„Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. mars 2026 12:53 Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri í Súðavík. vísir/vilhelm Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur.
Viðvarandi hætta á snjóflóðum hefur nú verið á norðanverðum Vestfjörðum síðan á miðvikudag. Óvissustig er nú í gildi þar eftir hættustig síðustu daga. Óvissustig er einnig í gildi í Eyjafirði innanverðum en á Tröllaskaga utanverðum er búið að færa óvissustig yfir á hættustig. Búið er að loka umferð um Siglufjarðarveg vegna snjóflóðahættu en stórt snjóflóð féll þar í nótt. Gular veðurviðvaranir taka gildi á svæðinu í nótt en ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að fylgst sé grannt með stöðunni. Búið er að opna umferð um Súðavíkurhlíð og Flateyrarveg eftir að þeim var lokað í vikunni. Þó nokkur snjóflóð féllu þar í vikunni en í gær ræddi fréttastofa við mann sem óttaðist um líf sitt þegar að lítið snjóflóð hafnaði á ökutæki hans með þeim afleiðingum að hann fór næstum út af veginum og festist. Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir íbúa löngu vera orðna vana hættunni á svæðinu. „Við erum alltof vön þessu. Ég held að það sé nákvæmlega málið. Ég var að ræða þetta við heimamann sem er búinn að vera hérna lengur en ég og þetta er orðið bara asnalegt að finnast þetta allt í lagi. Svo heldur lífið áfram. Álftafjarðargöng sem myndu tryggja öryggi vegfarenda á leið á milli Ísafjarðar og Súðavíkur eru í öðru til þriðja sæti á samgönguáætlun. Þau hafa verið inn og út úr samgönguáætlun til lengri tíma. Bragi biðlar til stjórnvalda að hörfa ekki frá þeim áformum. „Mér er alveg fullkunnugt um það að það er mikil þörf víða um landið þannig að ég er þakklátur fyrir það sem er. Ég held að við sem þjóð ættum bara að byrja hvar sem það er byrjað. Þetta eru fjárfestingar ekki bara fjárútlát. Það væri nú áhugavert fyrir þá sem koma að fjölmiðlum að skoða hlíðina eins og hún lítur út í dag. Ég held að það hafi komið snjóflóð úr öllum farvegum sem voru í boði.“ Því fyrr sem ráðist er í framkvæmdir því betra en hann segir mikla lukku að ekki hafi orðið alvarlegt slys á veginum. „Þetta er skrítinn veruleiki, að þetta sé hluti af lífinu, að það sé ekki alltaf opið. Það er kannski ekki versti parturinn. Hins vegar er það náttúrulega eins og Davíð Pierre fékk nú að sjá hressilega. Það er undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna í tengslum við þessar samgöngutruflanir. Ég veit ekki hvað vakir yfir okkur hérna. Það er endalaust búið að gerast eitthvað næstum því og með skakkföllum en það verður ekki til eilífðar. Ef þessi vegur verður ekki aflagður þá verður alvarlegt slys þarna. Það er ekki nokkur vafi.“
Veður Snjóflóð á Íslandi Umferðaröryggi Súðavíkurhreppur Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira