Innlent
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 334 ›
Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu fyrir nemendur í 8. og 9. bekk var haldin í tíunda skiptið í dag í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Keppnin er sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi og siguvegararnir í ár komu úr Laugardal og Hveragerði. Innlent 17.5.2025 18:19
Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Ísraelski herinn hefur haldið úti stöðugum loftárásum á Gasaströndina í nótt og í dag. Á annað hundrað hafa látið lífið síðasta sólarhringinn. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 17.5.2025 18:12
Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Slökkviliðið hefur náð stjórn á sinueldi við Apavatn í Grímsnesi. Eldurinn kviknaði inni í sumarhúsabyggð, var umfangsmikill að stærð og komst nálægt sumarhúsum á svæðinu. Innlent 17.5.2025 16:59
Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir Hryðjuverkamálið svokallaða. Sakborningar þess, Sindri Snær Birgisson, 27 ára, og Ísidór Nathansson, 26 ára, hafa verið sýknaðir af ákæru um tilraun til hryðjuverka, bæði í Héraðsdómi Reykjavíkur og í Landsrétti. Innlent 17.5.2025 16:25
Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Fimmmeningar hafa verið ákærðir í stórfelldu fíkniefnamáli sem varðar ræktun og vörslu kannabisefna. Innlent 17.5.2025 16:06
„Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Ingibjörg Isaksen, þingkona Framsóknarflokksins, segir ljóst að þjónusturof verði hjá þeim sem þegið hafa þjónustu hjá Janusi endurhæfingu síðustu misseri. Úrræðinu verður lokað í lok mánaðar. Alls þiggja 55 þjónustu hjá úrræðinu sem er þverfagleg geðræn endurhæfing. Innlent 17.5.2025 14:01
Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að sér lítist vel á tillögur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um róttækar breytingar á byggingareftirliti. Grundvallaratriði sé að tryggja rétt kaupenda sem kaupi fasteignir í gölluðum nýbyggingum. Innlent 17.5.2025 12:01
Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Minnst níu létust og sjö særðust eftir rússneska drónaárás á almenningsrútu í Súmí héraði í norðausturhluta Úkraínu snemma í morgun. Rússar segja að árásum hafi verið beint að hernaðarinnviðum. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 17.5.2025 11:52
Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Óvenjuleg hlýindi á hálendinu undanfarið hafa leyst nánast allan snjó á neðra vatnasviði Blöndulóns. Allar líkur eru á að þessar vorleysingar nái að fylla Blöndulón og eitthvað vatn muni renna á yfirfalli þess. Vatnsbúskapur í miðlunarlónum Landsvirkjunar er almennt heldur betri en undanfarin ár. Innlent 17.5.2025 11:45
Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Sverrir Þór Gunnarsson, sem var handtekinn í Brasilíu árið 2023 grunaður um þátttöku í alþjóðlegu fíkniefna- og peningaþvættisneti, verður áfram í gæsluvarðhaldi. Hæstiréttur Brasilíu (STF) hafnaði í byrjun apríl beiðni um lausn úr haldi og vísaði til alvarleika brotanna og sterkra vísbendinga um að Sverrir hafi gegnt lykilhlutverki í skipulagðri glæpastarfsemi. Innlent 17.5.2025 10:01
Svalt þokuloft ekki langt undan Undanfarnir dagar hafa verið með hlýrra móti á landinu og ekkert lát verður á hlýindunum um helgina miðað við veðurspár. Almennt verður léttskýjað og hiti víða yfir 20 gráðum en við suður- og austurströndina verður svalt þokuloft ekki langt undan og þar sem þokan kemur inn á land má búast við hita á bilinu 10 til 13 stig. Innlent 17.5.2025 08:33
Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust fjölmargar tilkynningar í gærkvöldi vegna ökumanns sem hafði ekið á nokkra kyrrstæða bíla og ekið síðan á brott. Bíllinn fannst eftir stutta leit og ökumaður reyndist ölvaður. Hann var handtekinn og vistaður á stöð í þágu rannsóknar málsins. Innlent 17.5.2025 08:14
Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Hjartalæknir segir sánuferðir geta haft margþætt jákvæð áhrif á heilsu fólks og ekki síst hjartað. Sánuferðir hafi sambærileg áhrif og líkamsrækt, lækki blóðþrýsting og auki losun endorfína sem dragi úr streitu. Innlent 16.5.2025 21:53
Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir ríkið draga lappirnar þegar kemur að því að bjóða andlega veikum einstaklingum viðeigandi úrræði. Á sama tíma sé mikilvægt að hlusta á áhyggjur íbúa sem segjast óttast nágranna sinn á Hverfisgötu. Innlent 16.5.2025 21:04
Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Framkvæmdir eru nú að hefjast við byggingu björgunarmiðstöðvar á Flúðum þar sem slökkviliðið á staðnum og björgunarfélagið verða undir sama þaki. Húsið verður um 1200 fermetrar á stærð og á að verða tilbúið í desember næstkomandi. Innlent 16.5.2025 20:36
Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Hagfræðingur segir jákvætt að ríkinu hafi tekist að selja allan hlut sinn í Íslandsbanka. Augljóst sé að mikil eftirspurn sé eftir því meðal almennings að eignast hluti í íslenskum fjármálafyrirtækjum. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 16.5.2025 18:19
Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Tveir menn hafa verið sýknaðir af ákæru fyrir að húsbrot, með því að hafa farið inn í hús sem þeir eiga í sameign með fleirum, meðal annars konu sem hélt til í húsinu. Húsið stóð opið og mennirnir mynduðu aðstæður inni í því, sem þeir sögðu fyrir neðan allar hellur. Innlent 16.5.2025 16:55
Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undirritaði í dag yfirlýsingu með leiðtogum sex annarra ríkja þar sem þeir lýsa því yfir að tafarlausra aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir frekari hörmungar á Gasa. Ísland átti frumkvæði að gerð yfirlýsingarinnar samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins og veitti því forystu ásamt Spáni að hópurinn náði saman. Innlent 16.5.2025 16:00
Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Borgarráð hefur lagt blessun sína yfir tillögu um breytingu á deiliskipulagi Laugardals vegna uppbyggingu skólaþorps á hluta bílastæðasvæðis Laugardalsvallar við Reykjaveg. Fyrrverandi borgarstjóri greiddi atkvæði með tillögunni, en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn. Hildur Björnsdóttir Sjálfstæðisflokki segist hafa miklar áhyggjur af öryggi skólabarna vegna umferðarinnar sem verður á svæðinu. Innlent 16.5.2025 15:56
Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, heldur fullum launum út skipunartíma sinn og í sex mánuði til viðbótar. Hann verður því á launum til og með 15. maí á næsta ári. Innlent 16.5.2025 14:51
Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Þorleifur Jón Hreiðarsson keilari er afar ósáttur svo vægt sé til orða tekið. Hann vann nýverið Íslandsmót öldunga í keilu, það er í flokki 50+, en fær ekki sæti í öldungalandsliðinu. Hann segir þetta ekkert minna en skandal. Innlent 16.5.2025 14:40
Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eru óvirk vegna bilunar. Svipuð bilun kom upp á sama stað síðdegis á miðvikudag. Innlent 16.5.2025 14:27
Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúar telja óheillaskref að farið sé að selja áfengi á íþróttaviðburðum. Mikilvægt sé að umræða fari fram um þetta og að sveitarfélögin komi að henni þar sem þau taki þátt í að fjármagna íþróttastarfið. Innlent 16.5.2025 14:04
Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Virkja þarf tvær þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar til þess að sækja veikan farþega um borð í skemmtiferðaskipi um 150 sjómílur austnorðaustur af landinu. Ekki er búist við að þyrla komist að skipinu fyrr en um hálf fimm í dag. Innlent 16.5.2025 13:56
Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Ekkert fékkst upp í tæplega 43 milljóna króna kröfur í þrotabú Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar, sem afplánar nú langan dóm fyrir fjölda kynferðisbrota. Innlent 16.5.2025 13:47
Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár „Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár“ er yfirskrift ársfundar Landspítala sem haldinn er í Hörpu í dag. Innlent 16.5.2025 13:33
Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Afstaða, félag um bætt fangelsismál og betrun, hlaut í dag 600 þúsund krónur að gjöf fyrir að hljóta mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2025. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri afhenti Guðmundi Inga Þóroddssyni, formanni félagsins, verðlaunin í Höfða fyrr í dag fyrir starf Afstöðu í þágu fanga og aðstandenda þeirra. Innlent 16.5.2025 13:27
Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán stúlkum. Dómurinn er til viðbótar við sjö ára dóm sem hann hlaut í Hæstarétti í fyrra fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum. Innlent 16.5.2025 12:55
Sakar RÚV um óvandaðan fréttaflutning um fjármál borgarinnar Ekki stendur til að skerða framlög Reykjavíkurborgar til íþróttafélaga þrátt fyrir að Ríkisútvarpið hafi slegið því upp í fyrirsögn, að sögn formanns borgarráðs. Hann sakar stofnunina um óvandaðan fréttaflutning af borgarmálum. Innlent 16.5.2025 12:32
Rafmagnslaust á Granda Rafmagnslaust er vegna háspennubilunar við Grandagarð og nágrenni í Reykjavík. Innlent 16.5.2025 12:16