Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Freyja Þórisdóttir skrifar 14. mars 2026 15:11 Sveinn Ásgeir Jónsson sætti sig ekki við að borga rúmar sjö þúsund krónur fyrir eina pítsu. Vísir/Samsett Sveinn Ásgeir Jónsson tók málin í eigin hendur á föstudaginn þegar hann var ranglega rukkaður um vangreiðslugjald. Hann kynnti sér málið, lagðist yfir gögn frá Neytendastofu, samningalög og innheimtulög og skrifaði andmælabréf með vísun til hæstaréttar og sendi á Green Parking sem felldi kröfuna niður á innan við hálftíma.
Þetta segir Sveinn í samtali við fréttastofu. Hann lenti heldur illa í því síðasta föstudag þegar hann fékk rukkun sem hljóðaði upp á 5.750 krónur í kjölfar þess sem átti að vera huggulegt pítsukvöld heima fyrir. Rukkunin hafði þó ekkert með pítsuna að gera heldur var um að ræða vangreiðslugjald frá fyrirtækinu Green Parking. Betur má ef duga skal Á vef þeirra segir „Við teljum að bílastæði eigi að vera vel merkt um gjaldskyldu og með auðvelt aðgengi fyrir þig, eiganda ökutækisins.“ En að mati Sveins mætti betur ef duga skyldi. Hann hafði stokkið inn á Domino's í Nóatúni til að sækja sér pítsu en það tók ekki nema nokkrar mínútur að hans sögn. „Daginn eftir birtist 5.750 kr. reikningur frá Green Parking í heimabankanum mínum. Engin viðvörun. Engin tilkynning. Ekkert samtal. Bara krafa,“ segir Sveinn í færslu á Facebook. Merkingar villandi Hann segir í samtali við blaðamann að skilti á svæðinu séu mjög villandi en þar eru fyrstu 45 mínúturnar auglýstar fríar. „Fyrstu 45 mínúturnar eru auglýstar „gjaldfrjálsar“ — en aðeins ef þú hleður niður appi, stofnar aðgang, skráir kreditkort og skráir bílinn rafrænt VIÐ KOMU. Gerir þú það ekki? 5.500 kr. sekt vegna nokkurra mínútna dvalar,“ segir Sveinn á Facebook. Sveinn varði einungis nokkrum mínútum á bílastæðinu við Domino's í Nóatúni.Ja.is Hann segir fyrirtæki nýta sér „lagalega grátt svæði“ og að þau viti að þetta megi ekki en nýti sér hræðslu fólks við að ganga hart að þeim. Sveinn hófst um leið handa við að rannsaka málið og skrifaði upp póst sem hann sendi bæði á Green Parking í tölvupósti og í gegnum kerfið þeirra. Allt gert til að fækka andmælendum „Þetta er í raun „complaint funnel“ — trekt sem er hönnuð til að fækka andmælum eins og hægt er. Fyrst sjálfvirkt svar sem segir „farðu annað“, svo 200 stafa takmörkun, svo ekki augljós viðhengishnappur. Hvert skref dregur úr líkum á að fólk klári andmælin,“ segir Sveinn um vefkerfi Green Parking. Allt sé gert til að fá neytendur til að játa sig sigraða og sleppa því einfaldlega að leiða málið til lykta. En Sveinn gafst ekki svo auðveldlega upp og fékk hann kröfuna niðurfellda á innan við þrjátíu mínútum. „Ég skrifaði andmælabréf. Vísaði í Hæstarétt, Neytendastofu, samningalög og innheimtulög. Skráði það formlega í kerfi þeirra,“ skrifar Sveinn í færslunni. Tók ekki nema hálftíma Úr því varð að krafan var felld niður á tæpum hálftíma. Eins og sjá má var svarið sem Sveinn fékk til baka í styttra lagi. „Af hverju? Af því að þeir vita að þetta stenst ekki. Þetta er tekjuöflun sem treystir á vanþekkingu fólks. Um leið og einhver sýnir tennurnar og krefst gagna er leikurinn búinn,“ skrifar Sveinn á Facebok. Svar Green Parking við andmælabréfi Sveins Ásgeirs Jónssonar.Aðsend „Það sem er líka áhugavert við þetta er að það virkar eins og svarið sé ekki skrifað af þjónustufulltrúa heldur af róbot. Það var ekkert „við skoðum málið“ heldur bara hætt við,“ bætir hann við í samtali við blaðamann. Sveinn nefnir að það sé grunsamlegt að ekki sé gerð tilraun til að ræða málið frekar heldur sé krafan látin niður falla um leið og komið er í gegnum kerfið. Hann vill sjá breytingar í þessum efnum og segir óskiljanlegt að neytendur skuli þurfa að njóta vafans umfram fyrirtæki.
Neytendur Bílastæði Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Fleiri fréttir Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Sjá meira