Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Áróra L Davíðsdóttir skrifar 21. ágúst 2026 20:13 Jón Björn Hákonarson er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga SÝN Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir gjaldskrárhækkanir sveitarfélaganna ekki vera sökudólg vaxtahækkana. Launafólki hafi þó fjölgað í opinberri þjónustu sveitarfélaganna fyrr á árinu. Sveitarfélögin séu jafnframt reiðubúin að taka þátt í baráttu gegn verðbólgu og vandamálið verði ekki leyst nema með samvinnu.
Seðlabankinn beindi spjótum sínum að hinu opinbera við ákvörðun vaxtahækkunarinnar á miðvikudaginn. Seðlabankastjóri sagði aukna verðbólgu að miklu leyti skýrast af hækkun opinberra gjalda og að opinberum starfsmönnum hefði fjölgað. Bankinn hefur jafnframt varað við sjálfvirkum gjaldskrárhækkunum í takt við verðlag. Stýrivextir voru hækkaðir um fjórðung úr prósentustigi í á miðvikudag og eru nú átta prósent. Illa hefur gengið að draga úr verðbólgunni sem mældist 5,3 prósent í júlí. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagði í morgun að gjaldskrárhækkanir ríkisins sjáist ekki í tölum Hagstofunnar og Daði Már Kristófersson sagði að opinberum starfsmönnum ríkisins hefði ekki fjölgað og benti á sveitarfélögin. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir vel hafa gengið að standa við það markmið að hækka ekki gjaldskrár sem snerta fjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu umfram þrjú og hálft prósent. Hann geti ekki greint það að gjaldskrárhækkanir hafi valdið verðbólgu. „Sveitarfélögin gerðu betur en það ef við skoðum mælingarnar. Ég er ekki sammála Seðlabankastjóra þarna vegna þess að mörg sveitarfélög hafa stigið lengra, tekið til baka og sett sér markmið á þessu ári. Þannig ég get ekki greint að þetta sé það sem er að valda þessu,“ sagði Jón Björn í myndveri í kvöldfréttum Sýnar. Opinberum starfsmönnum fjölgað til að bregðast við biðlistum Fjölgun opinberra starfsmanna hafi legið fyrir en bregðast þurfti við biðlistum leikskóla og þjónustu sem snertir viðkvæma hópa samfélagsins. Starfsmönnum hafi fjölgað frá janúar til maí á þessu ári. „Sannarlega hefur þetta aukist hjá okkur af því við erum auðvitað með þessa mikilvægu nærþjónustu til að samfélagið okkar geti starfað. Og við höfum verið að bregðast við því.“ Munuð þið hvetja sveitarfélög til þess að halda aftur af gjaldskrárhækkunum í núna haust? „Við sveitarfélögin höfum verið mjög skýr og ég hef fundið það hjá sveitarstjórnarmönnum um allt land að við viljum að þetta sé sameiginlegt verkefni. Þetta er stórt sameiginlegt verkefni stjórnvalda, vinnumarkaðarins og atvinnulífsins hvernig við spyrnum við og stígum til baka. Við erum ávallt tilbúin til að stíga sáttarskref í þeim efnum. Þetta snertir okkur öll. Þetta verður ekki leyst nema með samvinnu.“
Sveitarstjórnarmál Seðlabankinn Verðlag Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira