Innlent
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 334 ›
Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Ökumaðurinn sem lögreglan stöðvaði för í gærkvöld var mældur á allt að 200 kílómetra hraða á klukkustund. Lögreglan stöðvaði för hans með því að kasta út naglamottu. För ökumannsins lauk þegar hann ók aftan á aðra bifreið á afrein að Breiðholtsbraut. Tvennt var í bílnum sem hann ók á og voru þau flutt á sjúkrahús með minniháttar áverka. Pilturinn var einnig fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka og bíður nú lögregla eftir að geta yfirheyrt hann. Innlent 18.5.2026 19:14
Hildur í beinni um þreifingar dagsins Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og ótvíræður sigurvegari kosninganna í borginni, fundaði í dag með oddvitum allra flokka sem náðu inn manni í borgarstjórn. Við ræðum við Hildi í beinni í kvöldfréttum og heyrum allt um fundarhöld dagsins. Þá mætir stjórnmálafræðingurinn Gunnar Sigurðarson í myndver og fer yfir kostina sem eru í stöðunni og bláu bylgjuna sem reið yfir landið á laugardag. Innlent 18.5.2026 18:07
Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata. Innlent 18.5.2026 16:59
„Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi í Reykjavíkurborg, segir í pistli að örðugt gæti reynst fyrir Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðismanna, að ganga til meirihlutasamstarfs við Miðflokkinn í ljósi þess hvernig þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir létu í aðdraganda kosninga. Innlent 18.5.2026 16:10
Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Lögregla varar við því að erlendir netsvikarar noti talgervil, sem breytir íslenskum texta í tal, til að blekkja fólk í gegnum síma og svíkja af því fé. Innlent 18.5.2026 15:53
Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti Hafnarfjarðar, hefur ákveðið að stíga til hliðar og hætta í pólitík. Hann gerir því skóna að nýr varaformaður flokksins verði valinn á næstunni á flokksráðsfundi. Innlent 18.5.2026 14:46
Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar HMS stefnir á að birta álit sitt á umhverfismati vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar. Vegna umræðu um tafir sem orðið hafa á umhverfismati Sundabrautar vill HMS árétta að tímarammi umhverfismatsins er á forræði framkvæmdaraðila. Framvinda málsins ræðst af því hvenær hann leggur fram gögn til yfirferðar HMS. Innlent 18.5.2026 14:40
Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Maður sem varð vitni að afskiptum lögreglu af manni við Keflavíkurkirkjugarð í morgun, sem endaði með því að kviknaði í manninum, segir beitingu lögreglu á rafvarnarvopni fáránlega, þar sem maðurinn hafi verið búinn að hella á sig íkveikivökva. Þá hafi lögregla neytt hann til að eyða myndskeiði af atvikinu með hótunum um handtöku. Innlent 18.5.2026 14:39
Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur boðað til opins fundar í dag til að fjalla um stöðu samgangna til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar. Eyjólfur Árnason innviðaráðherra verður gestur fundarins, sem hefst klukkan 15. Innlent 18.5.2026 14:31
Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ljóst að Samfylkingin þarf að byggja upp traust á ný í Reykjavík. Samfylkingin hafi hlotið næstmest fylgi á landsvísu og flokkurinn hafi fjölgað fulltrúum í sveitarstjórnum. Það sé samt sem áður alvarlegt að fjöldi jafnaðarmanna hafi kosið aðra flokka. Innlent 18.5.2026 13:01
Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Guðmundur Oddgeirsson vegfarandi segist nú hafa verið fastur í bílalest á Þjóðvegi 1 í 45 mínútur. Hann er búinn að missa af tíma hjá lækni en hann er að koma í borgina frá Þorlákshöfn. Hann er ósáttur. Innlent 18.5.2026 12:08
„Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Rútubílstjóri sem varð vitni að ofsaakstri á Reykjanesbraut í gærkvöldi segir bílinn hafa verið á svakalegri ferð. Sá hann þegar lögregla hóf eftirför en henni lauk við Breiðholtsbraut með árekstri þar sem tveir bílar enduðu utan vegar. Innlent 18.5.2026 12:08
Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu. Innlent 18.5.2026 12:02
Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp Oddviti Sjálfstæðisflokksins mun í dag funda með oddvitum allra framboða sem náðu fulltrúa inn í borgarstjórn. Prófessor í stjórnmálafræði segir Hildi Björnsdóttur með öll tromp á hendi og standa frammi fyrir pólitísku vali um meirihluta í íhalds- eða frjálslyndisátt. Innlent 18.5.2026 12:02
„Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Ökumaðurinn sem lögregla eltist við á ofsahraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi er piltur undir tvítugu. Innlent 18.5.2026 11:46
Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Í hádegisfréttum verður rætt við prófessor í stjórnmálafræði um stöðuna í Reykjavík eftir borgarstjórnarkosningarnar um helgina. Innlent 18.5.2026 11:39
Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir seinni akrein á Suðurlandsvegi verða malbikaða að nóttu til. Miklar tafir eru á Suðurlandsvegi í dag en unnið er að fræsingu og malbikun á Suðurlandsvegi við Hólmsá. Innlent 18.5.2026 11:38
Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Karlmaður bar að sér eld í Reykjanesbæ í morgun eftir að lögregla hafði beitt hann rafvarnarvopni. Innlent 18.5.2026 11:38
Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðilda að Evrópusambandinu úr nefnd í morgun. Orðalagi spurningarinnar hefur verið breytt og svarmöguleikar verða einfaldlega já og nei. Minnihluti nefndarinnar bókaði mótmæli. Innlent 18.5.2026 11:15
Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Vegagerðin stýrir umferð á Suðurlandsvegi við Hólmsá rétt fyrir utan Reykjavík vegna vegaframkvæmda. Ökumaður er verulega ósáttur við að sitja fastur í umferð og telur verk sem þessi mega vinna í næturvinnu. Innlent 18.5.2026 10:08
Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkur hafa hafið óformlegar meirihlutaviðræður í Skagafirði. Verði af því samstarfi lýkur um tuttugu ára samfelldri sögu Framsóknarflokksins í meirihluta í sveitarfélaginu. Innlent 18.5.2026 10:01
Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Í nótt og morgun hafa áhafnir þriggja björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar verið í aðgerðum við að koma aflvana fiskibátum til aðstoðar. Innlent 18.5.2026 09:14
Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Kjörstjórn Reykjavíkur las upp rangar lokatölur um talin atkvæði á laugardag. Í tilkynningu frá kjörstjórn kemur fram að við yfirferð breyttra atkvæðaseðla hafi komið í ljós misræmi á milli lesinna talna á kjörfundi og talinna atkvæða sem helgaðist af mistökum í innslætti í talningarskjal. Innlent 18.5.2026 08:22
„Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Vísbendingar um að lykilhringrás í hafinu í kringum Ísland sé að veikjast vegna hnattrænnar hlýnunar eru svo afgerandi að stórauka þarf aðgerðir til að draga úr losun, að mati ráðgjafa íslenskra stjórnvalda. Of seint verði að koma í veg fyrir hrun hringrásarinnar þegar fullvissa um þróun hennar liggur fyrir. Innlent 18.5.2026 08:02
Árni Tómas Ragnarsson er látinn Árni Tómas Ragnarsson læknir lést 27. apríl síðastliðinn. Innlent 18.5.2026 07:34
Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Ekki tókst í tæka tíð að manna flug Icelandair til Rómar í fyrramálið og hefur því verið frestað um hið minnsta einn og hálfan tíma. Icelandair hefur í síðustu vikum átt í vandræðum við að manna flugvélar. Innlent 17.5.2026 23:21
Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Tveir sjúkrabílar og einn dælubíll voru sendir á vettvang slyss þar sem tveir bílar höfnuðu utan vegar á Reykjanesbraut við Breiðholtsbraut. Talsverður fjöldi lögreglubíla var einnig á vettvangi. Sjónarvottar lýsa því að lögreglan hafi veitt öðrum bíl eftirför sem endaði í árekstri. Innlent 17.5.2026 22:49
Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur var strikað út 1.161 sinni á seðlum greiddum Samfylkingunni í Reykjavík sem nemur 9,12% atkvæða til Samfylkingar. Það hafði ekki áhrif á uppröðun listans. Innlent 17.5.2026 21:09
„Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Hjónin Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Davíð Birkir Tryggvason fengu bæði sæti í sveitarstjórn Skagastrandar, Eydís sem oddviti Framsóknar og Davíð í öðru sæti fyrir Samfylkinguna. Eydís segir þau hjón aldrei hafa verið sammála um stjórnmál en búi þar af leiðandi að góðri æfingu af því að rökræða þau og miðla málum. Innlent 17.5.2026 19:42
Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Hásetar og bátsmenn á skipum Eimskips hafa boðað ótímabundið verkfall á mánudaginn í næstu viku, 25. maí, náist samningar ekki milli skipafélagsins og Sjómannafélag Íslands. Hafnarstarfsmenn munu svo að óbreyttu leggja niður störf degi síðar. Aðgerðirnar geta haft veruleg áhrif á afköst í Sundahöfn og siglingaráætlun Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss. Innlent 17.5.2026 19:31