Erlent

Far­þega­flug­vél hrapaði í Kasakstan

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Myndbönd af slysinu eru í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Myndbönd af slysinu eru í dreifingu á samfélagsmiðlum. X

Farþegaflugvél hrapaði í nágrenni borgarinnar Aktau í Kasakstan í morgun. Fyrstu fréttir gefa til kynna að einhverjir hafi lifað hrapið af.

Samkvæmt kasökskum stjórnvöldum er unnið að því að slökkva elda sem kviknað hafa í flakinu. Myndbönd hafa þegar farið í dreifingu sem sýna slysið og eftirmála þess.

Rússneskumælandi miðlar greina frá því að flugið hafi verið á vegum Azerbaijan Airlines og hafi verið á leið frá Bakú til borgarinnar Grosní í Téténíu en hafi þurft að breyta leið sinni vegna þoku í Grosní.

Azerbaijan Airlines hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðla en samkvæmt kasökskum staðarmiðlum voru 105 farþegar og fimm áhafnarmeðlimir um borð þegar vélin hrapaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×