Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Atli Ísleifsson skrifar 12. október 2026 10:18 Dagbjört Ósk Hreggviðsdóttir frá Háskóla Íslands hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn sína. Í öðru sæti varð fulltrúi háskólans í Brussel í Belgíu og i þriðja sæti fulltrúi háskólans í Utrecht í Hollandi. Aðsend Íslensk meistaraprófsrannsókn í sjúkraþjálfun hlaut um helgina fyrstu verðlaun evrópskra samtaka um rannsóknir á sviði sjúkraþjálfunar á háskólastigi. Höfundur rannsóknarinnar, Dagbjört Ósk Hreggviðsdóttir, hlaut verðlaunin fyrir lokaverkefni sitt frá námsbraut í sjúkraþjálfun frá heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands.
Verðlaunin voru veitt í borginni Tartu í Eistlandi á laugardag á rannsóknarþingi sem fram fór í Háskólanum í Tartu fyrir hagnýt heilbrigðisvísindi. Verðlaunin eru á vegum samtakanna Enphe, sem stendur fyrir „European network of physiotherapy in higher education“. Alls voru 46 evrópsk rannsóknarverkefni valin til að keppa til úrslita. Fyrstu verðlaunin hlaut Dagbjört Ósk fyrir rannsókn á grindarbotnseinkennum íslenskra kvenna sem greindar hafa verið með vefjagigt. Í öðru sæti varð rannsókn frá háskólanum í Brussel í Belgíu en þriðja sæti hlaut rannsókn frá háskólanum í Utrecht í Hollandi. „Það er bara gaman að fá viðurkenningu fyrir alla vinnuna sem fór í þessa rannsókn,“ sagði Dagbjört eftir að hafa tekið við verðlaununum en leiðbeinendur hennar voru doktor Kristín Briem og doktor Þorgerður Sigurðardóttir. „Ég vona að verkefnið og niðurstöðurnar veki athygli þannig að fleiri kynni sér kvenheilsutengd vandamál og geti notað niðurstöðurnar til að hjálpa sér í starfi.“ Dagbjört segir einnig ánægjulegt að vera efst af þeim nærri fimmtíu verkefnum sem voru talin hæf til að vera send inn. „Þetta voru allskonar rannsóknir sem voru með mjög mismunandi áherslur og með mjög flottum niðurstöðum einnig. Þannig að það gerir þetta ennþá betra.“
Háskólar Vísindi Heilbrigðismál Kvenheilsa Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Sjá meira