Segir flugeldasöluna ekki í hættu Birgir Olgeirsson skrifar 22. október 2026 17:00 Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir flugeldasölu sveitarinnar ekki í hættu um næstu áramót. Fyrirhugað fjölbýlishús í næsta nágrenni sé enn óbyggt. Vísir Flugeldasala Björgunarsveitar Hafnarfjarðar er ekki í hættu um næstu áramót og ólíklegt að hún verði það á næsta ári, að sögn bæjarstjóra. Hann hyggst funda með sveitinni í næstu viku og fara yfir húsnæðisþörf hennar og kostnað við uppbyggingu.
Björgunarsveitin hefur óskað eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu við húsnæði hennar að Hvaleyrarbraut 32. Sveitin segir fyrirhugaða íbúðablokk í næsta nágrenni koma í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í núverandi aðstöðu vegna fjarlægðarkrafna. Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir fjölbýlishúsið ekki risið og því sé svigrúm til að vinna að lausn. „Þetta er ekki dagaspursmál,“ segir Þórður. Vill skoða stærð og kostnað Þórður segir næsta skref að setjast niður með björgunarsveitinni. Greina þurfi hversu stórt rými hún þurfi, hvernig það verði útfært og hvað framkvæmdin kosti. „Við förum bara í samtal við þá um þarfagreining,“ segir hann. Sveitin hefur lagt fram grófa frumkostnaðaráætlun upp á 123,1 milljón króna með óvissuálagi. Tillaga hennar gerir ráð fyrir steinsteyptri viðbyggingu sem tengist núverandi húsnæði og nýtist einnig í starfsemi sveitarinnar utan flugeldasölutímans. Sveitin hyggst sjálf greiða frágang innanhúss. Björgunarsveit Hafnarfjarðar óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu við húsnæðið að Hvaleyrarbraut. Flugeldasalan skilar 80 til 85 prósentum þess fjár sem sveitin aflar árlega.Vísir/Anton Brink Þórður kveðst hafa heyrt að fyrri bæjarfulltrúar hafi tekið jákvætt í að aðstoða sveitina við uppbygginguna. Hann eigi eftir að fara nánar yfir þau vilyrði og ræða formlega við forsvarsmenn hennar. Á fundi bæjarráðs 15. október var bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. Flugeldasalan langstærsta fjáröflunin Í bréfi björgunarsveitarinnar til bæjarráðs segir að flugeldasalan skili 80 til 85 prósentum þess fjár sem sveitin aflar árlega. Þar er vísað til kröfu um sextíu metra fjarlægð frá íbúðarhúsnæði og óskað skjótra viðbragða svo ekki verði rof á aðalfjáröflun sveitarinnar. Þórður segir að sér hafi verið kynnt að núverandi aðstaða samræmist gildandi íslenskum reglum en horft sé til þess að kröfur geti orðið strangari. Hann telji því tíma til að fara yfir þarfir sveitarinnar og finna viðunandi lausn áður en fyrirhuguð íbúðabygging hafi áhrif á flugeldasöluna.
Björgunarsveitir Hafnarfjörður Skipulagsmál Flugeldar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira