferð
Allt stefnir í að kosið verði á milli vinstrisinna og erfingja bananaveldis í annarri umferð forsetakosninga í Ekvador eftir að engum frambjóðanda tókst að tryggja sér hreinan meirihluta í kosningunum þar í gær.

Mun aldrei sleppa úr fangelsi
Dómari í Bretlandi dæmdi í morgun hjúkrunarfræðinginn Lucy Letby í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa banað sjö börnum og reynt að bana sex til viðbótar á barnadeild sjúkahúss í Chester á árunum 2015 og 2016.

Um 300 tilvik á tólf mánuðum þar sem árekstri var naumlega forðað
Rannsókn New York Times hefur leitt í ljós að í hverri viku eiga sér stað nokkur tilvik þar sem flugvélar lenda næstum í árekstrum nærri eða á flugvöllum í Bandaríkjunum. Fjörtíu og sex slík atvik áttu sér stað í júlí og um 300 á síðustu tólf mánuðum.

Herinn sendur til Bresku Kólumbíu vegna gróðurelda
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, sagðist ætla að senda herinn til þess að aðstoða við baráttuna gegn miklum gróðureldum sem geisa í Bresku Kólumbíu. Neyðarástandi var lýst yfir í fylkinu og fleiri en 35.000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín.

Hilary dynur á Kaliforníu með metúrkomu
Meira en ársúrkoma er þegar fallin á sumum stöðum þar sem hitabeltislægðin Hilary fer yfir í sunnanverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum. Neyðarástandi var lýst yfir á svæðinu en mikil hætta er talin á lífshættilegum skyndiflóðum og aurskriðum.

Skrúfa fyrir flugumferð eftir drónaárásir
Minnst tveir særðust þegar flak úkraínsks dróna, sem Rússar grönduðu, hrapaði á hús í úthverfi Moskvu í nótt. Þá segja Rússar minnst sjö hafa særst í drónaárás á lestarstöð í Kúrsk í gær.

Saka Sáda um að skjóta hundruð manna á landamærunum
Mannréttindasamtök halda því fram að landamæraverðir í Sádi-Arabíu hafi drepið hundruð óvopnaðra eþíópískra farandverkamanna með vélbyssum og sprengjuvörpum á landamærunum að Jemen undanfarin ár. Sameinuðu þjóðirnar hafa gengið á Sáda vegna frétta af slíkum árásum.

Reyna að leggja stein í götu nýkjörins forseta Gvatemala
Bernardo Arévalo, frjálslyndur utangarðsmaður í stjórnmálum, fór með afgerandi sigur af hólmi i forsetakosningum í Gvatemala í gær. Óljóst er þó hvort að Arévalo fái að taka við embættinu þar sem ríkissaksóknari landsins reynir nú að lýsa stjórnmálaflokk hans ólöglegan.

Rannsaka hvort þyngdarstjórnunarlyf gagnast gegn ýmsum sjúkdómum
Vísindamenn hyggjast rannsaka hvort sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyf sem innihalda semaglutide geta hjálpað einstaklingum sem þjást af sjúkdómum á borð við fíkn og vitglöp.

Tekur ekki þátt í kappræðum: „Almenningur veit hver ég er“
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og frambjóðandi í forvali Repúblikana, hefur ákveðið að mæta mótframbjóðendum sínum ekki í kappræðum. „Almenningur veit hver ég er og hversu árangursríka forsetatíð ég átti. Þar af leiðandi mun ég ekki taka þátt í kappræðunum!“ sagði Trump á samfélagsmiðlinum Truth í gær.