Innlent

Af­nema fyrir­huguð byggingarréttargjöld í Reykja­nes­bæ

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur mynda meirihluta bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur mynda meirihluta bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Facebook

Skipulagsráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að fella niður öll byggingargjöld á nýjar framkvæmdir. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir að ákvörðunin kunni að lækka kostnað við gerð 150 fermetra íbúahúsnæðis um rúmar fimm milljónir.

Gjöldin höfðu verið samþykkt af fyrri meirihluta, fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fóru í maí síðastliðnum, en voru ekki komin til framkvæmdar svo að ákvörðunin mun ekki hafa áhrif á fjárhag bæjarins, segir Vilhjálmur. 

Breytingin gildir fyrir uppbyggingu bæði í íbúabyggð og þegar kemur að uppbyggingu iðnaðar, verslunar og þjónustu. Upphæð gjaldanna átti að vera 35 þúsund krónur á fermetrann fyrir íbúahúsnæði en lægri fyrir atvinnuhúsnæði.

Vilhjálmur segir þetta að einhverju leyti viðbragð við stöðu á markaðnum og vonar að breytingin muni hafa jákvæð áhrif á kólnandi markað. Áhersla verður lögð á uppbyggingu sérbýlis, einbýlishúsa og parhúsa, og að halda kostnaði í skefjum.

„Við trúum því að þetta muni koma hreyfingu á úthlutun lóða, sérstaklega fyrir ungt fólk. Við viljum vera bær tækifæranna þar sem fólk getur fengið tækifæri til að eignast heimili á hagkvæmu verði,“ segir Vilhjálmur.

Aðgerðunum er ekki einungis ætlað að laða fólk til bæjarins heldur einnig atvinnulíf. Reykjanesbær mun halda sérstakt atvinnuþing þann 16. september næstkomandi.

Með aðgerðunum er hætt við fyrirhugaða skattahækkun en Vilhjálmur segir að hún muni á móti fjölga skattgreiðendum með því að auka við uppbyggingu í bænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×