Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. október 2026 13:39 Hjörtur J. Guðmundsson hefur starfað á Hagstofunni og á sama tíma látið að sér kveða í landsmálunum vegna ESB. Hirti J. Guðmundssyni alþjóðastjórnmálafræðingi hefur verið sagt upp störfum hjá samskiptadeild Hagstofunnar. Hagstofustjóri segir uppsögnin til komna vegna þröngs fjárhagsramma og hafi ekkert með skoðanir hans á Evrópusambandinu að gera eins og fylgjendur Hjartar á Facebook velti fyrir sér. Hún sjái á eftir góðum starfsmanni.
Hjörtur greinir frá uppsögninni í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook, Vísir hefur ekki náð af honum tali vegna málsins. Þar greinir hann frá því að fyrir viku síðan hafi honum fyrrivaralaust verið sagt upp störfum og gert að hætta strax þannig að hann gat ekki kvatt samstarfsfólk utan einnar samstarfskonu. „Skýringin sem ég fékk var aðhaldskrafa frá stjórnvöldum og tekið ítrekað fram að engar athugasemdir væru við mín störf. Kærar þakkir fyrir samstarfið og gangi ykkur vel í öllu. Mér þykir afar vænt um Hagstofuna og það góða fólk sem ég kynntist þar og fékk tækifæri til þess að starfa með. Takk fyrir mig!“ Arndís Hrafnkelsdóttir Hagstofustjóri segir í samtali við Vísi að ástæðuna megi rekja til þess að ríkisstofnanir vinni nú innan mjög þröngs fjárhagsramma. Nýbúið sé að gera skipulagsbreytingar í samskiptadeild og marka stefnu til framtíðar. „Og til að gera það hefur maður ekki önnur tök en að færa til og jafnvel láta einhvern fara til þess að fá inn nýja þekkingu. Þetta er í raun og veru bara svo einfalt og skýrist af þessum þrönga fjárhagsramma sem okkur er sniðinn, þetta er ekki hagræðing í þeirri merkingu að við vorum búin að draga saman, erum búin að framkvæma þetta og starfsfólk er tuttugu prósent færra en við vorum áður,“ segir Hrafnhildur. Ekki hafi fleiri verið látnir fara en Hjörtur. Hjörtur hefur verið einn ötulasti andstæðingur inngöngu Íslands í Evrópusambandið um árabil. Hann hefur skrifað hundruð greina um málið og var fyrirferðarmikill í kosningabaráttunni fyrir 29. ágúst. Hann var meðal gesta í Pallborði á Vísi í sumar vegna þessa. Vegna þessa ber á þeim kenningum í athugasemdakerfi við færsluna hans að honum hafi verið sagt upp vegna skoðana sinna á ESB. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor emeritus segist vera þess fullviss að ástæðan sé einmitt sú. „Auðvitað var Hirti sagt upp vegna hinnar miklu og góðu baráttu hans utan starfs gegn tillögunni um að hefja á ný aðildarviðræður að ESB. Eins og hann sagði sjálfur, voru ekki gerðar neinar athugasemdir við frammistöðu hans í starfi. Þessu verður að mótmæla kröftuglega og krefjast þess, að uppsögnin verði dregin til baka. Nei-hreyfingin og þingmenn verða að taka til sinna ráða.“ Arndís segir af og frá að þetta eigi við rök að styðjast. „Ég get fullvissað þig um það að það hefur ekkert með málið að gera. Ég geri ráð fyrir því að á vinnustað eins og á Hagstofunni sé fólk með allskonar skoðanir og það er mjög mikill skilningur fyrir því og fyrst og fremst hef ég ekki heimild til að láta það vega nokkuð og ég hef allt gott um Hjört að segja.“
Vinnumarkaður Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Sjá meira