
Innlent

Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði
Yazan Tamimi, ellefu ára langveikur drengur frá Palestínu, og fjölskylda sem fengu samþykkta vernd í síðasta mánuði leita nú logandi ljósi að húsnæði sem hentar fjölskyldunni og sérþörfum Yazans.

Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun
Engin markviss skráning slysa og óhappa í ferðaþjónustu er fyrir hendi á Íslandi. Starfshópur leggur til að úr því verði bætt. Sérfræðingur segir aukið eftirlit og skýrari öryggisferla vænlegri lausn en boð og bönn. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum
Maður var handtekinn í dag í vesturhluta Reykjavíkur grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum.

Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin
Ökumaður missti stjórn á bílnum sínum þegar hann ók um Öxnadalinn á þriðjudagskvöld. Klæðing á veginum húðaðist utan um dekkin hans. Ökumaðurinn segir veginn á svæðinu oft vera í ansi slæmu standi.

Lögreglan bannaði bjór á B5
Samband ungra framsóknarmanna fékk ekki að bjóða upp á áfengi þegar kosningamiðstöð þeirra var opnuð við Bankastræti 5 í gær. Formaðurinn segir að einhverjir hafi verið súrir þegar þeir gátu eingöngu fengið óáfenga drykki á staðnum en þeir boða til nýrrar veislu í næstu viku.

Leikskólastarfsmenn í Hafnarfirði greiða atkvæði um verkfall
Félagsmenn verkalýðsfélagsins Hlífar sem starfa á leikskólum Hafnarfjarðar greiða ný atkvæði um verkfall. Verði tillagan samþykkt fara starfsmenn í verkfall í tvo sólarhringa á tímabilinu 21. nóvember til 5. desember.

Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands
Um eitt þúsund og fimm hundruð manns sækja símenntun hjá Fræðsluneti Suðurlands á hverju ári en helmingur af þátttakendum eru erlendir íbúar búsettir á Suðurlandi. Fræðslunetið, sem fagnar nú tuttugu og fimm ára afmæli er með um sextíu kennara á sínum snærum.

Bein útsending: Sigmundur kynnir innihaldið
Miðflokkurinn hefur boðað til fundar þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, kynnir áherslumál flokksins fyrir komandi þingkosningar.

Öryrkjar fá 1,7 skattfrjálsa milljarða
Velferðarnefnd Alþingis hefur lagt fram frumvarp um sjötíu þúsund króna skattfrjálsa eingreiðslu til öryrkja. Samkvæmt fjáraukalagafrumvarpi er gert ráð fyrir 1,7 milljörðum í eingreiðsluna.

Ætla ekki að slíta viðræðum
Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til nýs fundar hjá samninganefndum kennara og ríkis og sveitarfélaga. Formaður Kennarasambands Íslands segir sáttasemjara hafa metið stöðuna þannig að ekki sé ástæða til að boða til fundar að svo stöddu.

Engin ákvörðun um hvalveiðar og maurasýrumengun á Bíldudal
Um helmingi landsmanna þætti óeðlilegt að ráðherra í starfstjórn gæfi út nýtt leyfi til hvalveiða. Matvælaráðherra hefur ekki tekið afstöðu til fyrirliggjandi umsóiknar um hvalveiðileyfi en segir brýnt að málið fari í lögboðið ferli.

Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta
Ingunn Björnsdóttir, dósent við Óslóarháskóla og brotaþoli fólskulegrar hnífstunguárás í sama skóla, segir íslenskt réttarkerfi ráðþrota þegar kemur að alvarlegum ofbeldismálum. Sá sem stakk hana sætir svokölluðu „forvaring“, refsiúrræði í Noregi sem heimilar yfirvöldum að halda afbrotamönnum í vistun eftir afplánun fangelsisdóms. Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sætir sama úrræði.

Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm
Unnið er að því að fá Söndru Sigrúnu Fenton, sem er búin að afplána ellefu ár af 37 ára fangelsisdómi í Bandaríkjunum, framselda til Íslands. Hún framdi tvö bankarán á einum degi árið 2013 í Virginíuríki og var sakfelld fyrir það.

Helmingi þætti óeðlilegt ef Bjarni gæfi út hvalveiðileyfi
Ný könnun sýnir að 51 prósent landsmanna teldi óeðlilegt ef matvælaráðherra gæfi út leyfi til veiða á hvölum á meðan hann situr í starfsstjórn.

Þúsund lítrar af sýru láku á Bíldudal
Slökkvilið Vesturbyggðar sinnti útkalli í nótt vegna mengunarslyss þegar þúsund lítrar af maurasýru láku úr bamba á iðnaðarsvæði á Bíldudal. Engan sakaði en maurasýra er gríðarlega ertandi, bæði við snertingu og innöndun.

Ríkisstjórnin bjó sjálf til flóttamannavandamál
Þingflokksformaður Pírata telur að boða ætti til þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrst um hvort aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði haldið áfram. Ríkisstjórnin hafi með ósanngirni búið til flóttamannavandamál úr hælisleitendum frá Venesúela sem hún hafi fyrst boðið til landsins og svo ákveðið að reka á brott með ærnum tilkostnaði. Píratar stefni að því að komast í ríkisstjórn að loknum kosningum.

Tveir handteknir eftir hópslagsmál
Tveir voru handteknir í gærkvöldi eða í nótt eftir hópslagsmál við skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Þeir voru í kjölfarið færðir á lögreglustöð þar sem þeir voru vistaðir í fangaklefa. Málið er í rannsókn.

Mansalsmál Gríska hússins: Vann sjö daga í viku hverri og svaf í kjallaranum
Brotaþoli í mansalsmáli, sem lögregla hefur til rannsóknar og tengist veitingastaðnum Gríska húsinu, sagði í skýrslutöku að hann hafi verið látinn vinna sjö daga í hverri viku, stundum 30 daga í mánuði. Hann, ásamt öðrum manni, fannst sofandi á dýnu í kjallara hússins þegar lögregla réðist þar í húsleit.

Sakar Snorra um að tendra bál fordóma
Svandísi Svavarsdóttur formanni Vinstri grænna finnst sorglegt að sjá að „ungur maður eins og Snorri Másson“ ali á ótta og fordómum með orðræðu sinni í forystu Miðflokksins. Orðræða flokksins sé til þess fallin að sundra samfélaginu.

Nýju húsnæði Myndlistaskólans lokað
Eldvarnareftirlit og byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar gerðu athugasemdir við nýtt húsnæði Myndlistaskólans í Reykjavík í dag og í kjölfarið var skólanum lokað.

Ísland meðal Evrópulanda þar sem lyfjatengd andlát eru hlutfallslega flest
Ísland er meðal þeirra landa sem er með hlutfallslega flest lyfjatengd andlát í Evrópu samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu. Formaður samtaka um skaðaminnkun segir brýnt að stjórnvöld bregðist við. Lyfjafræðingar berjast fyrir því að fá að selja nefúða í lausasölu sem er mótefni við of stórum skammti ópíóðalyfja.

Nánast engin læknisþjónusta ef til verkfalls kemur
Það myndi hafa slæm áhrif á starfsemi heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu ef til læknaverkfalls kemur að sögn framkvæmdastjóra. Öryggismönnun verður þó í gildi á bæði Landspítala og heilsugæslu. Heilbrigðisráðherra bindur vonir við að samningar náist áður en boðuð verkföll eiga að hefjast.

Mikill eldur í iðnaðarhúsnæði á Akureyri
Slökkvilið og lögregla á Akureyri vinna nú að því að ráða niðurlögum elds sem kom upp í iðnaðarhúsnæði í Kálfagerði.

Lyfjatengd andlát, rauð Bandaríki og glimmerveisla í Eldborg
Lyfjatengd andlát voru sex sinnum fleiri á hverja hundrað þúsund íbúa hér á landi í fyrra en að meðaltali í Evrópu. Formaður samtaka um skaðaminnkun segir brýnt að stjórnvöld bregðist við.

Tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum skóla
Tímamót urðu í dag þegar fyrsta skóflustungan var tekin að nýjum Bíldudalsskóla, sem verður samrekinn leik- og grunnskóli ásamt frístund. Stór hópur bæjarbúa og annarra gesta kom til að verða vitni að stundinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vesturbyggð.

Óvíst hvort umsókn um hvalveiðileyfi verði afgreidd fyrir kosningar
Ekki liggur fyrir hvort umsókn Hvals hf. um leyfi til hvalveiða verði afgreitt fyrir alþingiskosningar en það er ekki útilokað. Bjarni Benediktsson starfandi matvælaráðherra segir málið vera í eðlilegu ferli innan ráðuneytisins og það verði að koma í ljós hvað verður.

Fóru í óboðað eftirlit vegna ábendinga um slæman aðbúnað leikskólabarna
Reykjavíkurborg hafa borist ábendingar um slæman aðbúnað barna og óviðunandi leikskólastarf á leikskólanum Lundi í Kleppsgörðum í Reykjavík. Starfsfólk borgarinnar fór í óboðað eftirlit í leikskólanum í dag og varði bróðurparti dagsins á leikskólanum. Foreldraráð sagðist í vor geta fullyrt að allir foreldrar væru ánægðir með börn sín á Lundi.

Reikna með fimmtán milljarða kostnaði vegna tjóns
Náttúruhamfaratrygging Íslands áætlar að kostnaður vegna jarðskjálftanna í grennd við Grindavík sem urðu tilefni til þess að bærinn var rýmdur þann 10. nóvember í fyrra muni að endingu nema á sextánda milljarð króna.

Herði kröfur um reynslu leiðsögumanna eftir banaslysið
Starfshópur sem var skipaður eftir banaslys á Breiðamerkurjökli í sumar leggur til að auknar kröfur verði gerðar um menntun og reynslu leiðsögumanna. Mörg fyrirtæki sem bjóða upp á jöklaferðir hafi ekki leiðsögumenn með nauðsynlega menntun.

Mengun meiri en búist var við frá bálstofu
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur tekið ákvörðun um endurskoðun á starfsleyfi bálstofu Kirkjugarða Reykjavíkur að Vesturhlíð 6. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að mengun af völdum starfseminnar hafi reynst meiri en búast mátti við þegar leyfi bálstofunnar var gefið út árið 2021.