Innlent

Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir
Hjálparstofnun Kirkjunnar safnaði um tvö hundruð páskaeggjum handa börnum efnaminni foreldra. Félagsráðgjafi segir margar fjölskyldur þurfa aðstoð ár eftir ár þar sem þær séu fastar í fátækt.

Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu
Ásthildur Lóa Þórsdóttir og eiginmaður hennar hafa sett hús sitt við Háhæð í Garðabæ á sölu. Þau keyptu húsið á 55,4 milljónir árið 2007, misstu það þegar húsið var selt á uppboði 2017 en keyptu það aftur 2019 af Arion banka á 55,5 milljónir. Ásett verð hússins er nú 174,9 milljónir.

Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi
Lögmaður gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að hafa farið með rangt mál í tilkynningu sinni um skipan starfshóps sem yfirfara á reglur um dvalarleyfi á Íslandi. Hann segir þegar til staðar ákvæði í lögum um dvalarleyfi mansalsfórnarlamba, en þau séu ekki nýtt.

Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan
Sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra segir vopnahlé sem boðað var milli Rússlands og Úkraínu yfir páskana litlu máli skipta. Ásakanir hafa gengið milli aðila um brot á vopnahléinu.

Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti
Þingmaður Viðreisnar vill að nýr barnamálaráðherra skoði það að alvöru að reka aftur meðferðarheimili fyrir börn að Háholti í Skagafirði. Skrítið sé að nýta húsnæðið ekki á meðan málaflokkurinn er á jafnslæmum stað og hann er núna.

Maðurinn er laus úr haldi
Maðurinn sem var handtekinn í morgun í tengslum við rannsókn lögreglu á áverkum konu í heimahúsi í Árnessýslu er laus úr haldi. Lögregla telur að um slys hafi verið að ræða.

„Við megum mótmæla því að verið sé að drepa saklaust fólk“
Biskup Íslands lagði áherslu á kærleika og mikilvægi þess að taka afstöðu með börnum og hinum saklausu. Rauði þráður ávarpsins var að sagan hafi engan endi þar sem henni sé ekki lokið.

Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir
Kópavogsbær hefur hætt við brattar hækkanir á gjaldskrá vegna sumarnámskeiða bæjarins. Bæjarstjórinn segist hafa rætt við foreldra í bænum um málið og ákveðið að leggja fram nýja tillögu á fundi bæjarráðs.

Einn í haldi lögreglu vegna konu með skerta meðvitund
Einn er í haldi lögreglunnar á Suðurlandi eftir að tilkynning barst um konu með skerta meðvitund í heimahúsi í nágrenni við Selfoss. Maðurinn sem tilkynnti um áverka hennar var handtekinn og tengist henni fjölskylduböndum.

Falla frá gjaldskrárhækkunum og árásir á tímum vopnahlés
Úkraínuforseti segir Rússa hafa gert fjölda árása frá því svokallað páskavopnahlé hófst, en Vladimír Pútín tilkynnti um það í gær. Sérfræðingur í alþjóðamálum segir vopnahléið engu skipta, og furðar sig á framgöngu Bandaríkjanna gagnvart Úkraínu.

Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta
„Þetta var ekki ár vonbrigða heldur ár endurfæðinga,“ segir Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, í viðtali í Sprengisandi.

Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss
Lögreglan er með mikið viðbragð í nágrenni við Selfoss. Lögreglubílar og sjúkrabílar hafa verið sendir á vettvang.

Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp undir forystu Vegagerðarinnar til að kanna kosti þess og galla að skilgreina vegina sem mynda hringleið um Vestfirði sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Þetta er í samræmi við tillögu nefndar forsætisráðherra um eflingu byggðar á Ströndum.

Ferill fyrrum forsætisráðherra og verðlaunaður sagnfræðingur í Sprengisandi
Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu. Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir um stjórnmál og sagnfræði við góða gesti.

Rólegheitaveður á páskadag
Víðáttumikill hæðarhryggur norður í hafi teygir sig yfir landið og gefur yfirleitt mjög hægan vind á páskadag. Lægð suðvestur af landinu veldur þó austankalda eða -strekking allra syðst.

Ökumaður undir aldri í bílaeltingarleik við lögreglu
Lögregla hóf eftirför á eftir bíl sem ekið var talsvert yfir hámarkshraða á Hafnarfjarðarvegi í nótt. Þegar lögreglumenn gáfu ökumanni stöðvunarmerki jók hann ferðina og reyndi að stinga lögreglu af. Ökumaðurinn var handtekinn þegar hann stöðvaði loks bílinn og reyndist undir aldri.

Mótmæla brottvísun Oscars
Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan dómsmálaráðuneytið vegna þess að til stendur að vísa hinum sautján ára Oscar Anders Bocanegra Florez úr landi. Honum hefur áður verið vísað úr landi.

Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“
Bæjarfulltrúi í Kópavogi segir miklar hækkanir á gjaldskrá vegna sumarnámskeiða bæjarins vera fráleitar. Það sé dapurlegt að ungmennaráð fái ekki að ræða hækkanirnar.

Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“
Utanríkisráðherra segir páskavopnahlé í átökum Rússa við Úkraínu óvænt og jákvætt skref en öllum ákvörðunum Pútín beri að taka með fyrirvara. Eitthvað meira liggi að baki ákvörðuninni en þrá eftir friði. Tortryggnin sé mikil þegar kemur að einræðisherra á borð við Pútín.

Engin tengsl milli þolenda og gerenda
Karl og kona sem réðust á tvo í Ísafjarðarbæ virðast ekki hafa þekkt þolendurna að sögn yfirlögregluþjóns á Vestfjörðum. Hann segir ekkert benda til þess að um hatursglæp hafi verið að ræða. Frekari yfirheyrslur eru fyrirhugaðar á næstu dögum.

Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja
Utanríkisráðherra segir skiljanlegt að mikillar tortryggni gæti í herbúðum Úkraínumanna, um yfirlýsingar Rússlandsforseta um vopnahlé yfir páskana. Friður geti ekki komist á á forsendum Rússlands.

Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot, barnaverndarlagabrot og brot í nánu sambandi. Meint brot mannsins beindust samkvæmt ákæru bæði að barnsmóður hans og börnum þeirra. Hann er meðal annars ákærður fyrir að læsa konuna úti í snjóbyl og meina henni að hitta barn þeirra sem lá á sjúkrahúsi nema hún myndi sárbæna hann og biðja afsökunar.

Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna
Lögreglan á Húsavík handtók karlmann á þrítugsaldri sem hafði töluvert magn meintra ólöglegra fíkniefna í fórum sér.

Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu
Í gærmorgun hóf HS Orka að bora fyrstu djúpu rannsóknarborholu í Krýsuvík. Áætlunin er að afla sér ítarlegri þekkingu á jarðhitakerfinu með það að markmiði að framleiða heitt vatn til notkunar á höfuðborgarsvæðinu.

„Það er eitthvað við það að vera hérna“
Yfir tvö þúsund manns renndu sér niður brekkur Hlíðarfjalls í gær, og búist er við sama fjölda í dag. Rekstrarstjóri segir færið á barmi fullkomnunar. Það styttist í að skíðatímabilinu ljúki.

Koma strandaglópunum heim í kvöld
Leiguflugvél á vegum Play mun fara frá Barselóna klukkan 20:15 á staðartíma í kvöld. Hún á að fljúga með strandaglópa til Íslands.

Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum
Talskona Stígamóta segir áhyggjuefni ef hópnauðganamálum fari fjölgandi. Fjöldi mála komi aldrei upp á yfirborðið, meðal annars vegna þess að brotaþolar treysti ekki kerfinu.

Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim
Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi á dögunum ungan karlmann fyrir stunguárás. Maðurinn var ólögráða þegar brotið var framið að kvöldi til árið 2022 og var það niðurstaða Héraðsdóms að fresta refsingu hans og láta hana falla niður eftir tvö ár.

Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri
Talskona Stígamóta segir áhyggjuefni ef hópnauðganamálum fari fjölgandi. Fjöldi mála komi aldrei upp á yfirborðið, meðal annars vegna þess að brotaþolar treysti ekki kerfinu.

„Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“
Hátt í níutíu íslenskir piltar, þar af sjötíu undir lögaldri, eru fastir ásamt fylgdarliði á flugvellinum í Barselóna þessa stundina. Í hópnum eru allt niður í fjórtán ára börn og einhver enn þá yngri systkini. Drengirnir sem eru annars vegar Skagamenn og hins vegar Grindvíkingar voru í keppnisferð í fótbolta, að taka þátt í Daurada Cup í Salou. Pappírar sem gera fararstjórum kleift að ferðast með strákana renna út í dag.