Innlent
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 334 ›
Sjö ára dómur fyrir að stinga tvo: Hittu árásarmanninn í fyrsta skipti þessa nýársnótt Dimitar Atanasov Koychev, karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að stinga tvo menn síðastliðna nýársnótt. Innlent 7.7.2025 14:36
Vill vindorkuver í Garpsdal og breytir tillögu stjórnar Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur lagt til að virkjunarkosturinn Garpsdalur í Reykhólahreppi verði settur í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Með því breytir hann tillögu verkefnisstjórnar verndar- og orkunýtingaáætlunar og þetta er í fyrsta skipti sem ráðherra leggur til þá breytingu á tillögu verkefnisstjórnar að virkjunarkostur fari í nýtingarflokk. Innlent 7.7.2025 14:03
Tugir með magapínu eftir þríþraut við Laugarvatn Margir keppendur sem tóku þátt í þríþraut við Laugarvatn á laugardag fengu í magann að keppninni lokinni. Innlent 7.7.2025 13:38
„Við erum með háskólakerfi sem er fjármagnað undir OECD meðaltali“ Háskólaráðherra segir ósk opinberra háskóla um hækkun skrásetningagjalda nemenda ekki koma á óvart. Hann segir íslenskt háskólakerfi vera fjármagnað undir meðaltali OECD og hafi verið lengi. Innlent 7.7.2025 13:01
Rembihnútur á þinginu en örþrifaráð ekki til umræðu Frumvarp um veiðigjöld er eitt á dagskrá Alþingis í dag og búast má við löngum og miklum umræðum. Þingflokksformenn mættu til vikulegs fundar með forseta þingsins í morgun og enn eru þinglokasamningar ekki í höfn. Þingflokksformenn segja rembihnút kominn á viðræðurnar sem sigldu í strand um helgina. Innlent 7.7.2025 12:22
Ákvörðun saksóknara sendi undarleg skilaboð Talskona Stígamóta segir það furðuleg skilaboð að ríkissaksóknari staðfesti ákvörðun um að ákæra ekki menn sem höfðu samræði við fatlaða konu fyrir tilstilli yfirmanns hennar. Mál sem þetta grafi undan trausti til réttarkerfisins. Innlent 7.7.2025 12:13
Þinglok ekki í augnsýn og háskólarnir undirfjármagnaðir Frumvarp um veiðigjöld er eitt á dagskrá Alþingis í dag og búast má við löngum og miklum umræðum. Þingflokksformenn mættu til vikulegs fundar með forseta þingsins í morgun en þinglokasamningar eru enn ekki í höfn. Innlent 7.7.2025 11:37
Grunaðir um að stinga mann í rassinn að tilefnislausu Lögregla leitar enn þriggja manna sem, að því er virðist að tilefnislausu, réðust á mann í miðborginni og stungu í rassinn. Innlent 7.7.2025 11:36
Ný kort sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi Rétt rúmt ár er nú þar til almyrkvi frá sólu mun sjást á íslandi í fyrsta sinn í 72 ár. Almyrkvinn verður 12. ágúst og hafa nú verið birt kort af Íslandi sem sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi og hvar gott verður að vera til að sjá hann. Kortin eru gerð af Sævari Helga Bragasyni og Andreas Dill. Innlent 7.7.2025 11:27
Bandarískur kjarnorkukafbátur í heimsókn Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur verður í þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag og næstu daga þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn. Innlent 7.7.2025 10:33
Formenn þingflokka halda spilunum þétt að sér Þinglok eru hvergi í augsýn og þingflokksformenn halda spilunum þétt að sér. Þeir funda með forseta Alþingis áður en þingfundur hefst klukkan tíu en eina málið á dagskrá er veiðigjaldafrumvarpið. Innlent 7.7.2025 08:47
Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Skjálfti af stærðinni 3,4 mældist snemma í morgun um 11,1 kílómetra austsuðaustur af Árnesi, nálægt Leirubakka í Landsveit. Skjálftinn mældist þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í fimm. Innlent 7.7.2025 07:35
Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun Héraðssaksóknara um að ákæra ekki fjóra menn sem Sigurjón Ólafsson, verslunarmaður sem dæmdur var fyrir gróf kynferðisbrot gegn fatlaðri konu, fékk til að hafa samræði við konuna. Innlent 7.7.2025 06:32
Hiti nær 22 stigum fyrir austan Nú í morgunsárið er hæðarhryggur yfir landinu. Hægur vindur um mest allt land og yfirleitt bjart. Á Höfuðborgarsvæðinu eru enn þokuský á sveimi, en nú þegar sólin byrjar að skína hverfur þar fljótlega á brott. Hiti nær allt að 22 stigum og hlýjast er austanlands. Innlent 7.7.2025 06:23
Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Lögreglunni á lögreglustöð eitt, sem sinnir verkefnum í mið- og vesturhluta borgarinnar, barst í gær tilkynning um óvelkominn aðila á öldrunarheimili. Hann var fjarlægður þaðan af lögreglumönnum. Innlent 7.7.2025 06:17
Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Stórsöngvarann Geir Ólafsson rak í rogastans þegar hann las viðtal við Bubba Morthens á Vísi, þar sem Bubbi lýsti yfir miklum áhyggjum af innreið gervigreindar í tónlistarbransann. Geir hefur aðra sýn á hlutina og segir að ekki megi tala gervigreindina niður með þessum hætti, hún muni aldrei taka sköpunargáfuna frá fólki. Innlent 7.7.2025 00:04
Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Unnið er að umfangsmiklum breytingum við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls í Árbænum. Árbæingur segir ljóst að eftir framkvæmdirnar verði umferðartafir á svæðinu gríðarlegar og segir fleiri íbúa í hverfinu mjög áhyggjufulla. Innlent 6.7.2025 23:29
Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að hraðakstur hafi verið að aukast undanfarin ár. Hann hafi stöðvað marga ökumenn sem voru að keyra of hratt um helgina, en sem betur fer hafi ekki orðið alvarleg slys. Innlent 6.7.2025 22:31
Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Metfjöldi barna bíður nú eftir ADHD- eða einhverfugreiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna eða nærri tvö þúsund og fimm hundruð börn. Aldrei hafa jafn margar tilvísanir borist og á þessu ári. Yfirlæknir segir í skoðun að vísa börnum í meira mæli frá. Innlent 6.7.2025 21:02
Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Liturinn á hestinum Prins Greifa í Vestur Landeyjum vekur alltaf mikla athygli en hann er Brún ýruskjóttur varblesóttur og eini hesturinn hér á landi með þannig litasamsetningu. Innlent 6.7.2025 20:07
Bíll í ljósum logum á Skaganum Bíll stóð í ljósum logum fyrir utan blokk við Holtsflöt á Akranesi um sexleytið í kvöld. Búið er að ráða niðurlögum eldsins en bíllinn er ónýtur. Innlent 6.7.2025 18:48
Vatnslögn í sundur í Smáralind Slökkviliðið var kallað út á tíunda tímanum í morgun vegna vatnsleka í Smáralind, og voru tveir dælubílar sendir á vettvang. Umsjónarmaður Smáralindar segir að ekkert stórtjón hafi orðið, allar verslanir hafi opnað í morgun nema ein. Innlent 6.7.2025 18:27
Aldrei fleiri börn á biðlista og útrás í Kína Metfjöldi barna bíður eftir ADHD- eða einhverfugreiningu hjá Geðheilsumiðstöð barna og hafa aldrei jafn margar tilvísanir borist og á árinu. Til skoðunar er að vísa börnum í meira máli frá. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum. Innlent 6.7.2025 18:11
Á hundrað og þrjátíu á sextíu götu Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum í dag vegna hraðaksturs í Hlíðunum í Reykjavík, en hann ók á 132 kílómetra hraða á götu þar sem hámarkshraði er sextíu. Innlent 6.7.2025 17:40
Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir annað kvöld í Faxaflóa og Breiðafirði vegna mikils vinds sem getur verið hættulegur ökumönnum húsbíla. Innlent 6.7.2025 15:34
Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Bannað er að leika sér með bolta á sparkvelli Hlíðaskóla eftir klukkan tíu, samkvæmt skilti sem búið er að koma fyrir á skólalóðinni. Útivistartími unglinga nær þó til miðnættis. Innlent 6.7.2025 14:15
Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Dómsmálaráðherra og Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um fjárframlag til uppbyggingar nýrrar líkbrennslu í Gufuneskirkjugarði. Ríkissjóður leggur fram 80 milljónir króna árlega í tólf ár til að standa undir stofnkostnaði nýrrar líkbrennslu. Innlent 6.7.2025 13:57
Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Þolandi stunguárásarinnar við Aðalstræti í miðbæ Reykjavíkur í gær hlaut minniháttar áverka. Lögreglan fann ekki gerendurna en málið er komið á borð rannsóknardeildar. Innlent 6.7.2025 13:36
Nítján ára ferðamaður fannst látinn Nítján ára ferðamaður fannst látinn við Svínafell síðastliðið föstudagskvöld. Hópur ferðamanna óskaði eftir aðstoðar lögreglunnar við leit að manninum unga sem hafði lagt af stað í göngu og ekki komið til baka innan eðlilegra tímamarka. Innlent 6.7.2025 13:14
Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Rabarbari og allt það helsta í kringum þá plöntu verður í aðalhlutverk á Árbæjarsafni í dag því þar fer fram fræðsla og verklega kennsla í flestu því sem kemur að því að búa til rabarbaragarð, hugsa um garðinn, taka upp rabarbara og að útbúa rabarbarasultu. Innlent 6.7.2025 12:21