
Innlent

Ákærð fyrir að draga barn af leikvelli og upp tröppur
Kona hefur verið ákærð fyrir ólögmæta nauðung og barnaverndarlagabrot fyrir að veitast með ofbeldi gagnvart dreng í Reykjavík þann 30. maí 2020.

„Það gildir ekki það sama um Jón og séra Jón“
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur bæst í hóp þeirra sem gagnrýna Ragnar Þór Ingólfsson fyrir að ætla að sitja áfram sem formaður VR á sama tíma og hann verður oddviti Flokks fólksins í öðru Reykjavíkurkjördæmanna.

Vill setja á fót móttökuskóla fyrir börn af erlendum uppruna
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segist sannfærð um að „almennilegir og vel skipulagðir“ móttökuskólar fyrir börn af erlendum uppruna gætu skipt sköpum í því að leysa úr vanda grunnskólanna.

Minni háttar líkamsárás og konu ekið heim
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt en þrír gista fangaklefa nú í morgunsárið.

Tekur synjun um dvalarleyfi af æðruleysi
Sýrlendingur sem nýlega var sendur til síns heima eftir synjun um dvalarleyfi vonast til að koma aftur til Íslands einn daginn. Hann varð á augnabliki vaktstjóri hjá Te & kaffi og segist um fram allt vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

Leikskóla lokað vegna E.coli sýkingar
Leikskólanum Mánagarði í Reykjavík hefur verið lokað samkvæmt tilmælum sóttvarnarlæknis vegna alvarlegrar E.coli sýkingar. Þetta herma heimildir fréttastofu.

„Flókin staða“ í kjaradeilum kennara
Samband íslenskra sveitarfélaga telur rétt að gefa kennurum færi á að bæta kjör sín með því að auka kennsluskyldu. Fundi í kjaradeildu Kennarasambandsins og sveitarfélaga var aflýst í morgun þar sem beðið er niðurstöðu félagsdóms um lögmæti verkfallsboðunar í fyrramálið.

Stuðningslán upp á allt að 49 milljónir króna
Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um stuðningslán við atvinnurekendur í Grindavík. Markmið laganna eru að viðhalda atvinnustarfsemi í bænum eða aðstoða resktraraaðila við að byggja upp starfsemi annars staðar á landinu.

„Það varð algjör sprenging“
Yfirgnæfandi meirihluti umsækjenda um ný skilríki hafa óskað eftir að sækja þau í Hagkaup í Skeifunni eftir að opnað var á þann möguleika í gær. Kostnaður Þjóðskrár vegna þjónustusamnings við verslunina nemur kostnaði við eitt stöðugildi og þurfti verkefnið ekki að fara í útboð.

Guðmundur Hrafn leiðir sósíalista í Norðvesturkjördæmi
Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi, mun leiða lista sósíalista í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar.

Kennarar ættu að koma sér úr hlutverki fórnarlamba
Aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla segir kennara ekki þurfa að fara í vörn vegna umræðu um menntakerfið undanfarin misseri, enda séu gallar í menntakerfinu ekki á ábyrgð kennara heldur sveitarfélaga. Aftur á móti ættu þeir að koma sér úr hlutverki fórnarlamba og taka stjórnina í umræðunni.

Óttast ekki brotthvarf reynslumikilla þingmanna
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra óttast ekki brotthvarf reynslumikilla þingmanna Sjálfstæðisflokksins og segir endurnýjun eðlilegan hluta af aðdraganda kosninga.

Flokkar sem sitji hjá séu ekki í stöðu til að setja skilyrði
Leiðtogar ríkisstjórnarinnar eru bjartsýnir á að þingið nái að afgreiða fjárlög fyrir miðjan næsta mánuð. Forsætisráðherra segir að þeir flokkar sem ætli sér að sitja hjá við afgreiðslu málsins séu ekki í neinni stöðu til að setja skilyrði.

„Össur Skarphéðinsson, líttu þér nær“
Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur svarað Össuri Skarphéðinssyni fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar vegna ummæla hans um að hún væri valdaspilltur leiðtogi. Hún segir hann ekkert vita um innra starf flokksins og ummæli hans eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.

Sárnar umræðan síðustu daga
Formanni Kennarafélags Mosfellsbæjar, Seltjarnarness og Kópavogs sárnar málflutning síðustu daga og umræða um úttektir Viðskiptaráðs og sveitarfélaganna. Mennta og barnamálaráðherra segir tímabært að meta störf kennara að verðleikum.

Þau leiða Vinstri græn í Norðvesturkjördæmi
Uppstillinganefnd Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi hefur kynnt framboðslista fyrir komandi Alþingiskosningarnar. Listann leiðir Álfhildur Leifsdóttir, oddviti VG í Skagafirði. Bjarki Hjörleifsson frá Stykkishólmi er í öðru sæti og Ísfirðingurinn Sigríður Gísladóttir í þriðja.

Sviptingar hjá Pírötum, sárir kennarar og óvenjuleg verðhækkun
Línur eru farnar að skýrast í framboðsmálum flokkanna fyrir kosningar og brátt fer að verða ljóst hverjir munu berjast um sæti á Alþingi Íslendinga. Sviptingar eru á lista Pírata sem kynntu niðurstöður prófkjörs síðdegis í dag. Við verðum í beinni frá prófkjörsfögnuði Pírata og heyrum frambjóðendum.

Læstu sig á kvennasalerni í tvígang og neituðu að fara
Tveir menn, sem hvorki halda heimili né hafa atvinnu, læstu sig inni á kvennasalerni verslunar í miðborginni í tvær klukkustundir og neituðu að fara þaðan þrátt fyrir beiðnir starfsmanna.

Neðri óvissumörkum náð í byrjun nóvember
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðum hraða og síðustu vikur. Jarðskjálftavirkni hefur aukist lítillega síðustu daga og búast má við að neðri óvissumörkum á rúmmáli kviku verði náð í byrjun nóvember.

„Ég átti ekki von á fyrsta sæti“
Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata hlaut flest atkvæði í prófkjöri flokksins til lista í Reykjavíkurkjördæmunum. Björn Leví Gunnarsson hlaut næstflest atkvæði og munu þau tvö því leiða lista í kjördæmumum tveimur.

Einn enn í haldi vegna Elko-málsins
Einn er enn í haldi vegna þjófnaðar í verslunum Elko sem voru framin að kvöldi til og um nótt fyrir um mánuði síðan. Enn á eftir að taka ákvörðun um áframhaldandi gæsluvarðhald á hendur honum.

Skorið úr um lögmæti verkfalla í fyrramálið
Félagsdómur kveður upp dóm í máli Sambands íslenskra sveitarfélaga á hendur Kennarasambandi Íslands í fyrramálið. SÍS telur verkfallsboðun kennara ólögmæta og ákvað að láta reyna á lögmæti þeirra fyrir félagsdómi.

Frægð ekki ávísun á frama í pólitík
Það að vera þjóðþekktur er ekki endilega ávísun á árangur í stjórnmálum segir almannatengill. Óvenju margir frægir hafa lýst áhuga á að komast á Alþingi og enn bætist í hópinn.

Samþykkja verkfall í Garðaskóla
Verkfall hefur verið samþykkt í Garðaskóla í Garðabæ með öllum greiddum atkvæðum. Þar með hafa verkfallsaðgerðir verið samþykktar í ellefu skólum; fjórum grunnskólum, fjórum leikskólum, tveimur framhaldsskólum og einum tónlistarskóla.

Rafmagnslaust á Húsavík fram á kvöld
Rafmagnslaust er í stórum hluta Húsavíkur og gert er ráð fyrir að rafmagnsleysið vari til 22:30 í kvöld.

Össur segir Ingu valdspilltan leiðtoga
Össur Skarphéðinsson fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar kallar Ingu Sæland, formann Flokks flokksins, valdspilltan leiðtoga og segir hegðun hennar með ólíkindum á 21. öldinni. Tilefnið er að forysta flokksins hafnaði Jakobi Frímanni Magnússyni og Tómasi A. Tómassyni í aðdraganda Alþingiskosninganna 30. nóvember.

Ekki heppilegt ef verkalýðshreyfingin tæmist inn á Alþingi
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í framboð til Alþingis að þessu sinni. Komið hafi verið að máli við hann, eins og raunar fyrir allar alþingiskosningar síðasta áratuginn, en hann hafi ákveðið eftir langa yfirlegu að kröftum hans sé betur varið í verkalýðshreyfingunni.

Býður sig fram en reiknar ekki með sæti á þingi
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gefur kost á sér í þriðja sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, fyrir alþingiskosningar þann 30. nóvember.

Frægir flykkjast í framboð
Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðuna á framboðsmálum flokkanna sem keppast nú við að raða á lista sína.

Eva Dögg flytur sig um kjördæmi og Paola í þriðja sætið
Uppstillinganefnd Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi mun leggja til á kjördæmisráðsþingi í Kópavogi í kvöld að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þingmaður og varaformaður Vinstri grænna, leiði lista VG í kjördæminu.